Morgunblaðið - 14.06.2012, Síða 35

Morgunblaðið - 14.06.2012, Síða 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljómsveitin Botnleðja hefur legið í dvala í ein sjö ár, aðdáendum sínum til ónota en snýr nú loks aftur og heldur tónleika á Gamla Gauknum á föstudaginn, 15. júní, kl. 23 og á laugardaginn, 16. júní, kl. 21. Hljóm- sveitina skipa þeir Heiðar Örn Kristjánsson, Ragnar Páll Steinsson og Haraldur Freyr Gíslason en þeir Heiðar og Haraldur eru einnig í hljómsveitinni Pollapönk sem glatt hefur börn og foreldra í ein sex ár með hressilegum slögurum, líflegri sviðsframkomu og skemmtilegum skífum. Neistinn kviknaði á XMAS 2011 Blaðamaður ræddi við Heiðar í gær og spurði hann hver ástæðan væri fyrir endurkomu Botnleðju. „Við vorum beðnir að spila á styrkt- artónleikum í fyrra fyrir Hermann Fannar Valgarðsson sem lést fyrir aldur fram, mikill vinur okkar og þáðum það. Þá kviknaði bara á ein- hverjum neista og menn fóru að hugsa þetta aðeins lengra,“ segir Heiðar. Tónleikarnir báru yfirskrift- ina XMAS 2011 og rann allur ágóði af miðasölu í sjóð sem stofnaður var í minningu Hermanns. -Þið höfðuð þá ekki æft í mörg ár? „Ekki neitt, ekki nokkurn skap- aðan hlut,“ svarar Heiðar. Þeir Har- aldur hafi þó „pollast“ heilmikið með Pollapönki, haldið sér þannig við. -Aðdáendur ykkar hafa greinilega beðið eftir þessu, það seldist hratt upp á tónleikana á laugardagskvöld- inu og aukatónleikum var í snarhasti bætt við. „Já, ég hef alveg fundið fyrir áhuga og pressu síðastliðin ár, við verið beðnir um að spila og svona en við höfum alltaf sagt hart nei við því öllu saman.“ Spurður að því hvort hljómsveitin muni flytja einhver ný lög á tónleik- unum segir Heiðar svo ekki vera. „Þetta verður bara „best of“, við för- um yfir plöturnar okkar fimm og tökum bestu lögin af þeim öllum,“ segir Heiðar. Þeir Haraldur og Ragnar séu búnir að æfa stíft fyrir tónleikana. „Við erum ekkert að djóka með þetta, það á að gera þetta eins vel og hægt er.“ -En er á áætlun hjá ykkur að semja lög eða taka upp plötu? „Nei, það hefur ekkert verið rætt og ekkert verið ákveðið,“ segir Heið- ar. Þó sé ekki hægt að útiloka neitt. Mynddiskur með Pollapönki? -Hvað er að frétta af Pollapönki? „Það er mestmegnis mikið spilerí en við ætlum að halda áfram, gera eitthvað skemmtilegt en það er ekk- ert búið að negla það niður. Þetta er svona að skýrast, hvert verður næsta skref hjá Pollapönki. Það verður eitthvað stórskemmtilegt.“ -Kannski platan Enn og aftur meira Pollapönk? „Já, eða hugsanlega mynddiskur. Menn eru að viðra ýmsar hugmynd- ir.“ -Hvers konar mynddiskur? „Bara svona músík, ég veit það ekki,“ segir Heiðar leyndardóms- fullur að lokum. „Við erum ekkert að djóka með þetta“  Hljómsveitin Botnleðja heldur tónleika eftir áralangt hlé Morgunblaðið/Ásdís Hressir Botnleðja árið 2000 þegar fjórða hljómplata hennar, Douglas Dakota, kom út. Síðasta platan, Iceland National Park, kom út árið 2003. Söngleikurinn Company verður sýndur í Háskólabíói í kvöld kl. 20. Company er eftir Stephen Sond- heim og hefur unnið til bandarísku leiklistarverðlaunanna Tony. Með aðalhlutverk fara þekktir leikarar úr bandarískum sjónvarpsþáttum: Neil Patrick Harris úr gamanþátt- unum How I Meet Your Mother, Christina Hendricks úr Mad Men, Jon Cryer úr Two And A Half Men, Patti LuPone úr 30 Rock, Martha Plimpton úr The Good Wife og Stephen Colbert, stjarna grín- fréttaþátta á Comedy Central sem heita eftir honum. Í Company segir af Robert, piparsveini sem vill ekki skuld- binda sig, fimm vinahjónum hans og þremur kærustum. Söngleik- urinn er framleiddur af New York fílharmóníunni og fluttur í Avery Fisher Hall í New York. Hann var fyrst settur á svið á Broadway árið 1970. Hann verður sýndur í þetta eina skipti í Háskólabíói. Söngleikurinn Company sýndur í Háskólabíói Sjónvarpsstjarna Neil Patrick Harris. AFP www.falkinn.is ...sem þola álagið! TRAUSTAR VÖRUR... Raftæknivörur Mótorvarrofar og spólurofar Það borgar sig að nota það besta! E i n n t v e i r o g þ r í r 3 1 .3 0 1 Skynjarar Töfluskápar Hraðabreytar Öryggisliðar Aflrofar Iðntölvur th or ri@ 12 og 3. is /3 1. 31 3 Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið) Fös 15/6 kl. 19:30 Mið 20/6 kl. 19:30 AUKASÝN. Fös 22/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30 Lau 23/6 kl. 19:30 Allra síð.sýn. Níu Grímutilnefningar! Allra síðasta sýning 23. júní. Dagleiðin langa (Kassinn) Lau 16/6 kl. 19:30 Allra síð.sýn. Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Allra síðasta sýning 16. júní. Afmælisveislan (Kassinn) Lau 1/9 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30 Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu. Gamli maðurinn og hafið (Kúlan) Fim 14/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012 Hringurinn - athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins (Kassinn) Fös 22/6 kl. 19:30 Aeðins þessi eina sýning! Vesalingarnir HHHHH og 9 grímutilnefningar - SÍÐUSTU SÝNINGAR! Sinfóníuhljómsveit Íslands Örfá sæti laus Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is » 528 5050 Tónleikakynning í dag fim. 14.06. kl. 18.30 í Eldborg Árni Heimir Ingólfsson kynnir verkin á tónleikum kvöldsins í tali og tónum. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Stjórnandi: Ilan Volkov Einsöngvari: Christine Schäfer Jón Nordal: Adagio Alban Berg: Altenberg-Lieder W.A. Mozart: Non mi dir, úr Don Giovanni og Misera, dove son, K. 369 Franz Schubert: Ófullgerða sinfónían Mozart og Schäfer Í kvöld fim. 14.06. kl. 19:30 Forsala á alla viðburði í Eymundsson Græni Hatturinn Akureyri sími 461 4646 / 864 5758 Fimmtudagur 14.júní Cheek Mountain Thief Tónleikar kl. 21:00 Föstudagur 15.júní Langi Seli og Skuggarnir Tónleikar kl. 22:00 Laugardagur 16.júní Helgi og Hljóðfæraleikararnir Tónleikar kl. 23:00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.