Morgunblaðið - 14.06.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Allt útlit er fyrir að fjármögnun
Vaðlaheiðarganga verði samþykkt á
Alþingi fyrir þinglok á föstudag.
Efnisgreinar frumvarpsins voru
samþykktar með öruggum meiri-
hluta á Alþingi eftir 2. umræðu í gær
og málinu vísað til fjárlaganefndar.
Nefndin afgreiddi málið strax í
gærkvöldi og gerir Sigríður I. Inga-
dóttir, formaður nefndarinnar, ráð
fyrir að málið verði á dagskrá þings-
ins til lokaumræðu í dag enda stuðn-
ingur við það innan allra flokka.
Slæmt fordæmi
Illugi Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, segir slæmt að
margir þingmenn sem hafi verið
hlynntir verkefninu hafi ekki getað
greitt atkvæði með því vegna þess
hvernig að því var staðið. Það sé
slæmt fordæmi að augljós fjárfest-
ing hins opinbera sé kölluð lán og
verkefnið sé tekið framhjá sam-
gönguáætlun.
„Það er mjög vont að verið sé að
stilla mönnum upp á milli þess að
standa vörð um fyrirkomulagið á
þessum hlutum í þinginu eða að
styðja þessa samgöngubót. Ég sagði
nei því ég tel að þetta eigi að fara
sína leið,“ segir Illugi.
Öruggur meirihluti
Ólína Þorvarðardóttir, þingkona
Samfylkingarinnar og starfandi for-
maður umhverfis- og samgöngu-
nefndar, hefur verið ósátt við með-
ferðina á málinu í þinginu. Hún stóð
ásamt fimm öðrum nefndarmönnum
að bókun þar sem lagst var gegn því
að framkvæmdir við Vaðlaheiðar-
göng hæfust á undan Dýrafjarðar-
göngum og Norðfjarðargöngum.
Hún sat hjá í atkvæðagreiðslunum.
„Ég tel að framkvæmdin sjálf geti
átt fullan rétt á sér á réttum tíma og í
réttu samhengi og sá þess vegna
ekki ástæðu til þess að kjósa gegn
henni. Ég gat hins vegar ekki stutt
málið í þeim búningi sem það bar að í
þinginu,“ segir Ólína.
Hún segir enga pressu hafa verið
á stjórnarþingmönnum að kjósa ekki
gegn frumvarpinu. Þá hefði það
engu breytt þó að þeir sem sátu hjá
hefðu greitt atkvæði gegn því.
„Mér sýnist það alveg ljóst að það
sé öruggur þingmeirihluti fyrir
þessu máli. Vilji þingsins verður auð-
vitað alltaf fram að ganga. Það gerð-
ist í þessu máli og það er þá bara nið-
urstaða sem fengin er eftir réttum
leiðum,“ segir Ólína.
Meirihluti fyrir Vaðlaheiðargöngum
Formaður fjárlaganefndar býst við að málið verði á dagskrá þingsins í dag
Enginn þrýstingur á stjórnarþingmenn að kjósa ekki gegn frumvarpinu
Ólína
Þorvarðardóttir
Illugi
Gunnarsson
„Það er voða lítil úrkoma í spánum næstu daga, það
verða bara einhverjar smásíðdegisskúrir áfram. Al-
vöruúrkomu má ekki vænta fyrr en hugsanlega seint í
næstu viku en þetta er allt mjög óljóst ennþá,“ segir
Hrafn Guðmundsson, veðurfræðingur á Veðurstofunni.
Mikill þurrkur hefur verið á Suðvestur- og Vest-
urlandi það sem af er sumri og langt síðan úrkoma hef-
ur mælst minni. Mælingar sýna, samkvæmt netfærslum
veðurfræðingsins Trausta Jónssonar, að í maímánuði
rigndi aðeins 19,4 mm í Reykjavík og hingað til hefur
lítið sem ekkert rignt í júní. Ef þurrkur helst áfram er
ljóst að sumarbyrjunin í ár verður ein sú þurrasta frá
upphafi mælinga.
Snorri Zophoníasson jarðfræðingur segir ár þó vera
vatnsmiklar ennþá.
„Það kom töluverður snjór seint í vetur og það er
ennþá snjóbráð og leysing þannig að almennt eru ár
ekki orðnar neitt afbrigðilega litlar. Það var mjög mik-
ið rennsli núna um mánaðamótin, sérstaklega í ám sem
koma af hálendinu, vegna mikilla leysinga. Vatns-
magnið hefur samt farið hratt minnkandi síðan þá en er
ekki komið í neitt lágmark. Það er búist við þurrum
mánuði nú í júní þannig að árnar gætu þornað mjög
hratt,“ segir Snorri og bætir við að grunnvatnsstaða í
Heiðmörk sé svipuð og í fyrra. davidmar@mbl.is
Langt síðan úrkoma var minni
Þurrkur Haukadalsá í Dölum hefur oft orðið vatnslítil
eftir þurrka. Ástand hennar er þó sem stendur eðlilegt.
Snjóþungi seint í vor kem-
ur í veg fyrir vatnslitlar ár
Morgunblaðið/Einar Falur
„Við tryggjum að þeir umgangist
ekki aðra fanga næstu mánuði til að
byrja með. Svo verða næstu skref
metin í framhaldinu,“ segir Páll
Winkel, forstjóri Fangelsismála-
stofnunar, um þá ákvörðun að skilja
Annþór Karlsson og Börk Birgisson
frá öðrum föngum á Litla-Hrauni.
Gæsluvarðhald yfir mönnunum
tveimur var ekki framlengt en þeir
eru grunaðir um að hafa orðið sam-
fanga sínum að bana.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins sýnir upptaka úr örygg-
ismyndavél að Annþór og Börkur
voru þeir einu sem fóru inn í klefa
fangans áður en hann sýndi sjúk-
dómsmerki og dó af innvortis blæð-
ingum. Reynist grunurinn réttur er
um fyrsta manndrápsmálið í ís-
lensku fangelsi að ræða.
Eiga eftir að afplána
nokkur ár
Annþór og Börkur eiga báðir eftir
að afplána nokkur ár af fangelsis-
dómum sínum. Að sögn Páls Winkel
er þetta í fyrsta sinn sem fangar eru
skildir frá samföngum sínum á þenn-
an hátt.
Skildir
frá öðrum
föngum
Tveir fangar einir á
gangi á Litla-Hrauni
Landhelgisgæslan og Fiskistofa hafa verið í
vor í samstarfi með eftirliti með veiðum skipa
á Breiðafirði. Smábátum sem stunda veiðar á
Breiðafirði hefur fjölgað mikið með tilkomu
strandveiða og mun meiri sókn er á grá-
sleppuveiðar. Á undanförnum dögum hafa tug-
ir báta verið á sjó og því vilja eftirlitsaðilar
fylgjast með að allt fari eftir settum reglum.
Eftirlitið er hefðbundið. Hjá grásleppubátum
er verið að kanna netafjölda, sem má vera 100
net á hvern lögskráðan skipverja um borð,
réttindi manna í áhöfn og svo hvort lögskrán-
ing sé í lagi. Eftirlit með strandveiðibátum
felst í því að fylgjast með lögskráningu og
aflasamsetningu.
Það sem vekur athygli er nýr bátur sem not-
aður er til eftirlitsins. Um er að ræða tilrauna-
bát sem Landhelgisgæslan er að prófa og er ís-
lensk framleiðsla frá OK huls í Kópavogi og
ber nafnið Flóki. Gæslan hefur siglt bátnum
við alls konar aðstæður frá í vetur og hefur
hann reynst vel.
Þetta er í fyrsta sinn sem notaður er sér-
stakur bátur í eftirlitsstörf á Breiðafirði.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Aukið eftirlit með bátum á Breiðafirði
eftir
Þorstein Mar
„Manni leiddist aldrei á
meðan lestrinum stóð.“
JKG, Nörd Norðursins
„Hin fínasta lesning,
frjó hugmyndagleði
einkennir hana.“
BHÓ, Skorningar
Að lokinni 2. umræðu um frum-
varpið voru greidd atkvæði um
efnisgreinar þess. Við fyrstu
grein sagði 31 þingmaður já en
18 nei. Sami fjöldi samþykkti 2.
og 3. grein þess en 17 voru á
móti. Málinu var síðan vísað til
fjárlaganefndar.
Af þeim þingmönnum sem
samþykktu frumvarpið voru 15
samfylkingarþingmenn, átta
þingmenn VG, fjórir framsókn-
armenn og þrír sjálfstæðismenn
auk Guðmundar Steingríms-
sonar.
Stuðningur
þvert á flokka
ATKVÆÐAGREIÐSLA