SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Side 24

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Side 24
24 12. ágúst 2012 Myndir af mannfólki eruþeim hugleiknar, eigi aðsíður kunna þau hvergibetur við sig en úti í nátt- úrunni, helst fjarri alfaraleið. Þar verja þau sínum frístundum, meira og minna. Og alltaf er myndavélin með í för. „Það eru algjör forréttindi að ferðast um land- ið, njóta útivistar og taka ljósmyndir,“ segja hjónin Pálmi Bjarnason og Sigrún Kristjánsdóttir í Mosfellsbæ. Þau eru heima þetta síðdegi en brenna í skinninu að komast í næsta ferðalag – á fjöll – enda sumarfríið gengið í garð. Vinnan sem Pálmi og Sigrún stunda dagsdaglega er býsna frábrugðin ferða- lögunum og ljósmynduninni. Hann vinnur við tölvur hjá Reiknistofu bank- anna og hún á innkaupadeild ÁTVR. Pálmi og Sigrún kynntust fyrir níu ár- um í gegnum ljósmyndun. Nema hvað? Þau voru bæði í sama ljósmyndafélaginu og ári síðar settu þau ásamt þremur öðr- um á laggirnar ljósmyndahópinn Ljós- brot sem enn er starfandi. Fyrsta stóra verkefni Ljósbrots var samsýning í listasalnum í Kjarna í Mos- fellsbæ veturinn 2006. „Sýningin fékk góðar viðtökur og hleypti eiginlega skriðunni af stað,“ upplýsir Pálmi en bókaforlagið Steinegg hafði í kjölfarið samband við hópinn og bauð honum að gera bók. Kom hún út árið 2008 undir heitinu „Okkar sýn á Ísland“. Auk Pálma og Sigrúnar eiga Skúli Þór Magnússon og Hallsteinn Magnússon myndir í bókinni. Í tilefni af útgáfunni var efnt til sýningar í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fjallmenn og aðrir menn Sigrún og Pálmi segja langþráðan draum hafa ræst með útgáfunni. „Okkur hafði lengi langað að gefa út bók án þess að hafa haft sérstök áform á prjónunum. Síðan kom þetta bara upp í hendurnar á okkur. Það var afskaplega ánægjulegt,“ segja þau. Þau létu ekki þar við sitja. Þegar árið 2008 fóru þau að taka myndir fyrir næstu bók. „Það var svolítið öðruvísi verkefni. Í fyrstu bókinni voru bara myndir sem við áttum til en núna fórum við að mynda sérstaklega með bók og ákveðið snið í huga,“ segir Pálmi. Sami hópur stóð að þessari bók og þeirri fyrstu og kom hún út í veglegu broti vorið 2010, „Incredible Iceland“. Verkefnin eru af ýmsu tagi. Eitt tengist smalamennsku á Landmannaafrétti en Sigrún og Pálmi hafa fylgt fjallmönnum undanfarin fimm ár sér til ómældrar ánægju. Verkefnið er þrískipt: Í fyrsta lagi svart/hvítar myndir af fólki, í annan stað landslagsmyndir og í þriðja lagi myndir úr daglega lífinu. Myndir úr þessu verkefni voru sýndar í Heklusetrinu á Leirubakka á síðasta ári og í kjölfarið óskaði Anders Hansen stað- arhaldari eftir sýningu á myndum sem Sigrún og Pálmi hafa tekið í Veiðivötn- um. „Við áttum ekki margar myndir þaðan en létum slag standa, notuðum megin hluta sumarfrísins í verkefnið og fylgdumst meðal annars með stang- og netaveiði bænda eina helgi,“ segir Sigrún en sú sýning hangir uppi á Heklusetrinu til 14. október. Ný bók, „Iceland in Your Pocket“, ell- egar „Með Ísland í vasanum“, kom út í vor og er, eins og nafnið gefur til kynna, í smáu broti. Þetta er fyrsta bókin sem þau standa ein að. Bókina má fá í bókabúð- um, fríhöfninni og víðar en Pálmi og Sig- rún segja hana fyrst og fremst ætlaða út- lendingum sem vilja kynna sér landið okkar. Ísland með öðrum augum „Þetta eru okkar ær og kýr,“ segja hjónin Pálmi Bjarnason og Sigrún Kristjánsdóttir sem nýta hverja frístund til að sinna áhugamálum sínum, ljósmyndun og ferðalögum, ekki síst um óbyggð- ir Íslands. Ljósmyndir þeirra getur meðal ann- ars að líta í nýrri bók, „Iceland in Your Pocket“. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Hjónin, ljósmyndararnir og ferðalangarnir Pálmi Bjarnason og Sigrún Kristjánsdóttir. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Ljósmynd/Sigrún Kristjánsdóttir Pytlur í Veiðivötnum.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.