Morgunblaðið - 14.06.2012, Page 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012
Dansmeyjar á eynni Bali í Indónesíu sýna listir
sínar á 34. listahátíðinni í borginni Denpasar í
gær. Hátíðin stendur í mánuð. Hver viðburð-
urinn rekur annan, sýndur er margvíslegur
handunninn varningur og kynnt menningarstarf
til þess að ýta undir áhuga ferðamanna. Fjöldi
hótela og annarra dvalarstaða er á eynni sem er
einstaklega gróðursæl og hefur oft verið lýst
sem fegurstu eyju í heimi.
Þokkafullur dans í Denpasar
AFP
Listahátíð á hitabeltiseynni Bali í Indónesíu
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Hörð átök hafa verið milli búddista
og múslíma í sambandsríkinu Rak-
hine í vesturhluta Búrma undan-
farna daga og hefur 21 fallið auk
þess sem kveikt hefur verið í hundr-
uðum húsa. Vijay Nambiar, sendi-
maður Ban Ki-moon, framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna,
heimsótti héraðið í gær en samtökin
ákváðu nýlega að flytja á brott
starfsmenn sína á svæðinu þar sem
óttast var um öryggi þeirra.
Átökin hófust þegar kona úr röð-
um búddista var myrt í borginni
Maungdaw og var í kjölfarið ráðist á
strætisvagn sem flutti múslíma.
Breiddust óeirðirnar síðan út til hér-
aðshöfuðborgarinnar Sittwe. Forseti
Búrma, Thein Sein, lýsti yfir neyðar-
ástandi á svæðinu á sunnudag.
„Við erum hér til að kanna málið
og meta hvernig við getum haldið
áfram að veita Rakhine aðstoð,“
sagði Nambiar. Með honum í för eru
trúarleiðtogar múslíma frá stærstu
borg Búrma, Rangoon, en einnig
ráðherra landamæramála, Thein
Htay hershöfðingi. Múslímarnir sem
ráðist hefur verið á eru af þjóðerni
Rohingya í Rakhine og hafa stjórn-
völd neitað þeim um ríkisborgara-
rétt. Segja þau að um sé að ræða
ólöglega innflytjendur frá
Bangladess.
Fjöldi Rohingyamanna hefur
reynt að flýja til Bangladess undan-
farna daga en talið er að um 1.500
hafi verið snúið við af landamæra-
vörðum Bangladess. Fullyrt er að
þeir hafi skotið einn flóttamannanna
til bana. Fulltrúar SÞ hvetja Bangla-
dess til að opna landamærin.
Mannskæð átök í Búrma
Trúarofsóknir
» Um 4% af 60 milljónum
íbúa Búrma eru múslímar,
margir þeirra búa í Rakhine.
Múslímar og kristnir, sem eru
álíka margir, hafa lengi verið
ofsóttir af hálfu stjórnvalda.
» Um 300 þúsund múslímar
af þjóðerni Rohingya hafa flúið
land og búa í Bangladess.
Barack Obama
Bandaríkja-
forseti hringdi í
gær í Herman
Van Rompuy,
forseta ráðherra-
ráðs Evrópusam-
bandsins, til að
leita upplýsinga
um stöðu mála á
evrusvæðinu.
François Hol-
lande, forseti Frakklands, og Angela
Merkel, kanslari Þýskalands, voru
einnig í símasambandi við Von
Rompuy í gær.
Talsmaður hans sagði að samtölin
tengdust undirbúningi fyrir fund
G-20 ríkjanna svonefndu í Mexíkó í
byrjun næstu viku en þar verður
skuldakreppan á evrusvæðinu og
viðbrögð við henni ofarlega á baugi.
gummi@mbl.is
Obama
hringdi
í Van
Rompuy
Herman Van
Rompuy
Leiðtogar G20 und-
irbúa fund í Mexíkó
Þrír fjórðu hlutar hvalkjöts, sem féll
til í umdeildum veiðum Japana í
Suðurhöfum á síðasta ári, seldust
ekki þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til
að finna kaupendur.
AFP-fréttastofan segir að um sé
að ræða um 900 tonn af hvalkjöti,
aðallega hrefnukjöti, en alls voru
afurðirnar um 1.200 tonn.
Uppboð á kjötinu voru haldin
reglulega milli nóvember á síðasta
ári fram til mars í ár án árangurs.
Talsverð eftirspurn er eftir hval-
kjöti frá japönskum strand-
veiðimönnum í Japan. Það kjöt er
selt ferskt en aflinn úr stórveiðinni í
fyrra var frystur og seldur frosinn í
stærri skömmtum. gummi@mbl.is
Um 900 tonn
af hvalkjöti
enn óseld
Óeirðir brutust út í Varsjá, höf-
uðborg Póllands í tengslum við leik
Pólverja og Rússa í Evrópumótinu í
knattspyrnu á þriðjudagskvöld.
Lögregla beitti gúmmíkúlum og
vatnsbyssum gegn óeirðaseggj-
unum.
Átökin brutust út þegar tugþús-
undir rússneskra stuðningsmanna
rússneska landsliðsins gengu að
leikvanginum. Að sögn blaðsins
Russia Today réðist stór hópur
pólskra ungmenna á Rússana og
þegar lögregla ætlaði að skerast í
leikinn var bensínsprengjum og
grjóti kastað að lögreglumönn-
unum. Lögreglan skaut viðvör-
unarskotum og beitti vatnsbyssum.
Að sögn pólsku lögreglunnar
voru að minnsta kosti 130 manns
handteknir. Tíu voru fluttir á
sjúkrahús, margir þeirra með höf-
uðáverka en enginn slasaðist lífs-
hættulega. gummi@mbl.is
Óeirðir eftir
knattspyrnuleik
Tíu slösuðust í átökum í Varsjá
AFP
Átök Pólsk óeirðalögregla berst við rússneska óeirðaseggi í Varsjá þar sem
Rússar og Pólverjar áttust við í EM í knattspyrnu. Leikurinn fór 1:1.
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is
Allt fyrir
gluggana
á einum
stað
Úrval - gæði - þjónusta
Mælum,
sérsmíðum
og setjum upp