Morgunblaðið - 14.06.2012, Síða 16

Morgunblaðið - 14.06.2012, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Michael E. Mann varð hugfanginn af vísindum sem barn og ætlaði að gera kennilega eðlisfræði að ævi- starfi sínu. Á endanum vildi hann þó finna sér svið þar sem hann gæti nýtt sér þekkingu sína á hagnýtan hátt: „Ég datt eiginlega óvænt í loftslagsvísindi. Ég ímyndaði mér aldrei að ég myndi lenda í miðjunni á jafnumdeildu máli,“ segir Mann, en hann er hvað þekktastur fyrir að vera einn af höfundum rannsóknar, þar sem hitabreytingar 1000 ár aft- ur í tímann voru reiknaðar út, en lögun grafsins sem fylgdi greininni þótti minna á hokkíkylfu. Hefur ver- ið vísað margoft í grafið síðan, t.d. í kvikmynd Al Gore, An Inconvenient Truth. Mann hélt í gær fyrirlestur í Odda um nýútkomna bók sína, sem heitir The Hockey Stick and the Climate Wars: Dispatches from the Front Lines, sem útleggst á ís- lensku sem Hokkíkylfan og lofts- lagsstríð, skeytasendingar frá víg- línunni. Í henni segir Mann frá sinni hlið í einu heitasta deilumáli síðustu ára: „Ég vildi koma reynslu minni á framfæri, og taldi að í gegnum sögu mína væri hægt að skoða stærri málin sem eru undirliggjandi í umræðunni.“ Grafið sýndi einfalda mynd Undirtitill bókarinnar ber með sér að deilan um loftslagsbreytingar eru orðnar að hálfgerðu „stríði“, og má segja að hokkíkylfan sé einn helsti vígvöllurinn. Aðspurður um þá gagnrýni sem grafið hefur fengið á sig segir Mann að á þeim rúmlega tíu árum síðan rannsóknin var birt hafi margar aðrar rannsóknir með ýmiss konar aðferðafræði rennt stoðum undir niðurstöður hennar: „Hokkíkylfan var aldrei sá burðarás kenningarinnar á hlýnun jarðar af mannavöldum sem andstæðingar hennar vildu meina, skilningur okkar á hnatthlýnun byggir á mörg- um mismunandi sönnunargögnum sem benda í sömu átt.“ Mann skilur ekki hvers vegna enn sé verið að gagnrýna grafið: „Ég held að það sé vegna þeirrar einföldu myndar sem grafið sýndi, það sagði mjög ein- falda sögu og þú þarft ekki há- skólagráðu í eðlisfræði til að átta þig á henni. Það hreyfði við fólki sem fannst það óþægileg tilhugsun að gjörðir okkar hefðu áhrif á hlýnun jarðar.“ Mann segir varðandi gagnrýnina að það verði að gera greinarmun á heiðarlegri rökræðu sem eigi sér stað innan vísindaheimsins og mikið af þeirri utanaðkomandi gagnrýni sem eigi sér pólitískar rætur: „Inn- an vísindaheimsins höfum við rök- rætt fram og til baka um hvaða leiðir séu bestar til að rannsaka þessa þætti, hvaða tölfræðiaðferðir gefi raunsannasta mynd, hvaða gögn á að nota, hvernig á að meta óvissu o.s.frv. Ég tel að sú rökræða hafi gert það að verkum að rökin að baki loftslagsvísindum eru sterkari núna en fyrir áratug, eins og þau ættu að vera. Síðan ertu með gagn- rýnendur af öðrum meiði, utan vís- indaheimsins, sem reyna í raun að afvegaleiða fólk með því að ráðast á vísindamennina og láta líta svo út að loftslagsbreytingar af mannavöldum séu umdeildara hugtak í vís- indaheiminum en þær eru í raun og veru.“ Flokkspólitískt mál Loftslagsmálin hafa nýlega orðið að flokkspólitísku bitbeini í Banda- ríkjunum. Mann segir að þetta sé þróun sem honum þyki miður, því repúblikanar hafi löngum verið miklir umhverfisverndarsinnar. Málin séu þó ekki svo einföld að menn séu algjörlega með og á móti eftir flokkslínum: „Ég á marga vini í báðum flokkum og öllum er jafn- umhugað um framtíð barna sinna og þeirri arfleifð sem við munum skilja eftir handa þeim.“ Mann segir útblástur kolefnis helsta áhyggjuefnið í náinni framtíð, ekki sé mikill tími til þess að ná tök- um á vandanum: „Ég vil þó frekar vera bjartsýnismaður: Of margir segja að allt sé orðið um seinan og það sé ekkert sem hægt er að gera, en það er enn nægur tími til stefnu til þess að afstýra hörmungum. Hins vegar þarf að hefjast fljótt handa.“ „Verðum að hefjast handa bráðum“  Michael E. Mann, einn helsti loftslagsvísindamaður heims, á Íslandi  Einn af höfundum „hokkí- kylfunnar“  Rökin fyrir því að hnattræn hlýnun sé af mannavöldum sterkari nú en fyrir tíu árum Morgunblaðið/RAX Fróðlegur fyrirlestur Michael E. Mann hélt fyrirlestur um nýútkomna bók sína í gær. Í bakgrunni má sjá Keeling- kúrfuna svonefndu sem sýnir aukningu koltvísýrings í andrúmslofti jarðar. Tilgangur heimsóknar Manns til Íslands er sá að sækja hér ráð- stefnu á Selfossi um eldfjöll. „Það er ekki til betri staður til þess að rannsaka eldfjöll en hér á Íslandi,“ segir Mann. Eitt af því sem enn er deilt um í lofts- lagsfræðum er hversu víðtæk áhrif eldgosa eru á loftslagið. Til dæmis séu ennþá deildar meiningar um það hvort eld- gosið í Lakagígum 1783 hafi haft áhrif á veðurfar víðar en hér á landi: „Eldgos í hitabelt- inu í Kyrrahafinu eiga greiða leið í heiðhvolfið og askan úr þeim dreifist því jafnan yfir mestallan hnöttinn. Eldgos ut- an þess svæðis eiga hins vegar erfiðara um vik að ná svo hátt og hafa því jafnan ekki náð út- breiðslu um allan heiminn.“ Hlýskeiðið á miðöldum svæðisbundið Mann segir að meðal þess sem hann hafi rannsakað mest séu áhrif sólarinnar á veðurfar langt aftur í aldir. Þar verði að gera greinarmun á svæð- isbundnum breytingum og breytingum sem nái yfir allan hnöttinn. T.d. hafi verið mikið hlýskeið á miðöldum á Íslandi og Grænlandi, og hugsanlega var hlýrra þá en nú, en þegar menn hafi skoðað veðurfar ann- ars staðar á hnettinum á sama tíma hafi komið í ljós að þar hafi veðurfar ef eitthvað var verið kaldara en í venjulegu ár- ferði. Óvíst hver áhrif Skaft- árelda voru VEÐURFAR Í EVRÓPU Ful l búð af fal legum fatnaði á alla fjölskylduna! F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M ! KRINGLUNNISími: 5513200 „Það var hárrétt ákvörðun hjá fyrr- verandi fjármálaráðherra að fara eftir tillögu Bankasýslu ríkisins og sameina rekstur SpKef Landsbank- anum,“ sagði Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra í sérstakri um- ræðu um uppgjör SpKef og Lands- bankans á Alþingi í gærmorgun. Reikningurinn sorgarsögu síðustu ára Sparisjóðsins í Keflavík myndi lenda á kunnuglegum stað, hjá skatt- greiðendum, sagði hún. Málshefjandi var Bjarni Bene- diktsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins. „Eftir að tekið hefur verið tillit til fjármögnunarkostnaðar rík- isins, að ríkið mun á endanum þurfa að leggja til 25 milljarða vegna SpKef. Það er þá reikningur sem lendir á okkur öllum,“ sagði Bjarni. Málið hafi verið kynnt þannig að það yrði án kostnaðar fyrir ríkið. Síð- an hafi mál þróast á annan veg. „Reikningur vegna þess – sem ég vil nefna einkaskuldir – lendir hjá skattgreiðendum á endanum. Það er hið alvarlega í þessu máli,“ sagði Bjarni ennfremur. Steingrímur J. Sigfússon, efna- hags- og viðskiptaráðherra, sagði að saga Sparisjóðsins í Keflavík væri harmsaga. „Aðkoma ríkisins sem slíks og fjármálaráðuneytisins að málefnum Sparisjóðsins í Keflavík, og síðar SpKef, er algjörlega í samræmi við neyðarlögin og þá aðferðafræði sem var mótuð haustið 2008. Byggist á þeim lögheimildum og pólitísku yf- irlýsingum sem þá voru gefnar um að allar innistæður í bönkum og sparisjóðum yrðu tryggðar og varð- ar,“ sagði Steingrímur. Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, sagði að aðgerð Steingríms hefði ekki verið í samræmi við neyðarlögin. „Neyðar- lögin voru sett fram haustið 2008 í neyð. Þessar aðgerðir sem hér eru gerðar voru ekki í neinni neyð,“ sagði hann. Guðlaugur segir um- ræðuna snúast um hvað hafi verið gert eftir hrun. „Það voru augljós- lega gerð stór mistök og kostnaður- inn lendir á skattgreiðendum. Þetta eru tvenn og hálf Vaðlaheiðargöng sem fara í kostnaðinn við þetta.“ jonpetur@mbl.is Reikningurinn lendir á skattgreiðendum  Dyggði fyrir 2 ½ Vaðlaheiðargöngum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.