SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Page 37

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Page 37
12. ágúst 2012 37 myndinni – afi hefur þar málað föður minn þrisvar eða fjórum sinnum.“ Lítið þekktur á Englandi í dag Collingwood var dæmigerður fulltrúi menntamanna Viktoríutímans; hann lærði klassísk fræði og myndlist en var ekki ein- hamur í störfum sínum. Hann skrifaði fjölda bóka; skáldsögur sem byggjast á áhuga hans á norrænum mönnum og land- námi þeirra á Englandi, bækur um listfræði, ævisögu fagurfræðingsins Jonh Ruskins sem hann vann með í um þrjá áratugi, og vandaðar bækur um fornleifarannsóknir, auk þess sem hann ritstýrði fjölda verka um hin ýmsu mál. Hér á landi hafa verið gefnar úr þrjár bækur um Íslandsmyndir Coll- ingwoods og þær eru mikils metnar hér. En hver er staða hans í heimalandinu í dag? „Í dag er hann lítið þekktur á Eng- landi,“ svarar Teresa. „Hann er einkum þekktur í Vatnalöndum þar sem hann bjó, og þá sérstaklega sem fornfræðingur og fornleifafræðingur. W.G. Collingwood tók köllun sína sem málari alvarlega og málverk hans eru í anda kenninga Ruskins; hann leitar að kjarna hlutanna. En faðir minn skrifaði í sjálfsævisögu sinni að W.G. hefði aldrei notið mikillar velgengni sem málari, og sem dæmi um það gekk honum illa að selja myndirnar sem hann málaði á Ís- landi. Þeir sem keyptu var fólk sem þekkti verk hans fyrir og fólk sem hafði mikinn Íslandsáhuga. Þrátt fyrir að hann héldi áfram að vinna fyrir sér sem málari færðist áhugi hans smám saman yfir í fornleifafræðina, en hann varð afar vandaður og virtur forn- leifafræðingur,“ segir Teresa um afa sinn, W.G. Collingwood. „Það að finna hvað minning Collingwoods er lifandi hér, og hvað framlag hans til menning- arinnar er talið mikils vert, hreyfði afskaplega mikið við mér,“ segir sonardóttir lista- mannsins, Teresa Smith. Morgunblaðið/Einar Falur Teresa Smith og séra Þorbjörn Hlynur við altaristöflu afa hennar í kirkjunni á Borg á Mýr- um. Collingwood málaði þar börn sín og þar á meðal föður Teresu þrisvar eða fjórum sinn- um. Ljósmynd/Mike Lea Kunn ljósmynd af breska listamanninum William Gershom Collingwood á hesti sínum Flugni í Íslandsferðinni sumarið 1897. Ferðalagið um landið tók um tíu vikur. National Museum of Iceland skjalamappa. Í liðnum mánuði eyddi Teresa nokkrum dögum í skjalasafninu, áður en hún kom í pílagrímsferðina í fótspor afa síns hingað til lands. Þá fór hún að skoða möppuna betur. „Í möppunni er mikið af skissum frá W.G. Margar þeirra virðast tengjast kennslu hans sem prófessor við listaháskólann í Cardiff og ýmsum fyrirlestrum. En ég sá að utan á möppuna hefur líka verið skrifað að í henni séu íslensk gögn. Ég fór að skoða það betur og fann þá nokkrar vatns- litamyndir frá Íslandi, gerðar hér á ferðalag- inu 1897 og þar á meðal er ein af Þingvalla- myndunum. Í möppunni er einnig bunki af svarthvítu myndunum sem hann gerði eftir vatnslitamyndunum fyrir bókina. Ég taldi þær ekki eða bar þær saman við bókina en þetta eru margar myndir,“ segir hún. „Þær eru sjálfsagt flestar þarna.“ – Gætu þetta verið allt að hundrað svart- hvítar myndir? spyr ég. „Kannski. Kannski enn fleiri en það. Það væri stórkostlegt ef þarna væru fundnar flestar myndanna sem ekki hefur verið vit- að hvar niður eru komnar,“ segir Teresa. „Það hefur verið mjög merkilegt að upp- götva hér á Íslandi og skilja hvað þáttur W.G. Collingwoods er mikilvægur fyrir Ís- lendinga, hvað varðar menningararfleifðina og framlag hans þarna undir lok 19. aldar, það hefur verið afar falleg reynsla fyrir mig. En ég er sannfærð um að enn eigi eftir að uppgötva ýmislegt sem tengist þessari pílagrímsferð hans hingað árið 1897, og það þarf að skoða það alvarlega hvar allar þessar nýuppgötvuðu myndir eiga að vera. Þær þurfa að vera aðgengilegar komandi kynslóðum.“ Ein af svarthvítu teikningunum sem Collingwood gerði í svarthvítu fyrir bókina. Myndin er frá Breiðabólstað í Fljótshlíð. Þessi vatnslitamynd af Kóngsbakka á Snæfellsnesi er meðal þeirra þekktustu úr ferða- lagi W.G. Collingwoods sumarið 1897. Þjóðminjasafn Íslands

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.