SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Qupperneq 29

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Qupperneq 29
12. ágúst 2012 29 hafði meiri áhyggjur af þeim veraldlegu hlutum sem mér fannst ég vera að missa úr höndunum eftir allt streðið sem það hafði kostað mig að byggja upp.“ Þú misstir veraldlegar eignir, eins og húsið stóra á Akureyri. Var ekki erfitt að missa það? „Jú, það var sárt því það hús var gullmoli á fallegasta útsýnistað sem hægt er að hugsa sér. En svona fór það nú. Við Guðrún eigum hús á Seltjarnarnesi, sumarbústað og bílana. Ein af skynsemisákvörðunum sem við hjónin tókum eftir hrunið var að skipta um umhverfi. Við ákváðum að búa ekki lengur í húsinu sem var bústaður okkar þegar kollsteypan varð. Við leigjum því út húsið okkar á Nesinu og leigjum hús á Elliðavatnssvæðinu. Við erum sammála um að það hafi verið mjög skynsamlegt að skipta um umhverfi. Við það varð eins konar umpól- un í höfðinu og við öðluðumst nýja lífssýn. Margir eiga verulega bágt eftir hrunið en ég á hús og bíl og heilsan er eins og best verður á kosið.“ Víkjum aðeins að einkalífinu, það hafa verið nokkr- ar konur í þínu lífi. „Ekki mjög margar. Ég átti sömu konuna í 38 ár og með henni tvö börn sem hafa plumað sig ágætlega í líf- inu. Svo var önnur kona í átján mánuði. Ég hef verið með núverandi konu minni í ellefu ár og hún á tvö börn úr fyrra sambandi sem við höfum alið upp í sameiningu. Ég er mjög hamingjusamur í einkalífinu. Þegar ég lít yfir einkalíf mitt get ég sagt að þar hafi á sínum tíma verið eitt vandamál, manneskja sem var ekki til heilla fyrir mig og mína.“ Finnst þér þú hafa þroskast mikið með árunum? „Þegar ég lít til baka get ég sagt að í öllum aðal- atriðum hafi mér liðið vel. Í gamla daga þegar ég var að sulla í brennivíni gerði ég einhverja hluti sem ég sá síð- an eftir. Vissulega setur brennivínsdrykkja mark á lífið. Sambandið við fyrrverandi eiginkonu mína, sem er mikil öndvegismanneskja og ég hef ekkert nema gott um að segja, fór í hund og kött, að hluta til vegna óreglu minnar. Það tek ég alfarið á mig.“ Drakkstu mikið og illa? „Ég geri yfirleitt mikið af því sem ég geri. Ég var ekki túramaður en þegar ég drakk þá drakk ég hraustlega. Ég hætti tvisvar og drakk ekkert í sex ár á þeim tíma þegar ég var að stofna Bónus. Svo fór ég að trúa því að ég væri eini drykkjumaðurinn í heiminum sem hefði náð fullum tökum á drykkjunni og fór aftur að drekka. Ég hætti aftur um aldamótin og eftir það hefur aldrei komið til greina að smakka áfengi. Ég á auðvelt með að umgangast fólk sem er að drekka en fer þegar fólk byrj- ar að segja mér sömu söguna í fjórða sinn. Ég er líka það heppinn að þótt konan mín sé mun yngri en ég þá er hún kvöldsvæfari en ég og þegar við erum á samkomum er það hún sem vill fara snemma heim, sem mér finnst alveg ágætt. Ég myndi ekki endast í sambandi með mikilli djammkonu. Það væri ekki heillavænlegt til framtíðar.“ Þú virðist nokkuð ánægður með lífið. „Ég get ekki annað en verið hamingjusamur. Ég á góða konu og tvö börn sem hafa plumað sig vel, stjúp- börn og fimm afabörn. Ég var líka svo lánsamur að fá heilsuna aftur og síðan hefur mér liðið dásamlega.“ Hvernig var meðferðin? „Ég var svo heppinn að þola lyfjameðferðina. Undir lokin fór ég í svokallaða háskammtameðferð sem er ansi erfið. Ég var í einangrun í tíu sólarhringa og var orðinn örmagna enda hvorki tangur né tetur eftir að því sem heitir ónæmiskerfi. Ég fór svo í stofnfrumuskiptingu, sem er eiginlega eins og mergskipti. Stofnfrumur eru teknar úr manni, geymdar í frosti og settar aftur inn í líkamann þegar meðferðinni var lokið. Í þessu ferli fylltist ég hvað eftir annað aðdáun á því hversu gott fólk er í heilbrigðisstétt. Þetta fólk sýnir ótrúlega þolinmæði, oft við mjög slæmar aðstæður. Einu sinni í mánuði var dælt í mig efnum og í eitt skipti var ég settur inn í setustofu. Ég skammaðist mín fyrir að liggja þar vegna þess að í næsta herbergi hafði kona dáið og aðstandendur hennar þurftu að vera úti á gangi með prestinum af því að ég var í setustofunni.“ Leituðu aldrei á þig hugsanir um dauðann? „Auðvitað er eitthvað í undirmeðvitundinni sem ger- ir að verkum að maður hugsar um dauðann en þær hugsanir urðu aldrei ofan á. Ég talaði aldrei um það við nokkurn mann að hugsanlega gæti þetta endað á þann veg. Konan mín sýndi mikinn dug í þessum veikindum mínum og umgekkst mig aldrei eins og veikindi mín væri svo alvarleg að ég ætti að kvíða einhverju. Meðal annars þess vegna var ég ekki kvíðinn. Á meðan ég átti í veikindunum var fyrirtækið í erfiðri baráttu fyrir framtíð sinni og þar hafði ég verulegar áhyggjur. Kannski hafði ég ekki eins miklar áhyggjur af veikindunum og annars hefði verið vegna þess að ég Jóhannes í Iceland: Það hjálpar mér sennilega einna mest að ég þekki óhemju marga og að margir hafa átt ánægjuleg viðskipti við mig í gegnum tíðina. Morgunblaðið/RAX

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.