Morgunblaðið - 20.08.2012, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 0. Á G Ú S T 2 0 1 2
Stofnað 1913 193. tölublað 100. árgangur
Græddu á
gulli á
Grand Hótel
mán. og þri. frá kl.
11:00 til 19:00
Upplýsingar og tímapantanir,
Sverrir s. 661 7000
sverrir@kaupumgull.is
ANÍTA EIN HELSTA
VONARSTJARNAN
Í FRJÁLSUM
MARGIR Á
FERÐINNI Í
BÆNUM
SVEPPIR Í
NÁGRENNI
BORGAR
HÁTÍÐ 9, 26-27 SVEPPATÍNSLA 10YFIRBURÐIR ÍÞRÓTTIR
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Talið er að eftirspurn eftir flugferð-
um Icelandair til Íslands muni drag-
ast saman um 5-7% á næsta ári, frá
því sem áður var áætlað, ef fyrirhug-
uð hækkun stjórnvalda á virðisauka-
skatti á hótelgistingu úr 7% í 25,5%
verður að veruleika.
Komufarþegum gæti í heild sinni
fækkað um 40 þúsund frá fyrri áætl-
unum. Við það gætu afleidd áhrif
orðið 15 milljörðum kr. minni gjald-
eyristekjur. Til viðbótar er talið að
starfsfólki Icelandair Group muni
fækka á næsta ári í stað fjölgunar
sem áður hafði verið gert ráð fyrir, ef
skattahækkunin nær fram að ganga.
Þetta er meðal niðurstaðna stjórn-
enda Icelandair Group á áhrifum
virðisaukaskattshækkunar á rekstur
samstæðunnar. Telja þeir að hækk-
unin muni hafa neikvæðar afleiðing-
ar fyrir félagið og ferðaþjónustuna í
heild hér á landi.
„Aukin skattheimta á fyrirtæki í
ferðaþjónustu mun ennfremur hafa
bein og neikvæð áhrif á samkeppn-
ishæfni Íslands sem ferðamanna-
lands og draga úr veltu og arðsemi
starfseminnar. Til skamms tíma
munu fyrirtækin sjálf bera skatta-
hækkunina að mestu leyti, þar sem
ekki er hægt að fleyta henni beint út
í verðlag,“ segir Björgólfur Jóhanns-
son, forstjóri Icelandair Group.
Fækkun um 40 þúsund
Stjórnendur Icelandair telja fyrirhugaða hækkun á vsk. af hótelgistingu hafa
neikvæðar afleiðingar Komufarþegum til landsins og starfsfólki muni fækka
MNeikvæðar afleiðingar »4
Áætlanir í endurskoðun
» Icelandair Group þarf að
endurskoða rekstraráætlanir
sínar fyrir árið 2013.
» Farþegum Icelandair ein-
göngu gæti fækkað um 15-20
þúsund. Á þessu ári áætlar fé-
lagið að flytja um 380 þúsund
erlenda farþega til Íslands.
Þau tímamót urðu í gær að hitinn á landinu fór hvergi upp fyrir 20 gráður á
Celsíus, en hæst náði hitinn á Brúsastöðum, þar sem hann fór upp í 19,9 gráð-
ur. Lauk þar með 23 daga runu þar sem hiti fór einhvers staðar á landinu yfir
20 stig. Veðurspáin næstu daga bendir til þess að nú fari að kólna í veðri með
austanátt og rigningu sunnan- og austanlands. Þær systur Ilanita og Milagr-
os létu það ekki á sig fá og kíktu í berjamó við Rauðavatn í gær. sgs@mbl.is
Þriggja vikna runu lokið með yfir 20 stiga hita
Morgunblaðið/Eggert
Meirihlutaviðræður Framsókn-
arflokksins, G-lista og Samfylk-
ingar í Grindavík hafa staðið yfir í
nokkurn tíma. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Bryndísi Gunnlaugs-
dóttur, oddvita Framsóknarflokks-
ins í Grindavík, hafa viðræður
flokkanna gengið vel. Bjóst hún í
gærkvöldi við því að nýr meirihluti
yrði kynntur í dag, en nýlega slitn-
aði upp úr meirihlutasamstarfi
Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks. Bryndís segir nýjan meiri-
hluta í Grindavík ekki einungis snú-
ast um málefni heldur einnig um
breytt vinnubrögð.
Nýr meirihluti
kynntur í dag
Einstaklingar á vanskilaskrá hafa
aldrei verið fleiri samkvæmt upplýs-
ingum frá Creditinfo en í byrjun
ágúst voru alls 26.666 manns í alvar-
legum vanskilum. Á sama tíma hefur
greiðsluvilji skuldara minnkað.
Skipt eftir landshlutum eru van-
skilin hlutfallslega mest á Suður-
nesjum, eða hjá 16% íbúa eldri en 18
ára. Á höfuðborgarsvæðinu er hlut-
fallið tæp 10% og svipað á Suður-
landi.
Samúel Ásgeir White, forstöðu-
maður fyrirtækjasviðs Creditinfo,
segir greiðsluvilja almennings hafa
minnkað og kemur það heim og sam-
an við það sem fram kom hjá Unni
Gunnarsdóttur, forstjóra Fjármála-
eftirlitsins, í síðasta Viðskiptablaði
Morgunblaðsins.
Hann segir vanskil einstaklinga
hafa aukist jafnt og þétt. Þau séu í
raun og veru í sögulegu hámarki sé
litið aftur til ársins 2006. Samúel
segir þetta athyglisvert í ljósi þess
að atvinnuleysi hafi minnkað hlut-
fallslega, hagvöxtur aukist og launa-
vísitalan hækkað. „Ég held að marg-
ir séu að bíða og vona að skuldir
verði felldar niður eða lækkaðar,“
segir Samúel. bjb@mbl.is »14
Vanskil í
hámarki
Morgunblaðið/Heiddi
Skuldir Um 9% Íslendinga 18 ára og
eldri eru á vanskilaskrá.
Hlutfallslega mest
vanskil á Suðurnesjum
„Þetta óvænta atriði var landkynning
fyrir milljón dollara,“ segir Frosti
Logason, annar umsjónarmanna
Harmageddon á útvarpsstöðinni
X-inu 977, um óvæntan tónlistarflutn-
ing bandarísku söngkonunnar Patti
Smith með stórleikaranum Russell
Crowe á Menningarnótt um helgina.
Myndbönd áhorfenda af þessu
óvænta atriði hafa farið eins og eldur
í sinu um netið.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun Smith flytja titillag
kvikmyndarinnar Noah sem nú er
verið að taka upp hérlendis.
Söngkonan flutti sitt þekktasta lag,
„Because the night“, með Crowe, sem
leikur Nóa sjálfan í myndinni. Hann
hélt þrenna tónleika í Reykjavík á
laugardagskvöldið ásamt félaga sín-
um, Alan Thomas Doyle. Fyrst í
Hörpu, þá á tónleikum X-ins 977 á
Bar 11 og loks á Kex hosteli. Tróð
Patti Smith upp með þeim félögum á
Bar 11 og Kex og var gerður góður
rómur að flutningnum. »27
Patti Smith með titillag Noah
Söngurinn með Crowe „milljón dollara landkynning“
Morgunblaðið/María Ólafsdóttir
Óvænt Patti syngur á Bar 11.