Kjarninn - 21.08.2014, Síða 51

Kjarninn - 21.08.2014, Síða 51
03/04 áLit mun ánægðari, og fólk sem á miklu meira en þetta er hvort sem er ekkert að verða hamingjusamara. Ég veit að þetta hljómar dáldið eins og ég hafi verið að kjammsa á útlensku nautakjöti af þannig áfergju að landslið toxoplasma sé að skriðsynda í spaðmollunni minni, og ég meina, hvernig færum við að því að ná þessari edómónísku útópíu? Enginn skal örvænta, því þótt annað heilahvelið mitt sé einfeldningslegur kattarheili (sem styður enn fremur toxoplasmakenningu margra) sem vill bara klóra í sófa, sofa og líða vel er hinn helmingurinn praktískur. Þeir vinna mjög vel saman og eftirfarandi skilaboð er frá þeim helmingi: Við spörum í heilbrigð- iskerfinu með því að svo gott sem útrýma stresstengdum sjúkdómum (fátækt fylgir stressi). Við spörum í réttarkerfinu með því að stórminnka innbrot og heimilisofbeldi (fátækt fær fólk til að gera örvæntingarfulla hluti). Við spörum í velferðarmálum, eða í raun ekki, við breytum velferðarmálum, við breytum öllu í velferðarmál. Og þá situr eftir, hvernig minnkum við þessa fátækt? Mín praktíska pæling snýst einfaldlega um þetta: Gefum öllum ókeypis pening. Ríkið borgar þér fyrir að vera manneskja, enda er það ekkert auðvelt hlutskipti. Allir fá það sem kallast skilyrðis- laus grunnframfærsla, sem væri einhver 200.000 þúsund kjell, eða ég veit ekki, ég er ekki vísindamaður eða hver sem það er sem fattar tölur, ég er bara heimspekingur sem útvarpar bestu hugmynd síðan einhverjum datt í hug að tungumál væri betri leið til að miðla merkingu en að tjá hana í gegnum dans (sem ætti þó alltaf að vera fyrsti valkostur í samskiptum fólks). Og ef fólk vill eiga meira, þá fær það sér bara smá hliðardjobb, lágmarkslaunadjobb kemur fólki mjög hátt í þá upphæð sem þarf til að hafa ekki áhyggjur. Mér finnst í raun ótrúlegt að Framsókn sé ekki löngu búin að lofa þessu. Þetta er til dæmis miklu meiri peningur fyrir miklu meira fólk og um leið miklu sanngjarnara en nokkurn „Það næsta sem ég hef komist því að semja svona frasa er líklega Frelsi er að kúka með opnar dyr.“

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.