Morgunblaðið - 20.08.2012, Page 12
Hollenska bjórveldið Heineken
hefur hækkað boð sitt í asíska
bruggveldið Asia Pacific Brewer-
ies. Býður Heineken nú 4,5 millj-
arða Bandaríkjadala fyrir samtals
tæplega 40% hlut í fyrirtækinu.
Er þetta 6% hækkun frá fyrra til-
boði. Fyrir á Heineken allstóran
skerf í asíska bruggrisanum og
yrði með kaupunum eigandi bróð-
urhluta fyrirtækisins.
Hækkað tilboðið kemur í kjöl-
far þess að taílenski millj-
arðamæringurinn Charoen Siri-
vadhanabhakdi gerði á dögunum
til boð í 7,3% hlut í Acia Pacific
Breweries. Taílenski auðjöfurinn
á fyrir stórt drykkjarfram-
leiðsluveldi, s.s. Thai Bev og
Pepsiverksmiðju Taílands.
Asia Pacific Breweries hefur
höfuðstöðvar sínar í Singapúr og
framleiðir m.a. Tiger Beer,
Heineken og Tui Beer. Brugg-
verksmiðjur eru staðsettar í
fjölda landa, s.s Kína, Víetnam,
Nýja-Sjálandi, Indlandi og Malas-
íu.
Að sögn Wall Street Journal
myndu kaupin styrkja mjög stöðu
Heineken á blómlegum Asíumark-
aði, og það á tíma þegar sölutölur
eru nokkuð rólegar á heimamörk-
uðum í Evrópu. ai@mbl.is
AFP
Drykkir Asia Pacific Breweries gerir út frá Singapúr. Fyrirtækið framleiðir
m.a. Tiger Beer, sem er einn söluhæsti bjórinn á Asíumarkaði.
Heineken reynir að
styrkja sig í Asíu
Hækka boð í framleiðanda Tiger Beer
Bandaríska sjónvarpsstöðin CBS
höfðaði í maí mál á hendur keppi-
naut sínum ABC og sakaði um
höfundarréttarbrot.
Málið varðar sjónvarpsþættina
Glass House sem CBS taldi vera
eftirhermu af veruleikaþættinum
Big Brother. Á föstudag lagði
CBS síðan inn beiðni um að málið
yrði dregið til baka, en sendi um
leið tilkynningu á fjölmiðla um að
sjónvarpsstöðin áskildi sér réttinn
til að taka málið upp að nýju.
Að sögn Wall Street Journal er
Glass House æði keimlíkt Big
Brother. Í báðum þáttum er
fylgst með ókunnugu fólki sem
látið er deila heimili. Ýmsar
keppnir og kosningar eru haldnar
til að sjá hver endist lengst í hús-
inu og ber þannig sigur úr být-
um.
CBS segir þættina bæði apa eft-
ir söguþræði Big Brother, þemum
þáttanna, yfirbragði og stemn-
ingu, takti og framvindu atburða.
ai@mbl.is
Apað eftir Big Brother?
CBS fellur frá málsókn á hendur ABC
Formúla Þáttakendur í Big Brot-
her-þáttum CBS stilla sér upp.
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2012
Aðalfundur fyrir árið 2011 hjá Ísfélagi
Vestmannaeyja hf. verður haldinn í Ásgarði við
Heimagötu 35 í Vestmannaeyjum, mánudaginn
27. ágúst 2012 og hefst kl. 13:00.
Dagskrá:
- Venjuleg aðalfundarstörf
- Tillaga stjórnar um breytingu á 1. mgr. 19. gr.
samþykkta félagsins sem felur í sér að ekki hvíli lengur
skylda á félaginu að stjórn sé skipuð fimm mönnum,
heldur skuli stjórn skipuð allt að fimm mönnum.
Stjórnin
AÐAL-
FUNDUR
Strandvegi 26 | 900 Vestmannaeyjum | s. 488 1100 | www.isfelag.is
Stórmarkaðir og aðrar stórar versl-
anir eiga nú í viðræðum við bresk
stjórnvöld um að slaka á ströngum
reglum um lengd afgreiðslutíma á
sunnudögum.
Verslunin Asda fer fyrir hópi fyr-
irtækja sem átta hafa reglulega
fundi með fulltrúum stjórnvalda um
málið.
Gildandi reglur í Wales og Eng-
landi takmarka mjög afgreiðslutíma
stórra smásöluaðila á sunnudögum
en undanþága var veitt frá reglunum
meðan Ólympíuleikarnir stóðu yfir,
með það að markmiði að örva versl-
un á þessum mikla annatíma.
Vilja halda áfram góðum hlut
Þykir lengdur afgreiðslutími hafa
gefist vel síðustu vikur og er það
hvatinn að þeim viðræðum sem nú
eru hafnar, að því er UKPA greinir
frá.
Afgreiðslutími stóru búðanna var
takmarkaður til að vernda minni
fjölskyldufyrirtæki fyrir samkeppni
við stórar keðjur. Verslanir sem eru
meira en u.þ.b. 280 fm að stærð fá
ekki að hafa opið lengur en sex tíma
á sunnudögum. Eins er óheimilt að
opna fyrir kl. 10 að morgni eða hafa
opið lengur en til 18 að kvöldi.
ai@mbl.is
Breskar búðir vilja
hafa opið lengur
Morgunblaðið/ÞÖK
Framboð Breskir neytendur hafa úr fáum kostum að velja ef kaupa þarf í
matinn seint á sunnudegi og neyðast til að fara til kaupmannsins á horninu.
Takmarkanir í
gildi til að vernda
minni verslanir
Bandarísk stjórnvöld hafa hafið rann-
sókn á mögulegum brotum Deutsche
Bank og annarra alþjóðlegra banka
vegna viðskipta sem tengjast Íran, Súd-
an og fleiri þjóðum sem um þessar
mundir eru undir alþjóðlegu viðskipta-
banni. New York Times greindi frá þessu
á laugardag.
Dómsmálaráðuneytið og saksóknari á
Manhattan hafa málið á sinni könnu en
grunur leikur á um að bandarísk útibú
hafi verið notuð til að miðla milljörðum
bandaríkjadala í viðskiptum tengdum Ír-
an.
Reuters hefur eftir talsmanni
Deutsche Bank að bankinn hafi árið 2007
ákveðið að stofna ekki til nýrra viðskipta
við aðila í löndum á borð við Íran, Sýr-
land, Súdan og Norður-Kóreu og binda
eins fljótt og lög leyfðu enda á öll yf-
irstandandi viðskipti bankans við þessi
svæði. ai@mbl.is
Deutsche Bank undir
smásjá vegna Íransviðskipta
AFP
Risi Turn Deutsche Bank í Þýskalandi. Saksóknari á Manhattan er
með bankann í sigtinu vegna meintra brota á viðskiptabanni.
Herða þarf á regluverkinu í kring-
um bankastarfsemi, hækka sektir
og mögulega færa stjórnvöldum og
Seðlabanka Bretlands úrræði til að
reka yfirmenn banka úr starfi.
Þetta er meðal niðurstaðna
skýrslu breskrar þingnefndar. Til-
efni skýrslunnar er Libor-hneyksl-
ið svokallaða, þar sem Barclays-
banki hefur verið í aðalhlutverki.
Wall Street Journal hefur eftir
Andrew Tyrie, formanni nefndar-
innar, að ef vinna eigi traust neyt-
enda og markaða á ný sé aðkall-
andi að bæta bæði hvernig bankar
eru reknir og í hvaða regluum-
hverfi þeir starfa.
Í skýrslunni kemur fram að ein-
staklingar innan Barclays hafi með
óeðlilegum hætti haft afskipti af
markaðsferlum, til að hagnast á
því persónulega. Skýrslan segir
háttsetta stjórnendur innan
Barclays hafa gefið fyrirmæli sem
höfðu það að markmiði að bjaga
upplýsingagjöf í Libor-kerfinu. Þá
segir skýrslan að ólíklegt sé að
Barclays sé eini bankinn sem hafi
viðhaft svipuð vinnubrögð.
ai@mbl.is
Vilja geta rekið
bankastjórnendur
Bresk þingnefnd kallar eftir strang-
ari löggjöf og víðtækari heimildum