Morgunblaðið - 20.08.2012, Page 6
Akureyringar héldu í gær danskan sunnudag í Inn-
bænum þar sem íbúar buðu upp á kaffi og bakkelsi.
Hugmyndin er sótt í gamla ljósmynd sem tekin var í
garðveislu hjá Oddi C. Thorarensen apótekara. Á
myndinni sýnir Hörður Geirsson ljósmyndari áhorf-
endum hvernig á að framkalla myndir á votplötu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Íbúar í Innbænum, elsta hluta Akureyrar, minntust danskra hefða frá fyrri tíð
Danskur sunnudagur á Akureyri
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2012
ERT ÞÚ MEÐ VERKI?
Stoðkerfislausnir hefjast 3. september nk.
Hentar þeim sem eru að glíma við einkenni
frá stoðkerfi og vilja læra á sjálfan sig og
finna sín mörk í hreyfingu.
• Mán., mið. og fös. kl. 15:00 og 16:30.
• Mat og ráðgjöf sjúkraþjálfara ásamt
kennslu í réttri líkamsbeitingu
• Fyrirlestrar um verki, svefntruflanir og heilbrigðan lífstíl
• 8 vikna námskeið
• Verð: 39.800 kr. (19.900 kr. á mánuði)
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
„Allir verkir hafa minnkað. Ég var áður alltaf svo
þreytt og alltaf að leggja mig. Mér finnst satt að
segja að allir sem eru að finna til verkja ættu að
koma hingað. Hreyfingin hefur líka áhrif á alla
starfssemi líkamans og svo er þetta gott fyrir
sálina. Mér líður miklu betur og ég er ákveðin í
að halda áfram.“
Sólveig Guðmundsdóttir
Þjálfari: María Jónsdóttir sjúkraþjálfari
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Grunnskólar Reykjavíkur verða settir á miðvikudaginn
en þá streyma í skólana nærri því 14 þúsund grunn-
skólanemar. „Á miðvikudaginn koma börnin og hitta
kennarann sinn og fá stundaskrá og síðan hefst kennsla
eftir stundaskrá strax daginn eftir eða á fimmtudaginn,“
segir Yngvi Hagalínsson, skólastjóri í Hamraskóla.
Nemendum í grunnskólum Reykjavíkur hefur fækkað
töluvert undanfarin ár en alls hefur þeim fækkað um rétt
rúm 2.000 á örfáum árum. „Þegar mest var voru um 400
nemendur í skólanum hjá okkur en þeir voru 210 í fyrra
og verða 140 í ár,“ segir Yngvi en fækkunina í ár má að
miklum hluta rekja til sameiningar unglingadeilda í Graf-
avogi í einn skóla. Helgi Árnason, skólastjóri í Rima-
skóla, segir að nemendafjöldi í Rimaskóla hafi haldist
nokkuð jafn á sama tíma og fækkað hafi töluvert í öðrum
skólum. „Hverfið hér í kringum skólann hefur stækkað
nokkuð á undanförun árum og það hjálpar til.“ Rimaskóli
verður settur á miðvikudaginn eins og aðrir grunnskólar
borgarinnar og segir Helgi að vel hafi gengið að manna
allar stöður og undirbúa skólaárið.
Sesselja Ingibjörg Jósefsdóttir, formaður félags skóla-
stjórnenda í Reykjavík og skólastjóri í Hagaskóla, segist
ekki vita hvað veldur fækkun nemenda í Reykjavík. „Eft-
ir fækkun í nokkur ár hefur nemendum verið að fjölga í
Hagaskóla aftur,“ segir Ingibjörg sem er bjartsýn á að
skólaárið verið gott og farsælt. „Hagskóli er að halda upp
á 55 ára afmæli sitt í vetur og þetta verður gott skólaár.“
Færri í skólum borgarinnar
Grunnskólanemendum hefur fækkað um nærri 2.000 á átta árum í Reykjavík
Skólarnir að hefjast
» Grunnskólar borgarinnar
verða settir á miðvikudaginn.
» 14.000 nemendur stunda
nám í skólunum.
» Grunnskólanemum hefur
fækkað um nærri 2.000 á síð-
ustu átta árum í Reykjavík.
» Vel hefur gengið að manna
grunnskóla borgarinnar.
Töluvert hefur
borið á reið-
hjólaþjófnaði í
Reykjanesbæ að
undanförnu. Í
síðustu viku bár-
ust lögreglu þar í
bæ þrjár tilkynn-
ingar um að hjól-
um hefði verið
stolið. Í slíkum tilfellum er gerð
lögregluskýrsla en erfitt getur
reynst að upplýsa slíka þjófnaði
nema upplýsingar um málið liggi
fyrir, sem sjaldnast er tilfellið. Að
sögn lögreglunnar í Reykjanesbæ
skilja þjófarnir hjólin eftir á víða-
vangi í mörgum tilfellum og eru
geymslur hennar yfirfullar af hjól-
um sem eigendur hafa ekki vitjað.
Fullar geymslur af
stolnum hjólum í
Reykjanesbæ
Tilkynnt var um
níu líkamsárásir
til lögreglunn-
armilli tvö og sex
í fyrrinótt í kjöl-
far Menningar-
nætur, allar á
miðborgarsvæð-
inu. Á sama tíma
í fyrra var ein-
ungis tilkynnt
um sjö líkams-
árásir. Í flestum tilfellum var um
pústra að ræða en þó var einn flutt-
ur meðvitundarlaus á sjúkrahús
eftir líkamsárás á mótum Lauga-
vegar og Klapparstígs. Árásarmað-
urinn gisti fangageymslur lögregl-
unnar. Samkvæmt dagbók lögreglu
tókst margsinnis að stilla til friðar
og koma í veg fyrir frekari vand-
ræði. Ölvun fólks var svipuð og í
fyrra, að sögn lögreglu. Stefán Ei-
ríksson lögreglustjóri segir lög-
gæslu hafa verið öfluga í miðborg-
inni. „Miðað við þann fjölda sem var
í miðbænum á Menningarnótt þá
tókst mjög vel til að nærri öllu
leyti,“ segir Stefán en lögreglan og
aðrir viðbraðgsaðilar voru með að-
stöðu við menntamálaráðuneytið.
„Menningarnótt er eitt stærsta
verkefni lögreglunnar á hverju ári
og góður undirbúningur allra skil-
aði sér,“ segir Stefán.
Níu líkamsárásir á
Menningarnótt
Fólksfjöldi Margir
voru í miðbænum.
Anna Lilja Þórisdóttir
Vilhjálmur A. Kjartansson
Norska strandgæslan krefst þess að
Eimskip greiði 85 milljónir norskra
króna, 1,7 milljarða íslenskra króna,
vegna strands Goðafoss í Óslóarfirði
í febrúar í fyrra samkvæmt frétt á
vefsíðu norska blaðsins Aftenposten.
Ólafur Willam Hand, upplýsinga-
fulltrúi Eimskips, segir að hugsan-
legar kröfur norsku strandgæslunn-
ar muni ekki hafa nein áhrif á
rekstur Eimskips. „Við höfum ekki
enn fengið neina kröfu í hendurnar
frá norsku strandgæslunni. En mið-
að við það sem við erum að lesa í fjöl-
miðlum þá er þetta upphæð sem við
erum vel tryggðir fyrir og ætti því
ekki að hafa nein áhrif á rekstur fé-
lagsins. En þangað til við fáum ein-
hverja kröfu í hendurnar er erfitt
fyrir mig að svara nokkru um þetta
mál,“ segir Ólafur.
Í fréttinni á vefsíðu Aftenposten
segir talsmaður norsku strandgæsl-
unnar, Johan Marius Ly, að upphæð
kröfunnar samsvari þeim kostnaði
sem hlaust af strandinu.
Goðafoss var á leið til Helsingja-
borgar í Svíþjóð frá Fredrikstad í
Noregi þegar óhappið varð þann 17.
febrúar í fyrra. Mikil olía lak úr skip-
inu og var óttast um áhrif þess á líf-
ríkið, því þurfti til umfangsmikið
hreinsunarstarf eftir slysið. Nú vilja
norsk yfirvöld að Eimskip greiði
kostnaðinn. „Allt í sambandi við
þetta strand hefur verið í þessu
venjulega ferli, sem fer af stað þegar
eitthvað svona gerist. Trygginga-
félög, við og yfirvöld vinnum saman í
þessu máli og það hefur ekkert nýtt
borist til okkar,“ segir Ólafur.
Norðmenn vilja
fá 1,7 milljarða
Eimskip er
með tryggingar
fyrir kröfunni
Ljósmynd/Norska strandgæslan
Strand Goðafoss strandaði í Óslóar-
firði í febrúar í fyrra.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í borg-
arráði Reykjavíkur hafa lagt til að
reglum um vínveitingaleyfi verði
breytt á þann veg að þær komi ekki í
veg fyrir að dvalarheimili aldraðra
geti fengið leyfi til að selja áfengi.
Dvalarheimili aldraðra eru flest í
hverfum borgarinnar sem eru íbúð-
arsvæði samkvæmt aðalskipulagi en
málsmeðferðarreglur borgarráðs
um veitinga- og gististaði heimila
ekki rekstur vínveitingahúsa í íbúð-
arhverfum. Fulltrúarnir segja að svo
virðist sem til greina komi að breyta
aðalskipulagi en það geti tekið ár,
jafnvel lengri tíma.
Tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins gerir ráð fyrir að
málsmeðferðarreglum borgarráðs
um veitinga- og gististaði verði
breytt og borgarráð fái heimild til að
veita undanþágu frá þeirri megin-
reglu að ekki sé heimilt að veita
áfengisveitingastöðum rekstrarleyfi
á íbúðarsvæðum þegar um dval-
arheimili aldraðra sem staðsett er
innan íbúðarsvæðis ræðir.
Fái heimild
til að veita
undanþágu
Álykta um vín-
sölu á elliheimilum