Morgunblaðið - 20.08.2012, Page 27
Jet Black Joe Páll Rósinkrans og Gunnar Bjarni.
Harpa Margir klæddu sig sérstaklega í tilefni dagsins og hárliturinn var í takt við litbrigði jarðar.
Dans Margir brugðu undir sig betri fætinum og tóku létt salsaspor á Lækjartorgi.Gaman Jónas Sig. og Ritvélar framtíðar héldu uppi fjörinu og náðu vel til fólksins.
Gleði Boðið var upp á frítt knús í Bankastræti.
Góð brauð - betri heilsa
Handverk í 18 ár
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Opnunartími Dalvegi:
Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2012
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
„Patti Smith syngur titillag kvik-
myndarinnar Noah,“ segir Frosti
Logason, annar umsjónarmanna
Harmageddon á útvarpsstöðinni
Xinu 977, spurður um Íslandsdvöl
bandarísku söngkonunnar. Það má
með sanni segja að hún hafi stolið
senunni á Menningarnótt með ástr-
alska stórleikaranum Russell
Crowe, en hún tróð óvænt upp með
honum og Alan Doyle og flutti slag-
arann „Because the Night“ fyrir tón-
leikagesti Bar 11 á tónleikum Xins
977. Crowe hafði óskað eftir því að
halda tónleika á Íslandi og úr varð að
þeir félagar héldu þrenna tónleika.
„Aðstæður þarna fyrir þau voru
frábærar og ótrúlegt að sjá fólk raða
sér upp hvar sem það komst, t.d. í
bílastæðahúsinu fyrir ofan. Þetta er
landkynning fyrir milljón dollara,“
segir Frosti en myndbönd af flutn-
ingi þeirra Russells og Patti á Bar 11
og á Kex hosteli síðar um kvöldið svo
og flutningi Russells og Alans í
Hörpu fyrr um kvöldið hafa farið
eins og eldur í sinu um netið.
Ljósmynd/María Ólafsdóttir
Leynigestur Patti tekur hér lagið með þeim Russell og Alan.
Söngkonan Patti Smith
leynigestur Russells Crowes