Kjarninn - 11.09.2014, Blaðsíða 59
04/06 Karolina fund
bæði í textunum og tónlistinni sem hægt var að vinna með í
útsetningunum, í flutningnum, leikgerðinni og ljósunum.
Ingrid: Þetta er menningarfur sem okkur langar að draga
enn frekar fram í dagsljósið og nú í nýjum og ferskum
búningi Hjartar Ingva.
Hvernig datt ykkur í hug að
fara þessa leið, að hópfjármagna
verkefnið?
Melkorka: Það var í rauninni
raunhæfasta leiðin. Við höfum
sótt um alls konar styrki en fengið
fá já. Karolina Fund er bara alveg
frábært fyrirbæri, nýlega fóru
heildaráheit í gegnum vefinn yfir
300.000 evrur.
Ingrid: Sammála. Og það eru
frábærir aðilar sem standa á bak-
við það sem eru endalaust tilbúnir
að ausa úr reynslubanka sínum.
Melkorka: Hugsjónafólk.
Nú eruð þið enn í miðju söfnunar-
ferlinu, hver sýnist ykkur vera munur-
inn á því að fjármagna verkefni með
hópfjármögnun og til dæmis að sækja um styrki fyrir því?
Ingrid: Þetta er mun meiri vinna.
Melkorka: Flest okkar kláruðu nám fyrir svolitlu síðan
og þekkjum vel hvernig það er að reyna að búa til verkefni
og láta þau verða að veruleika, ef maður stendur utan við
ákveðnar stofnanir. Það er meira en að segja það. En Karolina
Fund hjálpar með slíkt.
Þetta er kannski meiri vinna, eða öðruvísi vinna. Stór
hluti vinnunar er í raun markaðssetning sem maður þyrfti
líka að vinna ef maður fengi styrk. Svo finnst mér reyndar
líka á einhvern hátt skemmtilegra að gera þetta svona.
Eins og í okkar tilfelli, þá erum við að safna fyrir