Morgunblaðið - 14.06.2012, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 14.06.2012, Qupperneq 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur lokað á sköpunarhæfileika þína um tíma svo nú verður ekki lengur við unað. Notaðu tækifærið og miðlaðu öðrum af þinni eigin reynslu sem getur komið þeim vel. 20. apríl - 20. maí  Naut Það verða hvörf í framvindu einkalífs- ins. Tryggðu þér sæti í fremstu röð, þar sem menn veita þér og þínum málum nægilega at- hygli. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert á milli steins og sleggju. Gættu þess bara að missa ekki sjónar á loka- takmarkinu og láttu ekki aðfinnslur annarra skemma fyrir þér. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert með hugann við allt of margt og þarft að geta verið í næði til að koma jafn- vægi á hlutina. Láttu ekki undir höfuð leggj- ast að ljúka skylduverkum þínum áður en þú lyftir þér upp. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er þung byrði að þurfa að gera alla hluti kórrétt. Það sem kemur sér best fyrir þig núna og veitir þér ánægju er góð hvíld. Kúrðu og gerðu ekkert í kvöld. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er auðveldara að yfirvinna hindr- anir í peningamálum ef maður fer ekki á taugum. Reyndu að sýna þínum nánustu skilning og stuðning. 23. sept. - 22. okt.  Vog Einhver vandkvæði koma upp á vinnu- stað þínum en þú tekur ekki þátt í því. Reyndu að forðast allt slíkt og mundu að fæst orð hafa minnsta ábyrgð. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt verkið virðist erfitt, skaltu ekki bakka. Allt endurmat kallar á aðgerðir. Nú er kominn tími til þess að tala út um hlut- ina við sína nánustu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nú er bara að sýna dirfsku og staðfestu og sigla málunum í örugga höfn. Haltu þér í góðu formi líkamlega. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú munt fá tækifæri til að fræðast af þeim sem eru þér vísari. Eitthvað kann að setja allt úr skorðum hjá þér í dag. Þú skalt sýna sveigjanleika og takta breytingum fagnandi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Vatnsberanum finnst sem hann sé bundinn af áætlunum annarra, og þannig virðist það svo sannarlega vera. Að öðrum kosti – vandræði! 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er of auðvelt að væla bara þegar maður er óánægður. Vertu ekki of hastur í máli er þú svarar fyrir þig. Það er erfitt að henda reiður áþví, hver sé höfundur vísu. Eftir uppskeruhátíð Skákakadem- íu Reykjavíkur fletti ég upp í Vísnavef Skagfirðinga, þar sem Guðmundur landlæknir var talinn höfundur eftirfarandi vísna, sem er rangt. Höfundurinn er Guð- mundur Björnsson sýslumaður þeirra Barðstrendinga: Í þrautum reynir manninn mest; margur er stundar voðinn. Snæbjörn stýrir bragna best, Breiðfirðingagoðinn. Þegar yfir skeflir skafl, skaflinn fárs og nauða, hann við Ægi teflir tafl, taflið lífs og dauða. Því endurtek ég þessar stökur að þeir voru vinir Snæbjörn og Guðmundur sýslumaður og urðu fyrir þeirri lífsreynslu, að enskur botnvörpungur, sem flóabátur Breiðfirðinga hitti að veiðum inn- an landhelgi á Breiðafirði, strauk með þá báða til hafs, hreppstjór- ann og sýslumanninn. Þetta var í október 1911. Ýmsu var spáð um örlög þeirra, en nokkrum dögum síðar fréttist af þeim í Hull. Sag- an segir, að Snæbjörn hafi gripið melspíru um leið og hann kom um borð í togarann og ekki sleppt henni fyrr en þangað var komið, vildi geta varið hendur sínar. Þeir höfðu lítið traust af stjórn- völdum er mér sagt, en Thor Jen- sen hafi skotið undir þá togara til Íslands. Vísur Guðmundar sýslumanns til Snæbjarnar eru fimm: Sjái ég fagra fjörðinn minn finnst mér eins og hlýni og gamli vinargeislinn þinn á götu mína skíni. Gleði ungum gafst́onum, geð og hjartavarminn; þetta fastast fylgdı́onum fram á grafarbarminn. Ég bið ekki að lukkan þig leiði, lukkan er hverful að dyggð, en sjálfur þér götu hann þér greiði sem gæddi þig manndóm og tryggð. Við athugun kom í ljós, að af þeim 26 vísum, sem í Vísnavef Skagfirðinga eru taldar eftir Guðmund landlækni Björnsson eru 13 vísur í Ljóðmælum Guð- mundar sýslumanns. Skýringin er vitaskuld sú, að þeir heita sama nafni og ekki mikill aldursmunur milli þeirra; báðir vel skáldmælt- ir. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Gamli vinargeislinn þinn á götu mína skíni G æ sa m am m a o g G rí m ur G re tt ir S m áf ól k H ró lf ur hr æ ði le gi F er di n an d BRJÁNN, ÞAÐ ERU BARA ÞRJÁR SEKÚNDUR ÞANGAÐ TIL AÐ SPRENGJAN SPRINGUR! KLIPPTU RAUÐAVÍRINN, EKKI ÞANN GRÆNA! BIRNA, ÞAÐ ER SVOLÍTIÐ SEM MIG HEFUR ALLTAF LANGAÐ TIL AÐ SEGJA ÞÉR... HVAÐ? ÉG ER LIT- BLINDUR BLESS, BLESS, BRJÁNN OG BIRNA ÞÚ ERT VERSTI LITLI BRÓÐIR Í HEIMI! EF ÉG HEFÐI GETAÐ VALIÐ MÉR BRÓÐUR ÞÁ HEFÐIR ÞÚ VERIÐ SÁ SÍÐASTI SEM ÉG HEFÐI VALIÐ EFTIR ÞRJÁTÍU ÁR ÁTTU EFTIR AÐ ELSKA MIG! STÓRAR SYSTUR ELSKA ALLTAF BRÆÐUR SÍNA EFTIR ÞRJÁTÍU ÁR ÞÚ BAÐST RÍKIÐ UM GREIÐSLUFREST OG ÉG ER HINGAÐ KOMINN TIL AÐ FÆRA ÞÉR SVARIÐ... FRÁBÆRT! „GREIÐSLUFRESTUR ÞINN RENNUR ÚT DAGINN SEM ÞETTA BRÉF BERST ÞÉR” ÞAÐ ER AUGLJÓST AÐ HÚN HEFUR FARIÐ Í FITUSOG LÉTT & LAGGOTT SM JÖ R Víkverji brá sér um daginn í kvik-myndahús að sjá myndina Mjallhvít og veiðimaðurinn. Þar er á ferðinni ágætis ævintýramynd, þar sem höfundarnir fara nokkuð frjáls- lega með söguna, en halda sig þó við meginþætti hennar. Þýðing mynd- arinnar er þó tilefni þess að Víkverji sér sig knúinn til þess að fjalla um hana hér. Eins og lög gera ráð fyrir stillir vonda drottningin sér upp fyr- ir framan spegilinn í höll sinni og spyr hvort hún sé ekki fegurst allra í konungsdæminu. Og fer vitlaust með. Í myndinni er drottningin látin fara með setninguna: Spegill, spegill, herm þú mér hver á landi fegurst er. Rétt er þetta hins vegar svona: Spegill, spegill herm þú hver hér á landi fegurst er. Fyrri útgáfan gengur augljóslega ekki upp vegna stuðlasetning- arinnar. Hún virðist hins vegar hafa náð yfirhöndinni. Það sést til dæmis þegar leitað er á leitarvélum. Þar hefur fyrri útgáfan algerlega náð yfirhöndinni. Þetta finnst Víkverja miður og vill því halda uppi vörnum fyrir þá síðari í þeirri von að hún haldi velli. x x x Það getur verið lýjandi að hafaáhuga á íþróttum og þessi júní ætlar að verða sérlega grimmur. Víkverji hefur ekki getað stillt sig um að fylgjast með Evrópumeist- aramóti karla í knattspyrnu, sem fer þokkalega af stað, þótt ekki rigni mörkunum. Hann hefur einnig legið yfir úrslitakeppninni í bandaríska körfuboltanum, NBA, þar sem menn hafa þann undarlega sið að leika um miðjar nætur. Þegar leikið er bæði í EM og NBA er um að ræða næstum því sjö tíma pensúm. Það er vel í lagt þegar einnig þarf að sinna fullri vinnu og jafnvel að eiga einhverjar stundir aflögu fyrir fjölskylduna. Víkverji setur vitaskuld undir sig höfuðið og brýst í gegnum þennan skafl, en ekki er laust við að hann velti stundum fyrir sér af hverju í ósköpunum hann hafi áhuga á íþróttum. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í saman- burði við þá dýrð, sem oss mun opin- berast. (Rm. 8, 18.) HVERFISGATA 52 · 101 RVK SJADU.IS · SÍMI 561 0075 Þar sem unga fólkið verslar...er þér óhætt KOMDU OG SJÁÐU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.