SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Page 20
20 12. ágúst 2012
Þegar í ljós kom að Ól-ympíuleikarnir árið2012 yrðu haldnir íLondon þá veltu því
sjálfsagt margir fyrir sér hvernig
mótshaldið myndi ganga upp í
slíkri stórborg, sem má kannski
illa við frekari mannfjölda og
meiri umferð, jafnvel þó svo að
borgarbúar hafi tvívegis áður
verið gestgjafar Ólympíu-
leikanna. London er fyrsta borg-
in til þess að halda leikana þrí-
vegis. Fyrst árið 1908 og aftur
1948.
London nálgast mótshaldið
með öðrum hætti nú en árið
1948. Þá var ekkert byggt sér-
staklega vegna leikanna og
Wembley var notaður sem Ól-
ympíuleikvangur. Auk þess var
ekkert ólympíuþorp búið til fyr-
ir keppendur. Ástæðan fyrir
þessu öllu var auðvitað sú að
Bretar voru enn að jafna sig eftir
síðari heimsstyrjöldina.
Nú horfir þetta öðruvísi við.
Nýr leikvangur var byggður fyrir
leikana þar sem frjálsar íþróttir
fara fram auk setningar- og
lokahátíðar. Allskyns leikvangar
og íþróttahallir voru auk þess
byggðar fyrir hinar ýmsu grein-
ar. Samkvæmt mínum upplýs-
ingum verður sumt þeirra ein-
faldlega rifið og annað minnkað
þegar veislunni lýkur. Til dæmis
tekur sundhöllin liðlega 17 þús-
und áhorfendur. Hluti hennar
verður fjarlægður að leikunum
loknum og sundhöllin mun taka
um 3 þúsund áhorfendur til
frambúðar.
Íbúðir í þorpinu á markað
Ólympíuþorpið er svo auðvitað
kapítuli út af fyrir sig. Undirrit-
aður fékk að spígspora þar í um
það bil þrjá klukkutíma í boði ís-
lensku ólympíunefndarinnar
eftir þrjár vopnaleitir. Var þetta
daginn áður en leikarnir voru
formlega settir. Þar er búið að
reisa fleiri, fleiri blokkir þar sem
íþróttafólkið dvelur. Mér var
leyft að skyggnast aðeins um í
íbúð hjá íslenskum keppendum.
Í henni dvöldu sex keppendur ef
ég man rétt og tveir saman í
hverju herbergi. Mig rámar í
eitthvað svipað fyrirkomulag á
vistarverum þegar ég fór í skóla-
ferðalag til Benidorm en á þeim
tíma var verið að halda Ólymp-
íuleika í Atlanta.
Eftir því sem ég best veit fara
þessar íbúðir á markað að leik-
unum loknum. Útlitið á þorpinu
var svolítið austur-evrópskt að
mér fannst þar sem blokkirnar
voru hver annarri líkari. Nóg
framboð af íbúðum ætti því að
vera í austurhluta borgarinnar á
næstunni ef af verður og ýmsar
íþróttabyggingar í næsta
nágrenni.
Rútuferðir fjölmiðlafólks
Samgöngurnar voru nokkuð
sem margir áttu erfitt með að sjá
fyrir sér að fengju farsæla lausn.
Í London er auðvitað fyrirtaks
lestarkerfi neðanjarðar en álagið
á það kerfi er nú að ég hygg alveg
nægilegt án þess að fimm
hundruð þúsund áhorfendur á
Ólympíuleikum bætist við dag-
lega. Fjölmiðlafólkið er mikið á
ferðinni til og frá ólympíu-
svæðinu og ekki síður á milli
keppnisstaða. Sérstakar rútur
hafa verið notaðar til þess að
ferja fjölmiðlafólk og sjálf-
boðaliða. Heilmikið kerfi hefur
verið sett upp vegna þessa.
Ef ég og Golli ljósmyndari er-
um báðir taldir með þá telst mér
til að tæplega tuttugu þúsund
manns starfi í kringum fjölmiðla
á leikunum. Þar af eru að ég held
fimm þúsund í kringum NBC-
sjónvarpsstöðina sem sér um að
koma viðburðinum til Norður-
Ameríku. Rúturnar hafa sér-
akreinar í borginni til að komast
leiðar sinnar og þeim tekst að
fara nokkuð hratt yfir. Sá þáttur
hefur gengið betur en ég átti von
á. Því er þó ekki að neita að oft á
tíðum er ansi þröngt á götum
stórborgarinnar og ég hef tví-
vegis verið í rútu sem hefur tekið
spegil af bíl við hliðina í öllum
látunum. Í öðru tilfellinu var um
sendiferðabíl að ræða en í hinu
tilfellinu BMW. Hann var reynd-
ar merktur Ólympíuleikunum
en á ólympíusvæðinu er allt
morandi í slíkum bifreiðum í
tengslum við leikana. Þessar
sérakreinar hafa nú örugglega
haft nokkurt rask í för með sér
fyrir hinn hefðbundna borg-
arbúa sem er á ferðinni í bifreið.
Þessi samgöngumáti hefur
ekki gengið áfallalaust fyrir sig
og hefur að minnsta kosti kostað
eitt mannslíf. Ein rútan skall á
reiðhjólamanni sem beið bana
rétt fyrir utan ólympíusvæðið.
Miðað við hversu glannalega fólk
fer um á reiðhjólum í borginni
þá er ég reyndar ekki undrandi á
því að hér og þar verði slys. Þá er
ég auðvitað ekki að gefa í skyn
að banaslysið hafi verið þeim
látna að kenna. Ég þekki ekki
málavexti þess harmleiks.
Vingjarnlegir sjálfboðaliðar
Ekki verður hjá því komist að
minnast á sjálfboðaliðana sem
skipta tugum þúsunda. Þar hefur
Bretunum tekist alveg sérlega vel
Brotnir speglar en óbrotin
Ólympíuleikarnir
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Úr Ólympíugarðinum í London.
Morgunblaðið/Golli