SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Page 11
12. ágúst 2012 11
7:30 Vekjaraklukkan hringir og ég vippa mér
fram úr. Ef það er grátt yfir þá kúri ég kannski í
fjórar eða fimm mínútur áður en ég horfist í augu
við daginn. Dætur mínar eru í sumarfríi úr skól-
anum svo ég get leyft mér þann lúxus að vakna
hálftíma síðar en ég er vön. En brátt kemur haust-
ið og regnið og bíótíðin með og þá er það bara
harkan sjö núll núll.
8:03 Sú yngsta er komin á fætur og gægist á mig
þar sem ég stend í eldhúsinu með aðra höndina á
sleifinni og hina á lyklaborðinu. Grauturinn má
vitaskuld ekki bíða, en ekki heldur tölvupósturinn
sem mér barst um nóttina úr fjarlægu tímabelti.
Fyrr en varir erum við orðin fimm við morgun-
verðarborðið og tölvan fær að hvíla sig í augna-
blik.
9:00 Ég kem inn á skrifstofu í Tjarnargötunni.
Þar er hamagangurinn þegar hafinn, starfsfólkið
er í símtölum hingað og þangað um heiminn,
fingur lemja lyklaborð og maður heyrir bók-
staflega tölvupóstinn strjúkast við eyrað á leiðinni
yfir hafið. Það þarf að bóka kvikmyndir og heyra í
Iceland Express upp á að bóka flug fyrir gestina;
það þarf að raða niður dagskránni, ganga frá
samningum, horfa á og hafa skoðun á innsendum
myndum, slá inn í reiknivélina … Eins gott að hafa
hér í vinnu yfir 20 manna teymi, og oft er fjör því
starfsfólkið auk starfsnema og sjálfboðaliða kemur
alls staðar að úr heiminum en hér starfa m.a.
Finnar, Þjóðverjar, Frakkar, Spánverjar og Ung-
verjar í sátt og samlyndi við Íslendingana. Ég dæli
mér indælis Illy-kaffi í einn bolla og held áfram að
höggva úr tölvupóstsfjallinu sem bíður mín.
11:00 „App“ er víst það sem unga fólkið kallar
lítil forrit í snjallsímana. Við erum að þróa svoleið-
is fyrir hátíðina í haust með Símanum svo hingað
eru komnir grafískir hönnuðir og forritarar með
hundrað hugmyndir sem þarf að greiða úr. Mikið
er nú tæknin undursamleg!
12:17 Ég skýst út og fæ mér að borða á Dill í
Norræna húsinu. Ég hitti gamla vinkonu og við
erum sammála um að Reykjavík sé afskaplega fal-
leg frá þessu sjónarhorni.
13:00 Fundur með fólkinu hjá Center Hotels.
Við tyllum okkur upp á Panorama-barinn og ég
leyfi mér að speisa út í nokkrar sekúndur og dást
að útsýninu yfir Faxaflóann og Hörpu. Ég hálf-
öfunda gestina okkar yfir því að fá að gista hér og
punkta hjá mér á spássíuna að kannski sé hér vísir
að afmælisgjöf handa eiginmanninum.
14:50 Það bankar einn gulklæddur frá DHL
varfærnislega á hurðina hjá mér og réttir mér ein-
tak af þýskri mynd sem við höfum verið að bíða
eftir. Þessi fer kannski heim með gullna lundann?
17:33 Ljósið logar enn í nokkrum herbergjum
hér á Tjarnargötunni. Ég kveð þá sem eftir eru og
reyni að hreinsa hugann meðan ég geng heim-
leiðis gegnum Kvosina og eftir Vesturgötunni.
18:40 Kvöldmatur! Sambýlismaðurinn búinn
að búa út lasagne sem konurnar fjórar á heimilinu
eru sammála um að sé undursamlegt.
21:08 Við erum búin að ganga frá og það er
að komast ró á liðið svo ég bregð mér inn í stofu
og smelli þessari þýsku í tækið. Ótrúlegt hvað
þeir eru flinkir, Þjóðverjarnir. Ég sogast alveg
inn í frásögnina: Það steðjar ógn að gullfallegu
og skógi vöxnu sjávarþorpi norðarlega í Tyrk-
landi því að ríkisstjórnin ákvað að setja niður
stærsta ruslahaug landsins rétt fyrir ofan byggð-
ina. Hvílík endemis steypa! Aldrei hefði ég heyrt
af þessu nema það væri fyrir þessa frábæru
mynd.
22:00 Ég rétt næ seinni fréttum á RÚV. Maður
verður nú að fylgjast með.
23:40 Þar sem ég er að fara í gegnum listann
yfir staðfestar myndir man ég skyndilega eftir
bréfi til ráðuneytisins sem er enn óritað. Ég ákveð
að senda nokkrar hugmyndir á samstarfsfólkið
áður en ég gleymi því aftur. Eftir að ég ýti á
„send“ tek ég eftir því að það er allt dottið í dúna-
logn. Ég kíki fram og sé að sambýlingurinn er
sofnaður með nefið ofan í bók. Hann rumskar
þegar ég ýti aðeins við honum og við búum okkur
undir háttinn.
Dagur í lífi Hrannar Marinósdóttur, stjórnanda RIFF
Hrönn Marinósdóttir leyfði sér að speisa út í nokkrar sekúndur og dást að útsýninu yfir Faxaflóann og Hörpu.
Morgunblaðið/Kristinn
Hálföfundar gestina
Sú gamla og gráa kenn-ing, að máttur sé rétturog ráði jafnan úrslitum,birtist í ýmsum mynd-
um. Til dæmis sagði bandaríski
kvikmyndaleikstjórinn Robert
Altman eitt sinn: „Hvað er sér-
trúarsöfnuður? Of fámennur
hópur til að teljast minni-
hlutahópur.“
Á meðan gyðingar höfðu ekki
eigið ríki, var hið forna mál
þeirra, hebreska, „móðurmál án
föðurlands“, eins og Aðalbjörg
Sigurðardóttir komst að orði.
Þegar gyðingar stofnuðu ríki,
ákváðu þeir að nota þar hebr-
esku, en gengu fram hjá jiddísku,
sem margir gyðingar í Mið- og
Austur-Evrópu höfðu talað, en
hún er blendingur úr þýsku,
hebresku og arameísku. Þá sagði
bandaríski málfræðingurinn Max
Weinreich af nokkurri beiskju á
jiddísku: „A shprakh iz a diyalekt
mit an armey un a flot.“ (Tungu-
mál er mállýska, sem styðst við
her og flota.) Nú er jiddískan nær
dauð, og ólíkt latínunni, sem
einnig er dauð, á hún engin af-
kvæmi.
Íslenska er enn lifandi mál,
þótt hún styðjist hvorki við her
né flota. Tilveruréttur hennar
hvílir ekki á mætti okkar, heldur í
senn á vilja okkar til að halda
uppi sjálfstæðu tungumáli og við-
urkenningu grannþjóðanna á
sérstöðu okkar. Þeirrar við-
urkenningar njóta til dæmis ekki
Kúrdar, sem eru sérstök þjóð með
sérstakt tungumál, en ekkert ríki,
enda dreifast þeir um fjallahéruð
Tyrklands, Írans og Íraks.
Íslendingar eiga sér ekki góðs
von í heimi, sem stjórnast af lög-
máli franska greifans Bussy-
Rabutins: „Comme vous savez,
Dieu est d’ordinaire pour les gros
escadrons contre les petits.“
(Eins og þér vitið, er Guð jafnan
hliðhollur fjölmennum her-
sveitum gegn fámennum.) Er
þetta ekki lögmál ríkisins?
Íslendingar verða heldur að
treysta hinum orðsnjalla heim-
spekingi Voltaire: „Dieu n’est
pas pour les gros bataillons, mais
pour ceux qui tirent le mieux.“
(Guð er ekki hliðhollur fjöl-
mennustu hersveitunum, heldur
bestu skyttunum.) Er þetta ekki
lögmál markaðarins?
Athugasemdir og leiðréttingar vel
þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Móðurmál án föðurlands
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 28 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187