SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Side 2

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Side 2
2 12. ágúst 2012 Við mælum með Stórtónleikar Moses Hightower verða haldnir næstkomandi fimmtudag klukkan 21:00 í Iðnó. Húsið verður þó opnað klukkustund áður og mun Ás- geir Trausti sjá um að hita mannskapinn upp. Sveitin er með þessu að fagna annarri plötu sinni, Annarri Mósebók, sem kom út fyrir skemmstu. Aðgangseyrir er litlar 2.000 krónur. Morgunblaðið/Ernir Útgáfutónleikar í Iðnó 17 … síðan eru liðin mörg ár Fertugsafmælis Brimklóar er minnst með viðhafnarútgáfu um þessar mundir. Björgvin Halldórsson rifjar upp árin með Brimkló. 28 Get ekki annað … Jóhannes Jónsson kaupmaður lætur engan bilbug á sér finna og hef- ur opnað nýja matvöruverslun, enda segist hann ekki geta hugsað sér neitt skemmtilegra en að starfa í matvörugeiranum. 32 Saga slökkviliðsins á vellinum Eldur: Saga Slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli er komin út. 36 Fann fjölda mynda … Teresa Smith segir merkilegt að upplifa hvað minning afa hennar, myndlistarmannsins W.G. Collingwoods, er sterk hér á landi. 40 Rétturinn til að elska Hörð barátta hefur verið háð fyrir mann- réttindum samkynhneigðra í heiminum. Um helgina gefst tækifæri til að gleðj- ast, virða og styðja. Lesbók 42 Fjölbreytni á djasshátíð Jazzhátíð Reykjavíkur verður haldin 18. ágúst til 1. september en há- tíðin er nú haldin í 23. skipti. 47 Fortíðinni má ekki gleyma Vigdís Finnbogadóttir var heiðursgestur á Olavsfestdagene í Noregi. Hún segir Íslendinga geta lært fjölmargt af nágrannaþjóð sinni. 24 Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson af mæðgunum Phoebe Jenkins og Sigrúnu Kjartansdóttur. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Árni Matthíasson, arnim@mbl.is, Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Krist- insdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir og Skapti Hallgrímsson 38 Ljósmynd/Pálmi Bjarnason Augnablikið Alltaf er verið að keppa við tímann. Þósvo stundum geti verið rólegt í tíðinniþá er alltaf eitthvert langtímamarkmiðsem liggur manni á herðum. Um síð- ustu helgi var þó heimsóttur staður þar sem vís- arnir á armbandsúrinu virtust færast hægar en annars staðar. Eftir að hafa hangið á rúmlega löglegum hraða á leiðinni norður var tekið hið heilaga stopp í Stað- arskála. Þar var margmenni og kliðurinn frá veit- ingasalnum náði inn á klósett þar sem undirrit- aður olnbogaði sig áfram í átt að pissuskálinni. Ljóst var að við vorum frekar sein svo gamli fjöl- skyldubíllinn fékk að tæta í sig malbikið á leiðinni að Árskógssandi þar sem ferjan Sævar beið þess að ferja okkur til Hríseyjar. Við spúsa mín þurftum nánast að stökkva af landgöngubrúnni og yfir í ferjuna þar sem skipstjórinn beið okkar yggldur, slíkur var hamagangurinn. „Hversu langan tíma tekur að fara út í ey?“ spurði ég hann móður til að rjúfa þögnina sem mér þótti eilítið óþægileg. „Svipað langan tíma og það tók þig að koma þér úr bílnum og út í bát,“ hvæsti maðurinn er hann rétti mér afritið af farmiðanum. Ég áttaði mig ekki á því hvort orðunum fylgdi spaug eða alvara svo ég hló vandræðalega. Skipstjóranum stökk ekki bros. Á örskotsstundu vorum við komin yfir Eyja- fjörðinn og út í Hrísey. Báturinn ældi okkur út, skipstjórinn slökkti á vélinni og kom sér burt. Eft- ir stóðum við á bryggjunni eins og yfirgefin af- kvæmi og hjúfruðum okkur hvort upp að öðru í köldu logninu. Gamall ljósastaur varpaði á okkur daufri ljósglætu og þögnin var algjör. Í fjarska tók að heyrast lágvært urr og í ljós komu tvær gular glyrnur sem fylgdust með okkur úr fjarlægð. Um stund velti ég því fyrir mér hvort við hefðum vakið eyjarskrímslið sem nú ætlaði að rífa okkur í sig fyrir að raska ró sinni. Í minning- unni tók ég mér stöðu fyrir framan heitmey mína. Skrímslið skreið löturhægt í áttina að okkur og urrið stigmagnaðist. Einhver sat á baki skepnunni og sigaði henni á okkur. Hríseyingurinn Sigmann var kominn að sækja okkur og föggur okkar á reiðskjótanum Ferguson, sem í raun var gamall traktor. Okkur var fagnað bróðurlega og tilkynnt að kaffi biði okkar á náttstaðnum, sem í raun var skúr sem áður hafði verið brúkaður til harðfisks- vinnslu. Ekki nóg með það heldur sýndi knapinn okkur þorsk sem hann hafði veitt skömmu áður, þetta voru tíðindin í Hrísey það kvöldið. Aftan á Ferguson var pallur fyrir farþega sem við komum okkur fyrir á áður en traktorinn lullaði af stað í átt að náttstaðnum þar sem þorskurinn var flakaður. Það var eins og að hlaupa á hunangsvegg að koma loks til eyjarinnar eftir allan þennan þeyt- ing. Andrúmsloftið var afslappað og svo virtist sem allt hreyfðist löturhægt í þessari ánægjulegu tímaleysu. Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is Ferguson stóð sig sem skyldi í Hrísey og flutti gesti á milli staða í samræmi við andrúmsloftið, á hraða snigils. Hríseyjarskrímslið Fatamarkaður Í tilefni Gay Pride munu nokkrar manneskjur efna til fatamarkaðar á skemmtistaðnum Faktorý. Að sögn er eitthvað í boði fyrir öll kyn en á markaðnum má meðal annars finna föt frá þekktum hönnuðum á borð við Alexander McQueen, Peter Jensen og Marc by Marc Jacobs. Græni hatturinn Á föstudag- inn koma sam- an tvær efni- legar hljómsveitir; Tilbury og Moses Hightower, og efna til tónleika á Græna hattinum á Akureyri. Báðar sveitir gáfu út plötu í sumar og lög þeirra hafa notið mikilla vinsælda. Fáðu þér góða mjólkurskvettu! www.ms.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.