Morgunblaðið - 24.07.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Dreymir þig nýtt eldhús!
Hjá þaulvönum starfsmönnum GKS færðu sérsmíðað eldhús
og allar innréttingar sem hugurinn girnist.
Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði
alla leið inn á þitt heimili.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Hapkido er í grunninnhernaðarlist, bardagalistog sjálfsvörn. Fyrstamarkmið er að verja
sjálfan sig, en leiðin sem við notum
til þess að verja okkur er þannig að
hreyfingarnar eru tígulegar og það
er oft stigið til hliðar og snúið þegar
tekist er á við andstæðinginn, í stað
þess að sparka eða kýla beint,“ segir
svartbeltingurinn Sigursteinn
Snorrason yfirþjálfari í hapkido á
Íslandi, sem er ný kóresk sjálfs-
varnarlist hér á landi. „Hapkido er
systuríþrott taekwondo og þetta
tvennt er að mörgu leyti svipað, all-
ar skipanir eru á kóresku og öll
högg og spörk eru nánast eins. En
þegar kemur að flóknari tækni og
meiri sjálfsvörn, þá fer hapkido
lengra og einbeitir sér að öndun og
hugleiðslu. Eins og taekwondo er
stundað í dag þá er það fyrst og
fremst bardagaíþrótt og ólympíu-
íþrótt, en hapkido er meira bardaga-
list,“ segir Sigursteinn og bætir við
að um sextíu milljónir í heiminum
æfi taekwondo en um fimm milljónir
æfa hapkido. „Fólk sem æfir hap-
kido er með aðeins öðruvísi hug-
arfar en það fólk sem æfir taek-
wondo. Í hapkido er mikið um fólk
sem hefur áður stundað taekwondo
og það sækir í meiri dýpt í listina
sjálfa og vill læra hlutina vel.“
Halda meiðslum í lágmarki
„Við sem æfum hapkido leggj-
um áherslu á að allir séu vinir og viti
hvaða afleiðingar það hefur sem við
gerum og reynum að halda
meiðslum í lágmarki. Þegar við
stundum hapkido þá viljum við
hreyfa okkur í hringi og halda góð-
um samhljóm við alla í kringum okk-
ur. Enda eru einkunnarorð hapkido
þrjú: hwa, won og yu. Hwan stendur
fyrir samhljóm og ef kemur upp
ágreiningsmál eða möguleg slags-
mál, þá viljum við leysa málin í sam-
hljóm og við viljum ekki nota of mik-
ið afl. Won stendur fyrir
hringhreyfingu, en við reynum að
snúa okkur frá árás með því að nota
hringhreyfingar í stað þess að
sparka beint eða kýla. Yu stendur
fyrir mýkt,“ segir Sigursteinn og
bætir við að aldurstakmark sé 16 ár
í hapkido.
Fer reglulega til Kóreu
Sigursteinn er nýfluttur heim
eftir að hafa búið í Kóreu um tíma
þar sem hann vann við að þjálfa ta-
ekwondo-nema. „En ég lærði og
æfði þar hapkido,“ segir Sigursteinn
sem fór fyrst til Kóreu þegar hann
var 19 ára, fyrir tuttugu árum síðan.
„Þá var ég að æfa taekwondo og að-
stæður á Íslandi í þeirri íþrótt voru
allt aðrar en þær eru núna. Þá var
enginn svartbeltingur hér og ég gat
fyrir vikið ekki tekið svart belti. Val-
ið stóð um að fara til Noregs í tvær
vikur eða til Kóreu. Ég ákvað að
taka þetta alla leið og flutti til Kóreu
og bjó þar í rúmt ár. Þar æfði ég
með landsliðinu og mörgum
þekktum háskólaliðum og nú síð-
ast var ég að vinna með kepp-
endur sem munu keppa á Ólymp-
íuleikunum. Ég fer alltaf öðru
hverju til Kóreu, allt frá vikuferð-
um upp í nokkurra mánaða ferðir,
eins og núna síðast,“ segir Sig-
ursteinn og bætir við að sá sem
kenndi honum taekwondo þegar
hann var ungur að byrja að æfa
hér heima, hafi notað til þess mjög
blandaða tækni. „Hann kenndi í
raun mjög mikið af hapkido-tækni,
en ég áttaði mig ekki á því fyrr en
ég kom til Kóreu. Ég hef alltaf
haft meiri áhuga á listrænu hlið-
inni í þessari íþrótt.“
Áhersla á heimspeki
og íhugun í hapkido
Allir eru vinir í hapkido og vita hvaða afleiðingar gjörðir þeirra hafa. Þar er lögð
áhersla á samhljóm, hringhreyfingar og mýkt. Hapkido er ný bardagalist hér á
landi sem á uppruna sinn í Kóreu og þar er farið dýpra í hlutina en gert er í
systuríþróttinni taekwondo.
Morgunblaðið/Eggert
Þjálfari Sigursteinn leiðbeinir um hvernig krækja skal og halda.
Þrenna Stundum geta brögðin verið fögur sjónrænt.
Á vefsíðunni með þetta skondna
nafn má finna ógrynni upplýsinga
um næringarinnihald flests þess
matar sem fólk gæti látið sér detta
í hug að nefna. Á síðunni er hægt
að halda matardagbók og hægt að
hafa hana eingöngu fyrir sig eða
leyfa öðrum notendum að fylgjast
með og skiptast á góðum ráðum.
Skrái maður matardagbók á síð-
unni er hægt að sjá nákvæmt nær-
ingarinnihald fæðunnar og sam-
anlagða kaloríuinntöku yfir daginn.
Eins hvernig mataræðið skiptist í
fitu, prótín og kolvetni. Ef þú vilt
forvitnast um hinar ýmsu fæðuteg-
undir og athuga hvort þú getir gert
enn betur, fá góðar uppskriftir og
ráð um hreyfingu þá er fatsecret-
.com tilvalin vefsíða. Sniðug fyrir
þá sem vilja fylgjast með mataræði
sínu og hreyfingu og taka málin í
sínar hendur.
Vefsíðan www.fatsecret.com
Morgunblaðið/Eggert
Hollusta Til að fylgjast vel með mataræðinu er sniðugt að halda matardagbók.
Sniðugt matarleyndarmál
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Fjallaskokk svokallað verður næst-
komandi fimmtudag, 26. júlí, en þá
verður gengið/skokkað/hlaupið frá
Grund í Vesturhópi yfir Vatnsnes-
fjallið og endað ofan í Kirkjuhvammi
á Hvammstanga. Þetta er um 12 km
leið og hækkun á milli 400-500
metrar. Gangan/skokkið/hlaupið er
keppni þar sem gildir að vera fyrstur
yfir fjallið, en að sjálfsögðu getur
hver og einn gert þetta eftir sínu
höfði, keppt við aðra, sjálfan sig eða
farið leiðina án þess að vera að
keppa yfirleitt. Aðalatriðið er að
vera með og hafa ánægju af þessu.
Búið er að stika leiðina og inn á
vefsíðunni hlaup.is má sjá jpg kort
af leiðinni og nálgast allar nánari
upplýsingar um þátttöku og skrán-
ingu.
Endilega…
…takið þátt í fjallaskokki
Morgunblaðið/Kristinn
Fjallaskokk Gengið, skokkað eða hlaupið allt eftir eigin höfði.