Morgunblaðið - 24.07.2012, Page 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala
Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja
eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5, 105 Rvk
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
Nefkvef, hnerri og kláði í nefi
eru helstu einkenni frjókornaofnæmis
Nýjung Sinose 100% náttúrulegt efni
sem úðað er í nef og kemur af stað öflugum hnerra
sem hjálpar til við að hreinsa ofnæmisvaka úr nefi en
í leiðinni róar það og ver með áframhaldandi notkun.
Sinose er þrívirk blanda sem hreinsar,
róar og ver. Hentar einnig þeim sem þjást
af stífluðu nefi og nef- og kinnholubólgum.
Hentar öllum frá 12 mánaða aldri, á meðgöngu og meðan
á brjóstagjöf stendur. Slævir ekki, engin kemísk íblöndunarefni.
Ef það virkar ekki, þá má skila því innan 30 daga,
munið að geyma kvittunina!
Andaðu léttar og njóttu sumarsins með Sinose
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
30daga
ánægjutrygging
Frekari upplýsingar www.gengurvel.is
Þorsteinn Sch. Thor-
steinsson ritar grein í
Morgunblaðið þ.
20.7.2012 þar sem hann
telur bóluefni vera
hina mestu skaðvalda
og einnig sakar hann
sóttvarnalækni um að
halda upplýsingum um
alvarlegar aukaverk-
anir bólusetninga frá
almenningi. Þorsteinn
hefur margoft áður birt þessar ásak-
anir í fjölmiðlum og þeim iðulega
verið hafnað með málefnalegum rök-
um af sóttvarnalækni en allt kemur
fyrir ekki, enn á ný er komið fram
með sömu rangfærslurnar og áður.
Innihalda bóluefni eitur?
Þorsteinn bendir réttilega á að
ýmsar hættur fyrir heilsu manna
leynist í umhverfinu en helsta hætt-
an að hans mati eru eiturefni sem
finnast í bóluefnum eins og alumin-
ium phosphate/hydroxide, kvika-
silfur, formaldehyde og önnur efni.
Máli sínu til stuðnings vitnar hann í
ýmsar greinar í viðurkenndum tíma-
ritum. Eins og svo oft áður þá vitnar
Þorsteinn hins vegar rangt í vís-
indagreinar og hans tilvitnanir
styðja á engan hátt hans fullyrðingar
um skaðsemi bólusetninga. Jafn-
framt er það rangt hjá Þorsteini að
bóluefni hér á landi innihaldi kvika-
silfur. Engin bóluefni hér á landi
innihalda kvikasilfurssambönd og
önnur efni sem Þorsteinn tiltekur
eru í svo litlu magni að þau valda
ekki skaða, það hafa fjölmargar
rannsóknir sýnt. Þorsteinn gleymir
hins vegar að tiltaka eina helstu heil-
brigðisógn sem leynist í umhverfinu
sem eru sýkingar sem bólusett er
gegn. Þessar sýkingar hafa lagt
milljónir manna að velli og valdið ör-
kuml hjá tugum milljóna einstak-
linga. Almennar bólusetningar hafa
hins vegar nánast þurrkað út þessar
sýkingar hér á landi en því miður
hefur það ekki gerst í löndum þar
sem bólusetningar eru ekki jafn al-
mennar og hér.
Árangur og aukaverkanir
bóluefna
Þorsteinn heldur því fram að sótt-
varnalæknir vilji leyna því að bólu-
setningar geti valdið aukaverkunum.
Þetta er alrangt eins og annað sem
fram kemur hjá Þorsteini því sótt-
varnalæknir hefur ætíð bent á að
bólusetningar geta valdið aukaverk-
unum en hins vegar eru alvarlegar
aukaverkanir afar sjaldséðar og geta
sést hjá u.þ.b. einum einstaklingi af
milljón bólusettum. Ávinningur bólu-
setninga er hins vegar margfalt
meiri en einhverra hluta vegna þá
kýs Þorsteinn ekki að nefna það.
Þorsteinn heldur því einnig fram að
svínainflúensufaraldurinn 2009/2010
hafi verið vægur og ekki þörf á beita
bólusetningu til að verjast faraldr-
inum. Máli sínu til stuðnings vitnar
hann í heilbrigðisráðherra Póllands.
Þorsteini hefði verið nær að vitna í
ummæli og viðtöl við lækna Lands-
spítalans þar sem fram kemur að
svínainflúensan var versti inflúensu-
faraldur sem geisað hefur hér á síð-
ustu árum. Um 200 einstaklingar
voru lagðir inn á sjúkrahús, um 20
einstaklingar þurftu á öndunarhjálp
að halda til lengri eða skemmri tíma
og staðfest dauðsföll sáust hjá tveim-
ur einstaklingum. Fullyrða má að al-
menn bólusetning í upphafi farald-
ursins hafi bjargað fjölda einstak-
linga frá alvarlegri sýkingu.
Upplýsingar um
bólusetningar á Íslandi
Þorsteinn ásakar sóttvarnalækni
fyrir að veita engar upplýsingar um
bólusetningar og bóluefni sem notuð
eru hér á landi. Þetta er einnig rangt
því sóttvarnalæknir gefur út bækl-
inga um bólusetningar hér á landi
sem dreift er á heilsugæslustöðvum
og nálgast má á heimasíðu Embættis
landlæknis (http://www.landlaekn-
ir.is/). Einnig hafa upplýsingar um
bólusetningar verið sendar í pósti
heim til foreldra og ítarlegar upplýs-
ingar veittar á heimasíðu Embættis
landlæknis um allt sem snertir bólu-
setningar þ.á m aukaverkanir. Þar
eru hins vegar ekki birtar þær rang-
færslur sem Þorsteinn heldur fram
og vill að sóttvarnalæknir birti.
Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa
ætíð leitast við að veita heilbrigðis-
þjónustu sem styðst við nýjustu og
bestu vísindarannsóknir sem völ er á
og fyrirkomulag bólusetninga hér á
landi byggir einmitt á bestu fyrir-
liggjandi vísindarannsóknum á bólu-
efnum og faraldsfræði sýkinga hér á
landi. Sóttvarnalæknir mun áfram
sem hingað til byggja sínar leiðbein-
ingar á gagnreyndum vísindarann-
sóknum en ekki órökstuddum full-
yrðingum og rangfærslum sem ekki
styðjast við neinar vísindarann-
sóknir. Frábær árangur bólusetn-
inga hér á landi og sú staðreynd að
almenn þátttaka í bólusetningum hér
á landi er með miklum ágætum er til
vitnis um að staðið hefur verið rétt að
fyrirkomulagi bólusetninga hér á
landi.
Rangfærslur um bólu-
setningar – endurtekið efni
Eftir Harald Briem
og Þórólf Guðnason
» Sóttvarnalæknir
mun áfram sem
hingað til byggja sínar
leiðbeiningar á gagn-
reyndum vísindarann-
sóknum en ekki órök-
studdum fullyrðingum
og rangfærslum sem
ekki styðjast við neinar
vísindarannsóknir.
Haraldur Briem
Haraldur Briem er sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason er yfirlæknir hjá
Embætti landlæknis.
Þórólfur Guðnason
Það þurfti þrjú bréf
frá Ríkisendurskoðun
til alþingismannsins
Árna Johnsen til að fá
þingmanninn til að
fara að landslögum
varðandi skil á bók-
haldsgögnum frá svo-
nefndu Þorláksbúð-
arfélagi. Félagið hefur
staðið fyrir kofabygg-
ingu við vegg dóm-
kirkjunnar í Skálholti
og fengið til verksins úr ríkissjóði 9,4
milljónir króna og 3,0 milljónir króna
frá Kirkjuráði, en það fé kemur einn-
ig frá íslenskum skattþegnum.
Samkvæmt lögum um bókhald nr.
145/1994 er Þorláksbúðarfélagið
bókhaldsskylt „og skal jafnframt
semja ársreikning fyrir hvert reikn-
ingsár innan sex mánaða frá lokum
þess“. Þessi lög braut félagið.
Fyrst skrifaði Ríkisendurskoðun
Árna Johnsen alþingismanni (sem
kallar sig Þorláksbúðarfélagið) bréf
18. janúar 2012. Ekkert svar. Aftur
skrifaði Ríkisendurskoðun þing-
manninum 14. febrúar. Enn ekkert
svar. Enn skrifaði Ríkisendurskoðun
þingmanninum 26. mars og voru þá
afrit send forseta Alþingis, fjár-
laganefnd og mennta- og menningar-
málaráðuneytinu. Allt er þegar
þrennt er. Daginn eftir brást þing-
maðurinn loks við og sagði að bók-
hald hefði „ekki verið fært vegna
fjárskorts“ , svo vitnað sé í bréf Rík-
isendurskoðunar. Því verður ekki
trúað að Ríkisendurskoðun eða Al-
þingi samþykki slíkan fyrirslátt sem
gott og gilt svar. Þá var þingmað-
urinn búinn að fá á þrettándu milljón
króna af fé almennings til óþurftar-
verksins.
Bréf Ríkisendurskoðunar til for-
seta Alþingis hefur nú verið birt á
vefnum og hlýtur forysta þingsins að
bregðast við því.
Í bréfinu kemur fram að óendur-
skoðaðir ársreikningar hins svo-
nefnda Þorláksbúðarfélags fyrir árin
2008, 2009, 2010 og 2911 hafi borist
Ríkisendurskoðun 1. júní sl. Þar
kemur einnig fram, svo vitnað sé í
bréf Ríkisendurskoðunar: „Að sögn
stjórnar félagsins á það einnig von á
reikningum upp á „nokkrar millj-
ónir“ vegna þegar unninna verka“.
Varla getur Ríkisendurskoðun tekið
þetta sem fullgilt svar um fjárreiður
félagsins og ráðstöfun fjármuna al-
mennings. Það kemur leikmanni á
óvart að Ríkisendurskoðun skuli
leggja áherslu á að bókhaldskönnun
gefi ekki tilefni til athugasemda.
Leikmaður hefði einmitt haldið að
þegar skrifa þarf þrjú bréf til að fá
forráðamenn Þorláksbúðarfélagsins
til að fara að lögum og síðan kemur
fram að félagið skuldar „nokkrar
milljónir“ sem hvergi koma fram í
bókhaldinu að þá gæfi það tilefni til
sérstakra athugasemda. Þetta mat
Ríkisendurskoðunar kemur á óvart.
Í bókhaldi félagsins kemur fram
að „aðrir“ styrktu félagið um eina
milljón króna árið 2010.
Mikið var fjallað um það
í fréttum á liðnu sumri
er Eimskip styrkti al-
þingismanninn Árna
Johnsen í undarlegum
grjótflutningum til
Vestmannaeyja þar sem
honum tókst ágætlega
að hafa fjölmiðla að fífl-
um. Sá sem þetta skrif-
ar hefur heimildir fyrir
því að Eimskip hafi
styrkt byggingu Þor-
láksbúðar um eina millj-
ón króna. Hvað segja eigendur Eim-
skips um það? Kannski voru þeir
ekki spurðir. Hjá Eimskip fást þær
upplýsingar einar að „það sé stefna
Eimskips að gera ekki grein fyrir
styrkjum til einstaklinga“. Það var
og – en Þorláksbúðarfélagið er ekki
einstaklingur. Það kallar sig að
minnsta kosti félag. Hvers vegna
ætti Eimskip ekki að viðurkenna að
hafa styrkt Þorláksbúðarfélagið eða
einstaklinginn Árna Johnsen um
eina milljón króna? Er hér gömul
launhyggja eða alkunn íslensk
frændhygli á ferð?
Tvívegis hefur Vilhjálmur Bjarna-
son lektor í blaðagreinum ( fyrst 30.
nóvember og svo 28. apríl 2012) beint
27 spurningum til Þorláksbúð-
arfélagsins, Árna Johnsen. Viðbrögð
hins þjóðkjörna fulltrúa á Alþingi Ís-
lendinga við spurningum Vilhjálms
eru: „Ég hef ekkert við Vilhjálm
Bjarnason að segja“. (Sjá Mbl. is 4.5.
2012) Almenningi kemur ekkert við
hvernig þingmaðurinn ráðstafar
fjármunum almennings!
Nú hefur sannast það sem fyrr var
sagt. Kofinn við kirkjuvegginn er
byggður á brotnum reglum og
ósannindum. Byggingarleyfi var þá
fyrst gefið út þegar kofinn var risinn
af grunni. Byggingarleyfið byggðist
á deiliskipulagi sem ekki var til og
þessvegna er öll þessi framkvæmd
lögleysa og með ólíkindum hvernig
embættismenn í stjórnsýslunni hafa
verið blekktir hver um annan þveran
til þess að leyfa kofabyggingu ofan á
friðlýstum fornminjum.
Það er aðeins ein leið fyrir kirkj-
una til að rétta sinn hlut í þessu leið-
indamáli og komast frá þessu því
með sæmilegum sóma. Hún er að
láta flytja kofann á minna áberandi
stað í Skálholti. Það þarf að gerast
sem fyrst. Lögbrot eiga ekki og
mega ekki líðast við kirkjuvegginn í
Skálholti. Brýnt er að friða Skál-
holtsstað fyrir frekari skemmdar-
verkum af þessu tagi í framtíðinni.
Allt er þegar
þrennt er í Skál-
holti – Lögbrot við
kirkjuvegginn
Eftir Eið Svanberg
Guðnason
Eiður Svanberg
Guðnason
»Nú hefur sannast
það sem fyrr var
sagt. Kofinn við kirkju-
vegginn er byggður á
brotnum reglum og
ósannindum.
Höfundur er áhugamaður
um velferð Skálholtsstaðar.