SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Side 18

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Side 18
18 12. ágúst 2012 þeir félagar á útvarpsstöðinni Kananum, sem var útvarp bandaríska hersins á Keflavík- urflugvelli, en þá því afbrigði sem Björgvin kallar kántrírokk. „Þegar við stofnuðum Brimkló vorum við mikið að hlusta á bönd eins og New Riders of the Purple Sage og Birds, Crosby Stills og Nash, Neil Young og Bob Dylan, á West Coast-kántrírokk. Áhrifin voru einna mest frá Gram Parsons og við fórum því í rokkdeildina, vorum svo hrifnir af spiliríinu og fannst textarnir svo góðir og laglínurnar. Það var líka mikið raddað í söngnum og þess vegna finnst mér svo gaman að heyra í hljómsveitum eins og Árstíðum í dag sem er að taka þessi rödduðu lög og líka margar nýjar bandarískar og breskar hljómsveitir. Það var enginn að spila þannig músík hér heima og mörgum fannst kántrímúsík hálfhallærisleg, sveitatónlist með þann stimpil að hún væri ofsa- lega streit. Við vorum því fyrsta kántrírokksveitin,“ segir Björg- vin. Þegar ég nefni það að það sé önnur hver hljómsveit að spila kántrí í dag, til að mynda Helgi Björns og Reiðmenn vindanna, Klaufar og fleiri kántrísveitir, segir Björgvin: „Núna þykir þetta hip og við viljum eiga eitt- hvað í því.“ Gekk vel frá byrjun Eins og getið er spilaði Brimkló fyrst opinberlega í nóvember 1972, en Björgvin segir að fyrstu árin hafi þeir byrjað hvert ball á tónleikum; „fyrri hlutinn á hverju balli var alltaf unplugged tónleikar og svo var sett í sam- band og ballið byrjaði“. Á efnis- skránni voru erlend lög eftir hina og þessa, en þeir fóru líka fljót- lega að semja eigin lög á kántríl- ínunni og þeir ákváðu líka strax að hafa texta á íslensku. „Ég var að klambra saman lögum en Addi var duglegri og Hannes Jón var líka duglegur. Þetta gekk vel hjá okkur frá byrjun og við vor- um að spila á fullu út 1972 og 1973, en 1974 var ég farinn að tala við Hljómana og fór með þeim út til Massachusetts að taka upp plötuna Hljómar 74 og í fram- haldi af því fór ég í Change og með þeim til Bretlands.“ Hannes Jón leysti Björgvin af í söngnum en sagði síðan skilið við sveitina og Jónas R. Jónsson kom í hans stað og einnig gekk Pétur Pét- ursson píanóleikari til liðs við sveitina. Síðsumars 1975 var ákveðið að taka upp stóra plötu, en þeir Jónas, Sigurjón og Pétur hættu í sveitinni. Bjarki Tryggvason bassaleikari gekk þá í Brimkló og einnig Guðmundur Benedikts- son, píanóleikari og söngvari, og Þórður Árnason og í kjölfarið var nafninu breytt í Mexíkó. Brimklóarævintýrinu var þó ekki lokið því 1976 byrjuðu Arnar, Ragnar og Hannes Jón á upp- tökum á plötu sem koma átti út undir Brimklóarnafninu. Rúnar Júlíusson ætlaði að gefa plötuna út og beitti sér fyrir því að Björg- vin sneri aftur til landsins til að syngja inn á þá plötu, en hann var þá í Bretlandi að elta heims- frægðina með Change. Björgvin sló til og söng sjö lög á plötunni Rock ’n’ roll, öll mín bestu ár sem kom út þá um sumarið. Vin- sældir plötunnar urðu svo til þess að sveitin var endurvakin: „Þá byrjaði þetta að rúlla fyrir alvöru,“ eins og Björgvin orðar það. Hrikalega kommersíal Þegar ég spyr Björgvin um það hvort vinsældir Brimklóar hafi komið honum á óvart svarar hann neitandi: „Það kom mér ekkert á óvart því þetta var svo hrikalega kommersíal.“ Líklega hafði eitthvað segja í því sam- bandi að sveitin bauð upp á tón- list sem fáir voru að spila og eins að sungið var á íslensku, en á þeim tíma var alsiða að syngja á ensku, enda litu flestar hljóm- sveitir á Ísland sem stökkpall og sungu á ensku. „Við vorum ekki með neina svakalega meik- drauma, vorum að byrja að stofna fjölskyldur og vildum vera heima á Íslandi. Við höfðum líka gaman af að spila, nóg að gera, fórum ferðir um landið ár eftir ár og fetuðum í fótspor Ragga Bjarna og Óla Gauks: Brimkló á faraldsfæti með Halla og Ladda, Úllen dúllen doff og svo fram- vegis. Við seldum inn á skemmt- anir og svo dansleiki og spil- uðum á Vellinum. Það var aldrei neitt „Nú skulum við meika það“, við vorum eiginlega búnir að því, við meikuðum það svo hrikalega í Ævintýri, fengum al- veg yfirmeik.“ Platan Undir nálinni kom út 1977 og svo komið á vegferð sveitarinnar að liðsmenn áttu helming laganna. Um haustið hættu Hannes Jón og Sigurjón, en í þeirra stað komu Haraldur Þorsteinsson bassaleikari og Pét- ur Hjaltested hljómborðsleikari. Vorið 1978 hætti Pétur, en Guð- mundur Benediktsson, söngvari, gítar- og píanóleikari, kom í hans stað. Þannig skipuð var sveitin á þriðju breiðskífunni, Eitt lag enn sem kom út 1978, en þá hafði heldur hallað á kántríið, nú var meira popp í boði. Sum- arið 1979 var fjórða skífan tekin upp, Sannar dægurvísur, og á henni áttu sveitarmenn sjö lög af ellefu. Enn mannabreytingar Enn urðu mannabreytingar 1980, því þá sagði Guðmundur Benediktsson skilið við félaga sína, en í hans stað komu Ragn- hildur Gísladóttir, sem söngkona og píanóleikari, Magnús Kjart- ansson, sem söngvari og hljóm- borðsleikari, og Kristinn Svav- arsson saxófónleikari. Svo fjölskipuð var sveitin kölluð 80, en Ragnhildur entist í sveitinni út árið að hún hætti til að stofna Grýlurnar. Brimkló gaf svo út plötuna Glímt við þjóðveginn vorið 1981. Það getur verið streð að vera í vinsælli hljómsveit, sem sannast kannski að einhverju leyti á tíð- um mannaskiptum, enda kalla vinsældirnar á mikla vinnu, sí- felld ferðalög um landið, eins og Björgvin nefnir, og það eru sjaldnast lúxusferðir. Hann segir þó að þegar hann lítur til baka, skoðar áttunda og níunda ára- tuginn með Brimkló, sitji það helst eftir hvað þetta hafi verið skemmtilegur tími, æðislega gaman eins og hann orðar það, og bætir við að Brimkló hafi verið mjög gott band: „Þegar við vor- um komnir á siglingu þá vorum við góðir og við eigum upptökur sem sanna það. Tíu til fimmtán ára útgerð Þetta var útgerð í tíu til fimmtán ár og við hefðum eflaust getað haldið áfram miklu lengur ef við hefðum viljað það, en það var mikið að gera annað en Brimkló,“ segir Björgvin og vísar þar til þess að í lok ársins 1981 ákváðu þeir félagar að taka sér langt frí og jafnvel að eilífu, eða svo héldu margir í það minnsta. „Við vor- um svo uppteknir, Addi hafði nóg að gera við að reka fyrirtæki pabba síns, ég var á fullu með minn sólóferil og mikið að gera hjá HLH-flokknum og svo má telja. Það var svo mikið að gera hjá okkur að Brimkló var farin að sitja á hakanum svo við tókum langa pásu.“ Langa pásan entist í fimmtán ár, því sveitin kom ekki saman að nýju fyrr en sumarið 1996 og starfaði reyndar fram á sumar það ár að aftur var lagst í dvala. 2003 ræsti Björgvin svo mann- skapinn út að nýju til að spila á Kántríhátíð Hallbjarnar Hjart- arsonar á Skagaströnd, en auk hans voru í sveitinni Arnar, Ragnar, Guðmundur, Haraldur, Þórir Baldursson og Magnús Ein- arsson. Það hljóp svo mikið stuð í mannskapinn að menn sönkuðu að sér lögum á nýja plötu og 2004 kom út platan Smásögur. Sveitin spilaði síðan nokkuð reglulega næstu tvö árin, en tók svo aftur spilahlé haustið 2005 sem stend- ur enn þótt þeir félagar hafi kom- ið saman aftur í 60 ára afmæl- istónleikaröð Björgvins á síðasta ári. Aldrei verið í meira stuði Björgvin segir að það hafi verið mjög skemmtilegt að koma sam- an núna til að taka upp nýtt lag fyrir afmælisútgáfuna, æðislega gaman reyndar. „Okkur langaði að vera með eitt nýtt lag með í pakkanum og þegar við fórum að taka það upp kviknaði smáfiðr- 1973: Brimklóar- félagar uppáklæddir við tökur á sjón- varpsþættinum Jó- reykur úr vestri. Lífið er litríkt Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150 60 ára reynsla á Íslandi Fæst í eftirfarandi verslunum: Húsasmiðjunni ELKO Byggt og Búið Geisla Vestmannaeyjum

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.