Morgunblaðið - 14.06.2012, Side 15

Morgunblaðið - 14.06.2012, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er í dag en tilgangurinn með honum er að vekja athygli á blóðgjöfum og hve nauðsynlegar þær eru fyrir samfélagið. Á Íslandi verður dagurinn hald- inn hátíðlegur fyrir utan Blóðbank- ann, Snorrabraut 60, í Reykjavík. Þar verður boðið uppá grillaðar pylsur og þeir sem gefa blóð þenn- an dag fá rauða rós frá Blóma- bændum. Síðdegis verður haldin skemmtun og grillveisla og mun Ingó í Veðurguðunum m.a. spila og syngja klukkan 17. Í Blóðbankanum á Akureyri fá blóðgjafar rauða rós í tilefni dags- ins og gott með kaffinu. Þar verður opið til kl. 14. Alþjóðlegur blóðgjafadagur Önnur fimmtudagsganga sumars- ins á Þingvöllum verður í kvöld. Þar mun Ragnar Arnalds rithöf- undur ræða um Stóradóm og upp- haf drekkinga á Þingvöllum. Ragnar segir frá tildrögum þess að fyrstu konunni var drekkt í Drekkingarhyl. Hún hét Þórdís en mál hennar olli hörðum átökum æðstu valdamanna. Gönguferðin hefst við Valhallar- reitinn klukkan 20 og tekur um 2 stundir. Sögustund við Drekkingarhyl Árlega er haldið upp á sameigin- legan dag villtra blóma á Norð- urlöndunum. Í tilefni af því standa samtökin Flóruvinir fyrir plöntuskoð- unarferðum víða um land sunnu- daginn 17. júní. Í Reykjavík býður Grasagarður- inn upp á kvöldgöngu um Laug- arnesfjöru klukkan 20. Gengið verður um ósnortna fjöruna á Laugarnestanga en þar er gróð- urfar fjölbreytt. Plöntur verða greindar til teg- unda, fjallað um gróður svæðisins og starfsemi Flóruvina kynnt. Dagur villtra blóma á sunnudaginn Holtasóley. STUTT Árlegt kvennahlaup ÍSÍ fer fram á laugardag. Um er að ræða einn stærsta íþróttaviðburð ársins en hlaupið verður á 80 stöðum hérlendis og á 20 stöðum erlendis. Undanfarin ár hafa þátttakendur verið í kringum 15 þúsund. Safna brjóstahöldum Konur sem taka þátt í Kvenna- hlaupinu eru hvattar til þess að taka með sér gömul brjóstahöld í hlaupið en sérstakir móttökugámar fyrir fatnaðinn verða við öll rásmörk hlaupsins. Reynsla Rauða krossins er sú að brjóstahöld og önnur nærföt skila sér sjaldan í hefðbundnum fatasöfn- unum en mikil eftirspurn er eftir slíkum fatnaði víða um heim. Upplýsingar um hlaupastaði, tímasetningar og vegalengdir er að finna á vef Sjóvár, www.sjova.is. Þátttökugjaldið er 1.250 kr. en innifalið í því er bolur, sem er rauður í ár, og verðlaunapeningur þegar komið er í mark. Morgunblaðið/Eggert Hitað upp Þátttakendur hita upp fyrir kvennahlaup ÍSÍ. Árlegt kvennahlaup ÍSÍ á laugardag Heildarfjöldi frjókorna í Reykjavík í apríl og maí varð 1.877 frjó/m3 sem er vel yfir meðallagi (661 frjó/m3). Asparfrjó voru í loftinu frá 21. apríl fram í miðjan maí. Þau urðu tæplega 500 og hafa aðeins einu sinni verið fleiri en það var í fyrra þegar 551 frjó/m3 mældist. Þetta kemur fram í samantekt Náttúrufræðistofnunar Íslands. Birkitíminn í Reykjavík hefur staðið yfir í tvær vikur eða frá 22. maí. Heildarfjöldi birkifrjóa er orð- inn 1.400 frjó/m3 sem er vel yfir meðallagi (640 frjó/m3). Frjótalan hefur sex sinnum farið yfir 100 það sem af er birkitímanum. Örfá grasfrjó mældust í Reykjavík í maí, en frá 2. júní hafa þau mælst hvern dag. Súrufrjó eru líka farin að mælast. Í báðum hópum, þ.e. meðal tegunda af grasætt og af súruætt- kvísl, er að finna tegundir sem valda ofnæmi. Einnig bar töluvert á frjókornum af víðiættkvísl og greni í maímánuði í ár en hvor tveggja valda ofnæmi. Frjókornafjöldi yfir meðaltali í borginni Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ofnæmi Asparfrjó hafa stundum verið áberandi í miðborginni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.