Morgunblaðið - 20.08.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2012
Hefð er fyrir því hjá Vinstri-hreyfingunni – grænu fram-
boði að halda flokksráðsfund síð-
sumars. Þetta er vel til fundið hjá
flokknum enda hefur fundurinn ver-
ið vettvangur flokks-
manna til skoð-
anaskipta og þannig
orðið forystumönn-
um hans veganesti
inn í stjórnmál vetr-
arins.
Til að fundurinngæti náð þessu markmiði sínu
hefur á dagskrá hans verið liðurinn
„Almennar stjórnmálaumræður“ og
eins og nafnið gefur til kynna hefur
hugmyndin verið sú að orðið væri
frjálst.
En nú er allt breytt og á dagskráflokksráðsfundarins um næstu
helgi er ekki að finna þennan lið. Al-
mennar stjórnmálaumræður munu
samkvæmt dagskrá ekki eiga sér
stað á þessum flokksráðsfundi
Vinstri grænna.
Orðið er ekki lengur frjálst.
Þessi breyting hentar vel for-manni sem er að einangrast í
flokki sem hann hefur stórskaðað
með svikum við grundvallarstefnu-
mál.
Það er eflaust auðveldara aðmæta flokksmönnum sem talað
hafa og jafnvel ályktað gegn foryst-
unni ef hægt er að halda þeim frá
ræðupúltinu.
Auðvitað langar Steingrím J. ekkiað lenda í löngum umræðum
um ESB við illa svikna félaga sína.
Vandinn leysist þó ekki með þvíað banna umræður heldur með
því að láta af svikunum.
Steingrímur J.
Sigfússon
Orðið ekki
lengur frjálst
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 19.8., kl. 18.00
Reykjavík 14 skýjað
Bolungarvík 13 skýjað
Akureyri 17 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 11 skýjað
Vestmannaeyjar 11 skýjað
Nuuk 8 léttskýjað
Þórshöfn 12 skúrir
Ósló 25 heiðskírt
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 17 skýjað
Lúxemborg 35 heiðskírt
Brussel 32 heiðskírt
Dublin 17 skúrir
Glasgow 17 skúrir
London 28 léttskýjað
París 36 heiðskírt
Amsterdam 27 heiðskírt
Hamborg 33 heiðskírt
Berlín 35 heiðskírt
Vín 31 heiðskírt
Moskva 22 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 35 heiðskírt
Barcelona 28 heiðskírt
Mallorca 30 heiðskírt
Róm 32 heiðskírt
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 18 léttskýjað
Montreal 22 léttskýjað
New York 22 heiðskírt
Chicago 22 skýjað
Orlando 31 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
20. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:37 21:26
ÍSAFJÖRÐUR 5:30 21:43
SIGLUFJÖRÐUR 5:12 21:26
DJÚPIVOGUR 5:03 20:59
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Hrútaþuklarar á öllum aldri öttu
kappi á Sauðfjársetrinu á Strönd-
um á laugardaginn en þá fór fram
árlegt landsmót í hrútaþukli. Góð
stemning var á mótinu þar sem
rúmlega 200 manns voru sam-
ankomnir. Keppt var í flokki óvanra
og vanra þuklara en í þeim fyrri
vann Jón Haukur Vignisson og í
seinni Kristján Albertsson, bóndi á
Melum í Árneshreppi. „Hingað
koma ráðunautar og nota alla nýj-
ustu tækni til að meta hrútana og
gefa þeim stig. Þuklararnir þukla
síðan hrútana með höndunum og
eiga að reyna að komast sem næst
stigagjöf ráðunautanna. Þeir sem
keppa í flokki óvanra raða líka
hrútunum í röð og þeir þurfa að
rökstyðja af hverju. Það getur verið
mjög skemmtilegt að heyra eftir
hverju þuklararnir gefa stig. Það
getur t.d. farið eftir því hvaða hrút-
ur jarmar hæst eða hvort þeir ná
augnsambandi við hann. Eitt árið
náði einn að raða hrútunum í rétta
röð og lýsti þeim öllum í bundnu
máli. Það var mjög skemmtilegt,“
segir Ester Sigfúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sauðfjárseturs á
Ströndum. Þuklararnir eru karlar
og konur á öllum aldri og í flokki
óvanra eru einnig börn. Meðal
verðlauna má nefna hrútasæði frá
Sæðingarmiðstöð Vesturlands sem
Ester segir að hafi fallið vel í kram-
ið hjá bændum. Mótið er hápunktur
sumarsins hjá Sauðfjársetrinu og
var óvenjuveglegt í ár í tilefni af tíu
ára starfsafmæli setursins.
Hrútaþuklarar
sýna færni sína
Landsmót í hrútaþukli Góð stemn-
ing á Sauðfjársetrinu á Ströndum
Ljósmyndir/Sauðfjársetrið
Sigurvegarar Jón Haukur Vignisson, sjö ára, vann í flokki óvanra þuklara.
Þukl Stigagjöfin fer eftir ýmsu.