Morgunblaðið - 14.06.2012, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 14.06.2012, Qupperneq 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Fossvegur 2, Svf. Árborg, fnr. 227-3426, þingl. eig. Lilja Richardsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 21. júní 2012 kl. 15:00. Sýslumaðurinn á Selfossi, 13. júní 2012, Ólafur Helgi Kjartansson. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Karfavogur 27, 202-2670, Reykjavík, þingl. eig. Atli Már Helenuson, gerðarbeiðendur Hilda hf og Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 19. júní 2012 kl. 11:30. Njörvasund 34, 202-0723, Reykjavík, þingl. eig. Sif Sigurðardóttir og Rafn Rafnsson, gerðarbeiðendur Landsbankinn hf. og Reykjavíkur- borg, þriðjudaginn 19. júní 2012 kl. 10:30. Torfufell 34, 205-3139, Reykjavík, þingl. eig. Birna Dís Benediktsdóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf, þriðjudaginn 19. júní 2012 kl. 14:00. Tunguvegur 98, 203-6309, Reykjavík, þingl. eig. Pétur Stefán Kristjánsson, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg,Tollstjóri,Tunguvegur 84-100,húsfélag og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 19. júní 2012 kl. 11:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 13. júní 2012. Félagsstarf eldri borgara                                !"  #  $  %   &   "#  '   (&     & ) # *  !%  +  ,  % !"  # $  - .//  %    00-12  00$     02          3    10 )  /&   "    4         " *      !"  !     #  $  5      #     06 # % 4   #%   $  #  %  $& # '      %       $  (  )     $    % 4    26 #%    -6 #   #   *& '+,      !   6 7     *&  8    9: ;   !&  #   - '   < 7     3   =      $$ *"   ,-(,.  ,7   4  /  >2 !    ,7    6    #7 ," 6 #%    / & '      $0 !    &  ;     !" *   !"  #"/    0  &  1     #     ?  0  @   )    $ 0    #  %     / 6 *   6 /   Jói Jói í kjallaranum. Jói heimiliskötturinn okkar. Svo viðkvæmur. Svo erfitt. Erfitt að Erfitt Ég þekkti þig ekki, Jóhann Þór Guðmundsson ✝ Jóhann ÞórGuðmundsson fæddist í Reykjavík 11. febrúar 1961. Hann lést á heimili sínu, Fannarfelli 12 í Reykjavík, 16. maí 2012. Jarðarför Jó- hanns fór fram í kyrrþey. og þó þekkti ég þig. Fallega brosið þitt, hlýjuna í þér. Brosið fyrir börnin mín, og brosið fyrir mig. Úti að skemmta sér. Bíðið þið aðeins, ég ætla aðeins að rugla Það var Jói. Leitaði og fann ekki. Alltaf til staðar og þó í burtu. Nú fórstu burtu og ég vona að þér líði vel núna, því það áttu svo margfaldlega skilið. Takk fyrir allt. Drífa Leonsdóttir. Tengdamóðir mín, Arnheiður Halldórsdóttir var einstök kona. Það var mér ljóst strax og mér var tekið opnum örmum á heim- ili hennar og Egils Karlssonar þegar ég og Ágústa dóttir þeirra vorum að stíga okkar fyrstu skref í okkar sambúð er hófst í kjallaranum að Jaðri á Eskifirði. Allar götur síðan hef ég talið það mitt forgangsverkefni að kíkja í eldhúsið til Öddu og fá að upplifa hennar jákvæðni, bjart- sýni og jafnaðargeð sem maður fann alltaf svo vel fyrir hjá henni. Adda var ekki mikið gefin fyr- ir heimsins prjál, hennar skemmtistaðir voru heimilið, garðurinn og fjöllin kringum Arnheiður Halldórsdóttir ✝ ArnheiðurHalldórsdóttir fæddist á Hlíð- arenda, Eskifirði, 15. október 1926. Hún lést á hjarta- deild Landspítalans við Hringbraut 31. maí 2012. Arnheiður var jarðsungin frá Eskifjarðarkirkju 11. júní 2012. Eskifjörð þar sem hún safnaði steinum árum saman og átti mikið og fallegt steinasafn sem margir hafa dáðst að enda var ávallt mikill gestagangur á heimili Öddu þar sem allir voru vel- komnir. Þær munu aldrei líða mér úr minni hinar frábæru móttökur sem ég fékk hjá Öddu þegar ég kom inná heimili hennar með konu sem ég hafði kynnst eftir að Ágústa hafði farist í hörmulegu slysi árið 2002, slíkt viðmót er ekki sjálfgefið en hjá Öddu var það sjálfsagt. Fjölskylda Öddu er samhent og sterk, börnin og barnabörnin hafa alltaf fundið fyrir því nota- lega andrúmslofti sem ríkti á heimili Öddu og því ávallt sótt í að koma til hennar. Því miður mun hennar ekki lengur njóta við en minningin er falleg og Öddu verður ávallt minnst með hlýhug og virðingu allra þeirra sem voru svo heppnir að fá að kynnast henni. Haukur Björnsson. ✝ Kolbrún Jak-obsdóttir fædd- ist í Reykjavík 8. apríl 1938. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 24. maí 2012. Foreldrar henn- ar voru Jakob Björnsson bóndi og síðar lög- regluþjónn í Reykjavík, fæddur í Haga í Aðaldal 15. ágúst 1895, d. 13. apríl 1969 og Eggþóra Kristjánsdóttir fædd á Bolla- stöðum í Hraungerðishreppi þann 13. janúar 1893 og dáin þann 5. desember 1964. Kolbrún var yngst níu alsystkina og síð- an ólu Jakob og Eggþóra einnig upp tvö dótturbörn sín þannig að systkinin voru 11 talsins. Systkini Kolbrúnar eru Óðinn Björn, f. 4. mars 1925, látinn, Ásdís, f. 21. nóvember 1926, 11. júlí 1993. 2) Margrét, f. 1. mars 1965, húsmóðir, maður hennar er Gunnar Örn Ástþórs- son bifreiðastjóri, f. 23. október 1964. Synir þeirra eru: Ástþór Ísak, f. 30. júlí 1993, Andrés Ív- ar, f. 21. júní 1996 og Arnar Ingi, f. 17. júní 2000. Kolbrún ólst upp í Reykjavík og bjó þar allt sitt líf. Eftir að skólagöngu lauk fór hún að vinna hjá sælgætisgerðinni Vík- ing og vann þar, þar til hún eignaðist sitt fyrsta barn og eitthvað líka eftir að barnið fæddist þegar álagstímar voru í páskaeggjagerð eða öðru. Ann- ars var hún heima að hugsa um börn og bú, þar sem Mikkjal var mikið í burtu vegna sjómennsk- unnar. Þegar dæturnar urðu eldri fór Kolbrún svo aftur út á vinnumarkaðinn og vann um nokkurra ára skeið hjá Póst & síma og síðar hjá leik- og grunn- skólum Reykjavíkurborgar. Kolbrún hætti að vinna og fór á eftirlaun við 67 ára aldurinn og þegar Mikkjal var einnig búinn að ná þeim aldri fóru þau að dvelja meira í Færeyjum. Útför Kolbrúnar hefur farið fram í kyrrþey. Auður, f. 14. febr- úar 1928 látin, Hulda, f. 5. júní 1929, Þór, f. 2. júní 1930, látinn, Freyja, f. 5. desem- ber 1932, Iðunn, f. 11. júní 1934, látin, Njörður, f. 28. júlí 1935, látinn, Að- alsteinn, f. 30. des- ember 1944 og Þóra Guðrún, f. 11. maí 1948. Kolbrún giftist 2. júní 1963 Mikkjali Andreasi Davidsen sjó- manni frá Kvívík í Færeyjum, f. 4. desember 1941. Dætur Kol- brúnar og Mikkjals eru 1) Ásdís Þóra, f. 23. janúar 1963, fulltrúi hjá Þjóðskrá Íslands, maður hennar er Þór Agnarsson prent- ari, f. 16. ágúst 1960. Börn þeirra eru: Mikkjal Agnar, f. 18. maí 1982, Kolbrún Freyja, f. 12. febrúar 1987 og Þóra Laufey, f. Elsku mamma mín, nú ert þú farin frá okkur. Ég get ekki lýst því hvernig mér líður, það er eins og ég sé með farg á öxlunum og kökk í hjartanu og tilhugsunin um að geta aldrei sagt mamma aftur og heyrt þig svara mér er ólýsanleg. Þú hefur alltaf verið kletturinn í mínu lífi, stutt mig í einu og öllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur og hjálpað mér, já þú og pabbi. Eins og þegar frumburðurinn minn kom í heiminn þá varst þú að sjálfsögðu með mér og tókst á móti honum. Það var stolt amma sem sat við rúmið mitt með prinsinn sinn í fanginu þessa nótt. Já , elsku mamma mín, það er stórt skarð höggvið í fjöl- skylduna við fráhvarf þitt. Við brölluðum svo margt skemmti- legt saman, fórum svo oft í sum- arbústað, bæði bústaðinn ykkar á Þingvöllum og í Færeyjum og þá krakkarnir mínir oftast með, þau elskuðu öll að vera hjá ömmu og afa. Föstudagskvöld í Kópavoginum, þá koma amma og afi, er það ekki, ef klukkan var orðin níu og þið pabbi ekki komin þá brást það ekki að eitt- hvert af börnunum mínum kom og sagði „Mamma, hvar eru amma og afi, eru þau ekki á leið- inni?“ Þá hló ég og sagði við þau „ég veit það ekki, hringdu bara í þau“, en þá komuð þið yfirleitt keyrandi inn á planið. Að missa bæði þig og Freyju ömmu í sömu vikunni er stór biti fyrir okkur. Já, elsku mamma mín, það er mikill söknuður hjá öllum barna- börnunum þínum sex sem alltaf gátu leitað til ömmu með allt og fyrir pabba. Þið pabbi voruð svo náin og gerðuð allt saman, ég lofa að hugsa vel um pabba. Og við Þór erum ekki bara að missa móður og tengdamóður heldur líka einn besta vin sem nokkur getur átt. Ég veit að nú líður þér betur, laus undan öllum þrautum og komin á betri stað og ég er viss um að fjölskyldan og vinir hafa tekið vel á móti þér. Að lokum vil ég þakka starfs- fólki líknardeildarinnar í Kópa- vogi fyrir góða umönnun og hlý- hug í okkar garð. Blátt lítið blóm eitt er, ber nafnið: Gleymdu ei mér. Væri ég fleygur fugl flygi ég til þín. Svo mína sálu nú sigraða hefur þú, engu ég unna má öðru en þér. (Þýsk þjóðvísa.) Hvíl í friði, elsku mamma mín. Ásdís Þóra. Yndislega amma mín og nafna er nú fallin frá eftir erfiða bar- áttu í veikindum sínum. Seinustu dagar hafa verið okkur fjölskyld- unni erfiðir því að missa báðar ömmur sínar á einni viku er frek- ar stór biti að kyngja. Amma, þú varst svo yndisleg og ljúf og allt- af tilbúin að gera allt fyrir mann. Það verður skrýtið að eiga allt í einu enga ömmu á lífi. Núna sit ég og hugsa um allt það sem við gerðum saman í gegnum tíðina. Allar ferðirnar til Færeyja, þá fyrstu þegar ég var 7 ára, þá fór ég með þér og afa og við vorum þrjú saman allt sumarið. Ég man að ég grét nú pínu fyrst þegar við vorum að leggja af stað en mig minnir að ég hafi nú verið búin að gleyma því þegar við komum út á horn. Af sögunum frá mömmu og pabba að dæma þá munaði nú ekki miklu að ég hefði gert útaf við ykkur, þig og afa, annan eins villing höfðu Færeyingar ekki séð held ég. En það skipti ekki máli hvað ég gerði af mér, alltaf tókst þú minn málstað og stóðst með mér ef þér fannst halla á mig. Það var ómet- anlegt að hafa þig og afa alltaf í næsta húsi á meðan ég var að alast upp. Ég gat labbað til ykk- ar þegar ég vildi og ég fékk að gista þegar ég vildi. Ég man allt- af eftir því eitt sumarið þegar þið fóruð til Færeyja, þá rölti ég yfir á hverjum einasta degi og dingl- aði bjöllunni til að athuga hvort þið væruð komin heim, þó mamma væri búin að segja mér að þið kæmuð ekki strax. Ég man líka hvað ég var glöð daginn sem ég rölti yfir og dinglaði og þú svaraðir, þið voruð loksins komin heim. Alla tíð þá hafið þið afi verið í miklu uppáhaldi hjá mér og ég vildi helst alltaf vera hjá ykkur. Já, það eru margar góðar minningar sem við eigum, amma mín, sem ég get verið þakklát fyrir. En nú er komið að kveðju- stund, elsku amma, þín verður sko sárt saknað. Um leið og ég kveð þig með sorg í hjarta þá veit ég líka að núna líður þér bet- ur. Þú þarft ekki að hafa áhyggj- ur af afa, ég passa hann alveg eins og ég lofaði þér. Við sjáumst seinna, amma mín. Kolbrún Freyja. Elsku amma. Þú varst jákvæðasta og ynd- islegasta kona sem ég hef kynnst. Ég er svo heppin að hafa átt þig fyrir ömmu, fáar komast með tærnar þar sem þú hafðir hælana. Margar af mínum bestu minningum innihalda þig. Þú komst mér alltaf til að hlæja og þá sérstaklega þegar orð þín voru svo full af einlægni. Þú hef- ur gengið í gegnum margt síð- ustu árin, elsku amma mín, en nú er lífi þínu á þessari jörð lokið. Ég veit að þú munt halda áfram að fylgjast með okkur. Ég vildi að ég hafði verið duglegri að heimsækja þig síðustu vikuna, en það var mér ofviða að snúa aftur eftir að Freyja amma lést, viku á undan þér. Nú fylgist þið báðar með okkur. Ég held fast í þær minningar sem við eigum saman. Ég elska þig, amma mín, og mun alltaf gera. Hún með sinni ömmu átti ótal margar gleðistund. Góðvildin og gæska hennar geislum stráði í barnsins lund. Og að leysa lífsins gátur lærðist oft við þeirra fund. (Helga Erlendsdóttir) Þóra Laufey Þórsdóttir Davidsen. Kolbrún Jakobsdóttir Við vestanverðan Ólafsfjörð stendur lítil byggð sem heitir Kleifar. Þar er ekki lengur föst búseta – en á páskum og á sumrin fyllast húsin lífi er fólkið sem á rætur sínar hér kemur til að njóta dvalar í heimabyggðinni, dytta að húsum, róa til fiskjar og gleðjast með ættingjum og vinum. Í fámennu samfélagi Kleifa- fólksins er samheldnin mikil og sárari harmurinn með hverjum þeim sem hverfur úr hópnum. Sigurjón Árdal Antonsson fæddist á Ytri Gunnólfsá á Kleif- um 23. október 1939. Foreldrar hans, Guðrún Anna Sigurjóns- dóttir og Anton Baldvin Björns- son eignuðust 10 börn og eru nú þrjú þeirra látin. Jónsi á Ytri-á er fyrstur til að kveðja, úr hópi 4 fermingarsystk- ina frá Kleifum sem öll fæddust í október og nóvember 1939. Hann hneigðist snemma til sjó- mennsku, líkt og aðrir ungir menn í Ólafsfirði; var háseti á tog- veiði og síldarskipum, m.a. með þeim kunna aflaskipstjóra Egg- erti Gíslasyni. Árið 1972 lét Jónsi svo smíða fyrir sig 8 tonna trébát, Þverfell, og stundaði sjó á þeim Sigurjón Árdal Antonsson ✝ Sigurjón ÁrdalAntonsson fæddist á Ytri-á, Kleifum í Ólafsfirði 23. október 1939. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 4. júní 2012. Útför Sigurjóns fór fram frá Bú- staðakirkju 11. júní 2012. báti til ársins 1989, er hann sökk í róðri á Faxaflóa. Við kveðjum Jónsa með ljóðinu Eintal eftir Jón Árnason á Syðri- Gunnólfsá; Þar sem ymja öldufalla ærslaleikir dag og nótt hef ég lifað ævi alla afl og líf í djúpið sótt. Reynt að standa á verði virkum vinnu til ei sparað afl, höndum tekið stýrið – styrkum stór þótt risi brimsins skafl. Ég hef séð úr sævi rísa sól á vori, mána um haust. Stjörnur himins veg mér vísa vastir breiðar, endalaust. Bylgjur hafs við bláa sanda blika og leika undurþýtt, brimsog yfir byltast granda, björg og hleinar – þungt og strítt. Út um heiminn oft nam líða ævintýr við glys og víf. Munablíðum – milli stríða mælt var – stundum skammvinnt líf. En þótt víða leið mín legið löngum hafi um sollinn ver þú hefur land mitt laðað, dregið, loks var snúið stafni að þér. Líður senn að lífsins kveldi, langt er siglt og komið haust, og í sólar síðsta eldi sett er skipið upp í naust. Nú eru seglin björtu bundin, brugðið stýri hjörum frá, bíð ég einn við ystu sundin eftir fari - og nýjum sjá. Katrín og Ingi Viðar frá Syðri-Á.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.