Morgunblaðið - 14.06.2012, Page 37

Morgunblaðið - 14.06.2012, Page 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 Sigyn Jónsdóttir sigyn@mbl.is Tónlistarkonan Kristín Björk Kristjánsdóttir, betur þekkt sem Kira Kira, gaf á dögunum út breið- skífuna Feathermagnetik. „Þegar þessi plata fór að krauma með mér var mjög skýrt fyrir mér hvað ég vildi heyra,“ segir Kristín um tilurð plötunnar. „Það fyrsta sem kom til mín var að mig langaði til að gera tónlist sem væri hlaðin sprengi- krafti og brothætt um leið, odd- hvöss og hugrökk en líka mjög fín- gerð,“ útskýrir hún en tónlistin á Feathermagnetik er einmitt fín- gerð og kraftmikil í senn. Sólskini böðuð fjöður Á plötunni má finna lagið „Fjaðurmagnea“ sem kemst kannski næst því að vera titillag hennar. Aðspurð segir Kristín ekki hafa skapað ákveðna persónu með þessu nafni en útilokar ekkert í þeim efnum. „Kannski er ég Fjað- urmagnea, kannski er Gyða Valtýs- dóttir Fjaðurmagnea,“ segir Krist- ín og á þá við sellóleikarann Gyðu Valtýsdóttur sem spilar á plötunni. „Hún er mjög fjaðurmögnuð,“ útskýrir Kristín. „Þegar ég hafði samband við hana til að spila á selló í laginu „Fjaðurmagnea“ hlustaði hún á það sem komið var og sagði: „Þetta er mjög fallegt, það eina sem vantar er pínulítill sólargeisli sem skín í gegnum fjöð- ur. Það ætla ég að gera.“ Það var nákvæmlega það sem hún gerði,“ segir Kristín og lofar sellóleik Gyðu. „Annars er verk Elínar Hansdóttur sem prýðir plötu- umslagið einn stóri innblásturinn að titli plötunnar.“ Hyggur ekki á dúndurbíltúr Kira Kira hyggst fylgja Feather- magnetik eftir með tónleika- ferðalagi með stuttum pásum. „Ég fór í ansi brattar tónleikaferðir í kjölfar síðustu plötu minnar. Svo langaði mig að komast út úr því tempói, staldra aðeins við og hætta flækingnum. Þá fór Feathermagne- tik að verða til,“ segir hún og bætir við að það eigi ekki vel við sig að fara í langar tónleikaferðir. „Ég hef prófað að spila á 30 tónleikum í röð og slíkt passar mér ekkert sér- staklega vel. Núna ætla ég að kynna plötuna með hoppum hingað og þangað. Þetta eru mörg víðfeðm og fjaðurmögnuð ferðalög frekar en einn dúndurbíltúr,“ segir Krist- ín en framundan eru til dæmis tón- leikar í New York og Belgíu. „Ef maður hefur kost á því að gera þetta í styttri skreppitúrum þá finnst mér það koma út í fallegri tónlist og því að maður hefur meira að gefa. “ „Sólargeisli sem skín í gegnum fjöður“  Kira Kira gefur út breiðskífuna Feathermagnetik Ljósmynd/Antje Taiga Jandrig Skýrt „Þegar þessi plata fór að krauma með mér var mjög skýrt fyrir mér hvað ég vildi heyra,“ segir Kira Kira, um breiðskífuna Feathermagnetik. Hreyfing Umslag Feathermagnetik. kirakira.is Það er ánægjulegt þegar nýirrithöfundar stíga fram ogjafn fullmótaðir og SólveigPálsdóttir er í þessari glæpasögu. Í Leikaranum snýst sögurásin um dauðsfall eins ástsælasta leikara þjóðarinnar. Hann hnígur niður þeg- ar verið er að taka upp lokaatriði kvikmyndar og tökuliðið í kringum hann getur ekkert að gert. Í ljós kemur að andlát leikarans ber ekki að með eðli- legum hætti. Þá hefst spennandi atburðarás þar sem grafið er upp ýmislegt um fjöl- skyldulíf leik- arans sem virðist tengjast andláti hans. Alda, ung kona sem sér um leikmunina í myndinni, er ein aðal- persóna sögunnar enda eitt lykil- vitna. Alda er mjög heillandi per- sóna, sterk og raunsæ. Hún fær lesandann strax með sér í lið eins og lögreglumennina Guðgeir og Andr- és. Tvær hefðbundnar íslenskar löggur sem gaman væri að frétta meira af síðar. Persónusköpun Sólveigar er ein- staklega góð, persónurnar, stórar sem smáar, eru sannfærandi og gætu allar búið meðal okkar í sam- félaginu. Sólveig skrifar líka mjög góðan texta sem rennur auðveldlega ofan í lesandann. Sögufléttan er vel úthugsuð og ágætlega fersk af svona formúlu- glæpasögubókmenntum að vera. Tvennt skaut þó skökku við að mín- um dómi: óljós heimsókn lögreglu- manns til spákonu sem hefur þó mikla þýðingu í þræðinum og hvern- ig úrlausn fléttunnar var sett fram. Það stakk svolítið í stúf miðað við það sem á undan kom og lyktaði af því að höfundur hafi átt erfitt með að ljúka sögunni. En hvað sem því líður er Leikarinn vel gerð glæpasaga sem hélt mér spenntri alla leið til loka. Það er gaman að fá nýjan og ferskan höfund inn í íslensku glæpa- sagnakreðsuna og það ætti enginn að verða svikinn af því að lesa þetta fyrsta verk Sólveigar Pálsdóttur. Morgunblaðið/Styrmir Kári Frumraun Glæpasagan Leikarinn er fyrsta skáldsaga Sólveigar. Lipur lesning Skáldsaga Leikarinn bbbnn Eftir Sólveigu Pálsdóttur. Forlagið 2012. INGVELDUR GEIRSDÓTTIR BÆKUR ÚRVAL FATNAÐAR OG GJAFAVÖRU Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga frá 11-15 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646 JOHN CUSACK ER EDGAR ALLAN POE EMPIRE SPRENGHLÆGILEGMYND. „Scott ... tekst að skapa rafmagnaða stemningu í Prometheus“ -V.J.V., Svarthofdi.is - Roger Ebert FRÁBÆR RÓMANTÍSK GAMANMYND MILEY CYRUS DEMI MOORE EGILSHÖLL 12 12 12 12 10 12 10 16 16 16 16 VIP 12 12 L L L L L L L L L L L L ÁLFABAKKA KRINGLUNNI MADAGASCAR3 ÍSLTAL KL. 3:30 - 4 3D MADAGASCAR3 ÍSLTAL KL. 4 - 6 2D PROMETHEUS KL. 5:30 - 8 - 10:30 3D PROMETHEUS KL. 10 2D MADAGASCAR3 ENSTAL KL. 6 - 8 2D SNOWWHITE KL. 8 - 10:40 2D UNDRALAND IBBA ÍSLTALKL. 3:30 2D THEAVENGERS KL. 5:20 3D THERAVEN KL. 8 - 10:20 3D 12 L L L AKUREYRI 16 16 MADAGASCAR3 ÍSLTAL KL. 6 3D MADAGASCAR3 ENSTAL ÓTEXTUÐ KL. 8 3D RAVEN KL. 10 2D UNDRALAND IBBA ÍSLTAL KL. 6 2D LOL KL. 8 2D SAFE KL. 10 2D 12 16 16 KEFLAVÍK LMADAGASCAR3 ENSTAL ÓTEXTUÐ KL. 8 3D PROMETHEUS KL. 10 2D LOL KL. 8 2D SAFE KL. 10 2D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 3:40 - 5:50 3D MADAGASCAR3 ÓTEXTUÐM/ENSKU.TALIKL. 8 - 10:103D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 3:40 - 5:50 2D MADAGASCAR3M/ENSKU.TALIKL. 4 - 8 2D SNOWWHITE KL. 8 - 10:10 2D SNOWWHITE LUXUSVIP KL. 5:20 - 8 - 10:40 2D LOL KL. 3:40 - 5:50 - 8 2D THERAVEN KL. 10:40 2D THEDICTATOR KL. 6 - 8 - 10:10 2D THEAVENGERS KL. 10:10 2D UNDRALAND IBBAM/ÍSL.TALIKL. 3:30 2D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 5:50 - 8 3D MADAGASCAR3 ÓTXTM/ENSKU.TALIKL. 8 - 10:10 3D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 5:50 2D LOL KL. 10:10 2D THE LUCKYONE KL. 5:50 - 8 2D DARKSHADOWS KL. 10:10 2D SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI - SÝND Í 2D OG 3D TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.