Morgunblaðið - 14.06.2012, Side 34

Morgunblaðið - 14.06.2012, Side 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 Þýska sópransöngkonan Christine Schäfer kemur fram undir stjórn Ilans Volkovs á lokatónleikum Sin- fóníuhljómsveitar Íslands á þessu starfsári í Eldborg í kvöld kl. 19:30. Á efnisskránni verða aríur eftir W.A. Mozart auk þess sem Schäfer mun flytja lagaflokk Albans Bergs við ljóð eftir Peter Altenberg sem aldrei áður hefur hljómað hér á landi. Ferill Christine Schäfer spannar um tvo áratugi, en hún nam á sín- um tíma söng hjá m.a. Dietrich Fischer-Dieskau. Hún hefur sungið í öllum helstu óperuhúsum heims, m.a. sungið öll stóru Mozarthlut- verkin á Salzburgar-hátíðinni, söng nýverið hlutverk Sophie í Rosenka- valier í Metropolitan-óperunni þar sem hún þurfti að verjast ágengni Kristins Sigmundssonar í hlutverki Ochs baróns, hlutverk Víólettu í La Traviata við Garnier-óperuna í Par- ís og Konstönsu í Brottnáminu úr kvennabúrinu við Berlínaróperuna. Schäfer hlaut Gramophone- verðlaunin fyrir hljómdisk sinn með sönglögum Schumanns, en meðal nýjustu diska hennar eru aríur Bachs fyrir Deutsche Grammop- hon, þar sem hún kemur fram ásamt fiðluleikaranum Hilary Hahn. Á tónleikunum í kvöld hljóma jafnframt tvö hljómsveitarverk. Annars vegar Adagio eftir Jón Nordal, sem frumflutt var á Sinfón- íutónleikum árið 1966 og verið hef- ur í uppáhaldi hjá aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitarinnar sem ósk- aði sérstaklega eftir því fá að stjórna því á fyrsta ári sínu við stjórnvölinn. Hins vegar Ófullgerða sinfónía Franz Schuberts sem ekki var frumflutt fyrr en árið 1865, heilum 37 árum eftir að tónskáldið féll frá. Schäfer syngur Mozart  Ilan Volkov stjórnar í kvöld Reynd Christine Schäfer sópran. Rokkkarlakórinn Stormsveitin heldur tónleika í Hlégarði á laugardag. Stormsveitina skipa fjórradda karlakór og fimm manna rokkhljómsveit, en stofnandi hennar, Sigurður Hansson, smalaði saman í sveitina í október sl. og fyrstu tónleikar sveitarinnar voru á þorrablóti Aftureldingar. Á dagskrá tónleikanna eru hefð- bundin karlakórslög í rokk- útsetningum ásamt lögum frá Metallica, Queen, U2 og fleirum. Gestasöngvari á tónleikunum verður Birgir Haraldsson. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Tónlist Rokkkarlakórinn Stormsveitin Sigurður Hansson stormsveitarbóndi. Rakel Steinarsdóttir myndlistarmaður sýnir mynd- röð í sjö hlutum í Fjöruhúsinu á Hellnum í júnímánuði. Grunnþema myndraðarinnar er uppruni og örlög ólíkra gler- glasa, eins og því er lýst í til- kynningu. Verkið nefnir hún Meðhöndlist af gætni og er það unnið með blandaðri tækni þar sem texti og mynd kallast á. Rakel stundaði framhalds- nám í myndlist við Ecolé supérieure des arts dé- coratifs de Strasbourg í Frakklandi og lauk síðar meistaranámi frá Edinburgh College of Art í Skotlandi. Sýningin stendur út júní. Myndlist Uppruni og örlög ólíkra glerglasa Rakel Steinarsdóttir Sýningar hófust í gær í Bíó Paradís á frönsku kvikmynd- inni Un amour de jeunesse eft- ir Miu Hansen-Löve sem á vef- síðu kvikmyndahússins er sögð einn áhugaverðasti leikstjóri Frakka af yngri kynslóðinni. Myndin er frá árinu 2011 og segir í henni af Camillu, ákveð- inni og alvörugefinni 15 ára stúlku sem er ástfangin af sér eldri dreng, Sullivan. Hann heldur til S-Ameríku og er Camilla eyðilögð yfir því. Sullivan snýr síðan aftur átta árum síðar. Í aðalhlutverkum eru Lola Créton, Sebastian Urzendowsky og Magne-Håvard Brekke. Kvikmyndir Ástarsorg í Bíó Paradís Leikkonan Lola Créton Árni Matthíasson arnim@mbl.is Á sunnudag hefst í Hörpu tónlist- arhátíðin Reykjavík Midsummer Music, sem haldin er í fyrsta sinn. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Víkingur Heiðar Ólafsson píanó- leikari sem kemur fram ásamt fjölda tónlistarmanna á fernum tón- leikum hátíðarinnar frá 17. til 19. júní. Hátíðin hefst í Norðurljósasal 17. júní kl. 20 með tónleikum þar sem flutt verða verk eftir Maurice Ravel og Jóhannes Brahms, 18. júní verða tvennir tónleikar í Norðurljósasal, annars vegar hádegistónleikar kl. 12.15 helgaðir verkum Jóns Nordal og Þorkels Sigurbjörnssonar og hins vegar kvöldtónleikar kl. 20 þar sem flutt verða verk eftir Þórð Magnússon, Olivier Messiaen og Thomas Adés og loks verða tón- leikar í Eldborgarsal 19. júní kl. 21 þar sem flutt verða verk eftir Ser- gei Prokofiev, Daníel Bjarnason og György Ligeti og Megas flytur eig- in lög við undirleik Víkings Heiðars og í útsetningum Þórðar sonar hans fyrir strengjakvintett. Á hátíðinni koma fram auk Vík- ings og Megasar þau Ástríður Alda Sigurðardóttir, Einar Jóhannesson, Stefán Jón Bernharðsson, Sigrún Eðvaldsdóttir, Ari Þór Vilhjálms- son, Þórunn Ósk Marinósdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir, Sig- urgeir Agnarsson og Hávarður Tryggvason. Víkingur segir að sig hafi lengi dreymt um að geta haldið tónlistar- hátíð þar sem hann fengi að vera listrænn stjórnandi og þegar hann lék undir hjá Kristni Sigmundssyni í Eldborgarsal Hörpu fyrir rétt tæpu ári fannst honum sem loks væri kominn staður til að halda slíka hátíð. „Mér fannst ég þyrfti að grípa þessa hugmynd áður en ein- hver annar myndi gera það og þeg- ar ég fékk styrk úr Styrktarsjóði Samtaka um tónlistarhús (SUT) og Ruthar Hermanns þá varð þetta að veruleika,“ segir Víkingur, en af orðum hans er ljóst að Reykjavík Midsummer Music er nú haldin í fyrsta sinn af mörgum, því hún á að verða árleg. Reykjavík Midsummer Music snýst um kammertónlist þetta árið, en Víkingur segir að það sé ekki vísbending um að svo verði fram- vegis. „Mér fannst kammertónlist passa svo vel inn í Hörpu af því hún nýtur sín svo vel í góðum hljómi, en það segir samt ekki að kamm- ertónlist verði líka í aðalhlutverki á næstu hátíð. Við viljum hafa það opið, viljum helst að allar hátíðirnar verði ólíkar.“ Eitt verkanna sem flutt verða á hátíðinni er frá nítjándu öld, en hin öll frá þeirri tuttugustu og segja má að þau spanni hana. Víkingur segist hafa valið verkin með það í huga að úr yrðu dínamískir tón- leikar og litríkir, þar sem teflt væri saman andstæðum sem hafi þó sameiginlegan þráð. Þó að Víkingur sé listrænn stjórnandi hátíðarinnar leggur hann áherslu á að allir leggi mikið af mörkum og þá miklu meira en hægt sé að lýsa í stuttu máli. Lista- menn og aðstandendur hafi allir farið alla leið með allt, þetta sé ekki venjuleg hátíð heldur séu lista- mennirnir allir með í hátíðinni, en ekki bara í vinnunni. „Við höfum líka skráð allt mjög vel, tekið viðtöl við tónlistarmennina og skrásett undirbúninginn og munum líka skrásetja eftirleikinn,“ segir Vík- ingur og bendir á vefsetrið reykja- víkmidsummermusic.com, og Face- book-síðuna facebook.com/- ReykjavikMidsummerMusic. Litrík tónlistarhátíð í Hörpu  Reykjavík Mid- summer Music haldin í Hörpu Morgunblaðið/Kristinn Litrík Víkingur Heiðar Ólafsson er listrænn stjórnandi Reykjavík Midsummer Music sem hefst í Hörpu á sunnudag. Nú stendur yfir í Ráðhúsi Reykja- víkur sýning á ljósmyndum Helga Skúlason- ar. Hann fór að taka fuglamynd- ir tíu ára gamall og tók síðan myndir á náms- árunum, en fékkst síðan ekki við ljósmyndun að ráði fyrr en um mitt ár 2009 að hann tók upp þráð- inn að nýju. Hann hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í sam- sýningum og unnið til verðlauna í samkeppnum blaða og ljósmynd- ara. Hann hefur lagt áherslu á það sem hann kallar „öðruvísi fugla- myndir“. Meginþema sýning- arinnar er stemningar af Tjörninni á myndum af fuglum og fólki. Fuglar og fólk Ljósmyndarinn Helgi Skúlason. við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og lauk píanókennara- og einleik- araprófi árið 1993 frá Tónlistar- skólanum í Reykjavík og naut þar leiðsagnar Jónasar Ingimund- arsonar. Ingunn hefur sótt einka- tíma og námskeið erlendis. Hún kennir við Tónlistarskóla Kópa- vogs, Tónlistarskólann í Reykja- vík og Tónlistarskóla Hafnar- fjarðar og tekur virkan þátt í íslensku tónlistarlífi og hefur m.a. leikið með Camerarctica, Sinfón- íuhljómsveit áhugamanna, komið fram í tónleikaröðinni 15:15 og tekið þátt í tónleikum Kammer- sveitar Reykjavíkur. Ingunn er meðlimur í Notus-tríóinu og leik- ur reglulega með Gretu Guðna- dóttur fiðluleikara. Stofutónleikaröð Gljúfrasteins hófst í byrjun mánaðarins og stendur út ágúst. Á næstu tón- leikum, sem haldnir verða sunnu- daginn 17. júní klukkan 16, flytja Hanna Björk Guðjónsdóttir og Ingunn H. Hauksdóttir sönglög í djassútgáfu. Hanna Björk útskrifaðist frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 1992, stundaði síðan framhalds- nám í Lundúnum og var tvo vetur í námi við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún hefur komið víða fram sem einsöngvari, þó einkum við kirkjulegar athafnir og sem einsöngvari með kórum. Hún hef- ur jafnframt verið fastameðlimur í Kór Íslensku óperunnar. Ingunn Hildur nam píanóleik Djössuð sönglög á stofutónleikum  Hanna Björk Guðjónsdóttir og Ingunn H. Hauksdóttir koma fram á Gljúfrasteini Stofutónleikar Hanna Björk Guðjónsdóttir og Ingunn H. Hauksdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.