Morgunblaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 40
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 166. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. 600 þúsund króna klipping 2. Björn réðst á hálfnakinn Svía 3. Vilja bera kennsl á „skógardreng“ 4. Lík finnast í plastpokum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Dagskrá Hróarskelduhátíðarinnar í Danmörku í ár hefur verið birt og há- tíðinni lýkur með því að tónlistar- konan Björk kemur fram á Orange- sviðinu á miðnætti 8. júlí. Hátíðin hefst fimmtudaginn 5. júlí. Björk á Hróars- kelduhátíðinni  Tónlistarveitan gogoyoko heldur tónleika í bak- garði Hressing- arskálans í Aust- urstræti í kvöld kl. 21 til styrktar Hraunbergi, skammtímaheim- ili fyrir unglinga. Á tónleikunum koma fram Ármann Ingvi, M-Band, Ljósvaki, Guðrið Hans- dóttir og Urban Lumber. Frítt inn en tekið á móti frjálsum framlögum. Tónleikar á Hressó til styrktar Hraunbergi  Hin farsæla íslenska hljómsveit Of Monsters and Men heldur tónleika á veitinga- og tónleikastaðnum House of Blues í Chicago 8. ágúst nk. Hljómsveitin heldur fjölda tónleika á næstu mán- uðum, í Evrópu, Ástr- alíu og Bandaríkj- unum, m.a. á hátíðunum Loll- apalooza í Chi- cago og Read- ing í Bretlandi. Of Monsters and Men í House of Blues Á föstudag og laugardag Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Skýjað með köflum og víða skúrir, einkum síðdegis. Hiti 3 til 16 stig, svalast með austurströndinni, en hlýjast suðvestanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg breytileg átt eða hafgola. Bjart með köflum og stöku skúrir, einkum síðdegis. Hiti 5 til 16 stig, hlýjast suðvestanlands, en svalast við austurströndina. VEÐUR Það var mikið fjör í leikj- unum í dauðariðlinum svo- kallaða á Evrópumótinu í knattspyrnu í gær. Portú- galar hleyptu spennu í rið- ilinn með því að leggja Dani að velli á dramatískan hátt og Þjóðverjar fóru ansi langt með að tryggja sér farseðilinn í átta liða úrslitin með því að vinna Hol- lendinga. »3 Þjóðverjar standa afar vel að vígi Aron Pálmarsson verður að öllum líkindum fjarri góðu gamni eins og Guðjón Valur Sigurðsson þegar íslenska karlalandsliðið í hand- knattleik mætir Hollendingum í síðari umspilsleiknum um sæti á HM í Hollandi á laugardaginn. Ar- on glímir við meiðsli í nára en Guðjón á við meiðsli í kálfa að stríða. »1 Íslendingar án Arons og Guðjóns Vals í Hollandi ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is „Við erum búnir að afsanna þá kenningu að þriðji ættliður setji allt á hausinn,“ segir Birgir Snorrason, annar eigenda Brauðgerðarinnar sem fagnaði 100 ára afmæli sínu í gær. Birgir og bróðir hans Kjartan reka Brauðgerðina en hún er í dag- legu tali nefnd Kristjánsbakarí. Þeir eru sonarsynir Kristjáns Jóns- sonar sem stofnaði Brauðgerðina á Akureyri 12. júní árið 1912. Fyrst um sinn var Brauðgerðin á heimili Kristjáns í Strandgötu 41 og stóð hann að rekstrinum til 1958 þegar sonur hans Snorri tók við. Bakarabræður Bakarabakterían hélst innan fjöl- skyldunnar og eru allir fjórir synir Snorra bakaramenntaðir. Aðspurður segir Birgir iðnvæð- inguna hafa breytt mestu á þeim tíma sem fyrirtækið hefur verið í rekstri. ,,Afi þurfti að loka bak- aríinu í 11 mánuði árið 1918 því hann fékk engin kol í ofninn. Þau voru skömmtuð til húskyndingar á þessum tíma. Helsta breytingin til batnaðar varð þegar rafmagnið kom. Þá var hægt að vinna allt miklu hraðar með hjálp véla,“ segir Birgir. Miklar hagsveiflur hafa sett svip sinn á rekstur fyrirtækisins á und- anförnum 100 árum. „Auðvitað hafa komið upp erfið tímabil eins og verðbólgutímar og hrunið. Við höfum hins vegar staðið þetta af okkur og haldið sömu kennitölu frá upphafi. Við erum núna í brekku en við stefnum upp á við,“ segir Birgir. Allir svangir sem komu í heimsókn Birgir á þrjá bræður, Kristján, Júlíus og Kjartan. Hann efast ekki um að sífelld brauðlykt í uppvext- inum hafi leitt til þess að þeir lærðu til bakara. ,,Enginn okkar ætlaði sér að mennta sig til bakara. En svo fór engu að síður. Við höldum sér- lega góðar kökuveislur,“ segir Birg- ir glettinn. „Það var helst mamma sem var ekki ánægð með brauðlykt- ina. Allir vinir okkar bræðra urðu svo svangir þegar þeir komu í heim- sókn,“ segir Birgir og hlær. Fjórði ættliðurinn til Halldór Örn, sonur Kjartans, er einnig lærður bakari. Fjórði ætt- liður bakara er því til og ekki úti- lokað að Brauðgerðin verði áfram innan fjölskyldunnar eftir að Birgir og Kjartan láta af störfum. ,,Við er- um nú enn ungir menn svo það ætti nú að verða einhver bið á að aðrir taki við. En allir krakkarnir okkar Kjartans hafa unnið við Brauðgerð- ina í sumarvinnu og með skóla, þannig að þau þekkja þetta öll þótt Halldór hafi einn lært þetta,“ segir Birgir að lokum. 100 ár af bakstri í beinan karllegg  Brauðgerðin í eigu sömu fjöl- skyldu frá 1912 Birgir og Kjartan reka Brauðgerðina sem hefur verið til í 100 ár. Hún hefur ávallt verið rekin af sömu fjölskyldu. Kristján Jónsson rak Bakaríið frá 1912 á Strandgötu 41 og Snorri sonur hans tók svo við árið 1958. Hinn 10. apríl 1977 var tekin fyrsta skóflustungan að nýbygg- ingu Brauðgerðarinnar við Hrísa- lund á Akureyri. Þangað var starf- semin flutt rúmu ári síðar og stækkaði þá húsplássið sem fyrir- tækið hafði til umráða úr 360 fer- metrum í 1.800 fermetra. Síðan hefur þrívegis verið byggt við. Árið 1989 keyptu Snorri og Birg- ir hlut bræðra sinna og nokkru seinna hlut föður síns. Í árslok 1998 urðu tímamót í rekstrinum þegar Brauðgerðin keypti rekstur brauðgerðar KEA en fyrirtækin höfðu um áratugaskeið verið stærstu aðilar í þessari iðn- grein norðanlands. Bakaríið er næstelsta fyrirtæki landsins sem hefur verið í eigu sömu fjölskyldu alla tíð, á eftir Michelsen úrsmið- um sem stofnað var árið 1909. Aldarvöxtur Brauðgerðarinnar NÆSTELSTA FYRIRTÆKIÐ Í EIGU SÖMU FJÖLSKYLDU Snorri Kristjánsson Kristján Jónsson „Ég er alveg rosalega ánægð. Þetta kom mér svakalega á óvart og ég er alveg í skýjunum,“ sagði kampakát Sandra María Jessen, knattspyrnu- kona úr Þór/KA, við Morgunblaðið eftir að hún var kölluð inn í íslenska landsliðið í knattspyrnu í fyrsta inn. Lands- liðið býr sig und- ir viðureign við Ungverja í undankeppni Evrópumóts- ins á Laugardalsvelli á laugardaginn. »2 Sandra er í sjöunda himni yfir óvæntu vali

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.