Kjarninn - 21.08.2014, Side 51
03/04 áLit
mun ánægðari, og fólk sem á miklu meira en þetta er hvort
sem er ekkert að verða hamingjusamara.
Ég veit að þetta hljómar dáldið eins og ég hafi verið að
kjammsa á útlensku nautakjöti af þannig áfergju að landslið
toxoplasma sé að skriðsynda í spaðmollunni minni, og ég
meina, hvernig færum við að því að ná þessari edómónísku
útópíu? Enginn skal örvænta, því þótt annað heilahvelið
mitt sé einfeldningslegur kattarheili (sem styður enn fremur
toxoplasmakenningu margra) sem vill bara klóra í sófa,
sofa og líða vel er hinn helmingurinn praktískur. Þeir vinna
mjög vel saman og eftirfarandi skilaboð er
frá þeim helmingi: Við spörum í heilbrigð-
iskerfinu með því að svo gott sem útrýma
stresstengdum sjúkdómum (fátækt fylgir
stressi). Við spörum í réttarkerfinu með því
að stórminnka innbrot og heimilisofbeldi
(fátækt fær fólk til að gera örvæntingarfulla
hluti). Við spörum í velferðarmálum, eða
í raun ekki, við breytum velferðarmálum,
við breytum öllu í velferðarmál. Og þá situr eftir, hvernig
minnkum við þessa fátækt?
Mín praktíska pæling snýst einfaldlega um þetta:
Gefum öllum ókeypis pening.
Ríkið borgar þér fyrir að vera manneskja, enda er það
ekkert auðvelt hlutskipti. Allir fá það sem kallast skilyrðis-
laus grunnframfærsla, sem væri einhver 200.000 þúsund
kjell, eða ég veit ekki, ég er ekki vísindamaður eða hver
sem það er sem fattar tölur, ég er bara heimspekingur sem
útvarpar bestu hugmynd síðan einhverjum datt í hug að
tungumál væri betri leið til að miðla merkingu en að tjá hana
í gegnum dans (sem ætti þó alltaf að vera fyrsti valkostur
í samskiptum fólks). Og ef fólk vill eiga meira, þá fær það
sér bara smá hliðardjobb, lágmarkslaunadjobb kemur fólki
mjög hátt í þá upphæð sem þarf til að hafa ekki áhyggjur.
Mér finnst í raun ótrúlegt að Framsókn sé ekki löngu búin
að lofa þessu. Þetta er til dæmis miklu meiri peningur fyrir
miklu meira fólk og um leið miklu sanngjarnara en nokkurn
„Það næsta sem
ég hef komist því
að semja svona
frasa er líklega
Frelsi er að kúka
með opnar dyr.“