SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Side 12

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Side 12
12 12. ágúst 2012 Miðvikudagur Jónína Ben Krepp- unni er lokið, meiri- hluti þjóðarinnar horfði á handbolta í 2 tíma. Ungverjar voru betri en ömurleg dómgæsla og ég er með dómarapróf í handbolta. Ar- on Pálmason er stjarna leiksins að mínu mati. Takk strákar og þið er- uð snillingar. Örn Bárður Jónsson Vefsíðan mín þar sem ég birti prédik- anir, líkræður o.þ.h. sýndi fyrr í vikunni að yfir 190.000 flettingar höfðu átt sér stað. Takk fyrir það! Árni Snævarr Klak- inn á morgunn 9. ágúst – verð til 15. en svo er það Sánkti Pétursborg í viku... Fimmtudagur Baldur Kristjánsson Auglysingaposter fyr- ir #austurfyrirfjall a leidinni i loftid. Syn- ingin opnar rumlega 20:00 a Skolavordustig i kvold. Fésbók vikunnar flett Eins og getið er hér til hliðar fór Steve Jobs, forðum forstjóri Apple, háðuleg- um orðum um 7" spjaldtölvur, en al- menningur virðist kæra sig kollóttan um hrakspár hans því Nexus 7 seldist upp á nokkrum dögum. Vissulega er það engin trygging fyrir framtíðar- vinsældum, en einnig má líta til þess hve Amazon hefur gengið vel með sína 7" tölvu, Amazon Kindle Fire, og einnig hefur Nook frá Barnes & Noble gengið vel. Sem stendur er allt sjötommufjörið vestan hafs og ekki ljóst hvenær þessar þrjár tölvur, Nexus 7, Kindle Fire og Nook, verða almennt fáan- legar í Evrópu. Sennilega kemur Kindle Fire reyndar seint eða aldrei því sú græja er svo tengd streym- isþjónustu Amazon á kvikmyndum og tónlist og óljóst hvað Barnes & Noble mun gera með sína spjaldtölvu, Nook tablet. Nexus 7 fékkst um tíma í Bretlandi og seldist upp á mettíma. Þar kostaði 16 GB útgáfan sem nemur um 37.000 kr., en á meðan hún var fáanleg vest- an hafs kostaði hún um 30.000 kr. Sjötommufjör Hvenær birtist Nexus 7 í Evrópu? Þótt nafn Google sé jafnan nefnt í sömu andrá og Nexus 7 sér taívanska fyrirtækið Asus um að framleiða græjuna. Nex- us 7 er 19,8x12x1 sm að stærð og vegur 340 grömm. Hægt er að fá tækið með 8 eða 16 GB minni, en vinnsluminni er 1 GB. 16 GB-gerðin seldist upp samdægurs og 8 GB- gerðin í framhaldi af því. Steve Jobs sálugi sagði að ekkert vit væri í 7" skjám, en á Nexus 7 er þó 7 1280x800 díla skjár með baklýsingu. Upp- lausn á tommu er 216 dílar, en til samanburðar þá er 264 díla upplausn á tommu á nýja iPad- inum (Retina-skjár). Glerið er hert Corning-gler. Framan á tækinu er 1,2 millj- ón díla myndavél, en engin myndavél á bakinu. GPS er innbyggt og einnig hreyfisk- ynjari, jafnvægisskynjari og segulsviðsskynjari. Raf- hlaðan á að duga í allt að níu tíma bíómyndagláp, tíu tíma netvafstur eða tíu tíma lest- ur. Biðtími er 300 tímar. Ör- gjörvinn er fjögurra kjarna Tegra 3. Stýrikerfið Android 4,1 Jelly Bean. Tækið notar WiFi, ekkert 3G enn sem komið er í það minnsta, en með því spara menn náttúrlega rafnmagn, þótt nota- gildið sé eðlilega minna. Blátönn er inn- byggð, Micro USB-tengi, hljóðnemi og tengi fyrir heyrnartól. Nexus 7 styður það sem kallast Android Bean eða NFC, en hægt er að miðla gögnum milli slíkra tækja með því að láta þau snertast. Google tekur slaginn Hingað til hefur enginn skákað Apple og iPad á spjaldtölvumarkaði, en þar hitnar brátt í kolunum; Microsoft sendir frá sér slíka tölvu í haust og Google hristi heldur en ekki upp í mönnum með Nexus 7 fyrir stuttu. Græjur Árni Matthíasson arnim@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.