SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Qupperneq 39

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Qupperneq 39
12. ágúst 2012 39 Kántrísöngvarinn Randy Travis á ekki sjö dagana sæla þessa dag- ana. Auk þess að standa í mála- ferlum gegn fyrrverandi eiginkonu sinni var hann handtekinn á dög- unum fyrir ölvunarakstur og ósæmilega hegðun; í annað sinn sem það gerist á þessu ári. Að sögn lögreglunnar í Texas keyrði Travis niður nokkra vegatálma og fór í gegnum byggingarsvæði áður en hann endaði ut- anvegar. Þegar lögreglu bar að garði var hann nakinn og lét öllum illum látum. Hann hótaði meðal annars að skjóta lögreglumennina sem voru að störfum. Hann neitaði að blása í áfengismæli og því var tekin blóðprufa af honum. Beðið er eftir niðurstöðum. Drukkinn og nakinn Lögreglumynd. Fyrir skömmu kom upp stór- furðulegt og ógeðfellt sakamál í Flórída í Bandaríkjunum. Hinn 29 ára Eric Antunes var handtekinn fyrir vörslu á barnaklámi en meira átti eftir að koma í ljós. Ásamt barnakláminu fundu lögreglumenn ljósmyndir af Antunes í kynferðis- legum athöfnum með þrífættum hundi kærustu sinnar. Árið 2011 voru sett ný lög í Flórída sem vörðuðu misnotkun á dýrum og töldu flestir að Antunes yrði sá fyrsti til að hljóta refsingu samkvæmt þeim. Annað kom þó á daginn. Samkvæmt lögunum er það einungis ólög- mætt ef manneskja veitir dýri munnmök en ekki ef öf- ugt er farið, eins og var í máli Antunes. Maðurinn fékk því einungis refsingu fyrir vörslu barnakláms. Millitegunda munnmök Óbein tenging. Nú þegar Ólympíuleikarnir í Lundúnum standa sem hæst hljóta margir að velta því fyrir sér hvar hlaupakonan Merlene Ottey, sem gerði allt vitlaust hér um árið, er niðurkomin. Eins og svo margir af bestu spretthlaupurum í heimi fæddist hún í Jamaíka, nánar til tekið í Hanover. Kempan tók þátt í átta ólympíuleikum, þeim síðustu árið 2004 í Aþenu. Hún er sú frjálsíþróttakona sem hefur tek- ið þátt í flestum Ólympíuleikum. Ottey hefur þó ekki alltaf keppt fyrir hönd Jamaíku. Eftir að hafa verið sökuð um lyfjamis- notkun, og að hennar sögn beitt ósanngjarnri meðferð af hálfu Ólympíunefndar Jamaíku, ákvað hún að gerast slóvenskur rík- isborgari árið 2002. Hún hafði þá staðið í miklum deilum við landa sína og aðra sökum Ólympíu- leikanna í Sydney árið 2000. Hún náði ekki nógu góðum tíma til að taka þátt á leikunum það árið en náði á ótrúlegan hátt að troða sér í keppnina á kostnað Petu-Gaye Dowdie sem varð að sitja eftir heima. Það fór afar illa í marga. Ottey hafði búið um nokkurt skeið í Ljubljana þar sem hún þjálfaði og því lítið mál fyrir hana að sækja um ríkisborgararétt. Hún keppti fyrir hönd Slóveníu á Ólympíu- leikunum í Aþenu árið 2004 en vann ekki til verðlauna. Hún var nálægt því að komast á Ólymp- íuleikana fyrir fjórum árum og er enn þann dag í dag að keppa fyr- ir hönd Slóveníu á ýmsum mót- um. Hún tók meðal annars þátt á Evrópumóti í Helsinki í ár, 52 ára að aldri. davidmar@mbl.is Ottey hljóp áður fyrir hönd Jamaíku. Hér er hún í Aþenu árið 1997. Merlene Ottey? Hvað varð um... Hlaupakonan í slóvenska bún- ingnum í Barcelona árið 2010. Aðalvél Víkartinds bilaði fyrir hádegi sama dag og skipið strandaði. Varðskipið Ægir var komið á vettvang rúmlega tveimur klukku- stundum seinna. Skipstjóri Víkartinds hafnaði hinsvegar margsinnis ábendingum Landhelgisgæslunnar um að tímabært væri að óska að- stoðar. Það þótti sæta furðu bæði innan Landhelgisgæslunnar sem og Eimskips sem hafði skipið á leigu. Skipstjórinn gaf þó eftir að lokum og Ægir gerði tvær árangurslausar tilraunir til að koma dráttartaug í skipið. Í seinni tilrauninni varð Ægir fyrir broti með þeim afleið- ingum að einn skipverja féll fyrir borð og lést. Víkartindur var um 9.200 tonn að stærð og var nýbyggt þegar það strandaði. Mengunarslysi var afstýrt en olía lak ekki í teljandi magni frá skipinu, og sem betur fer tókst að bjarga um 95% þeirrar olíu sem var um borð eða rúmlega 400 tonnum. 14 mánuðir liðu frá því Vík- artindur strandaði þar til hreinsunarstarfi og niðurrifi skipsins lauk. Hreinsunarstarf var gífurlega umfangsmikið en alls þurfti að flytja um 4.600 tonn af brotajárni úr fjörunni ásamt rúmlega 1.000 tonn- um af annarskonar úrgangi. Mikil vinna fólst í að ná saman timbri, pappír og fleiru og koma því á urðunarstað. Einnig fólst gífurleg vinna í því að tína smærra rusl sem rak á Háfsfjöru. Björgunarsveitir, íþróttafélög, starfsmannafélög og fleiri hópar tóku m.a. að sér að ganga um fjöruna og tína smærra rusl sem rekið hafði á land. Hringrás tók að sér að rífa skipið og þótti það erfitt verkefni. Sand- urinn í fjörunni torveldaði verkið og válynd veður hjálpuðu ekki til. Hringrás notaðist við stóra brotvél sem klippti járnið niður og setti það í gáma sem jarðýta dró síðan að flutningabílum. Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is ’ Hreins- unarstarf var gífurlega umfangsmikið en alls þurfti að flytja um 4.600 tonn af brotajárni.“ Benóný Ásgrímsson Jamaíka, sem þeim þótti ólíklegt þar sem hann var enn svo ungur. Bolt tók sig til og sló lands- metið aðeins 21 ára gamall og hóf þá að beina at- hyglinni að 100 metra hlaupinu. Hann hóf strax að sanka að sér verðlaunum. Ári síðar sló hann síðan heimsmetið í 100 metra spretthlaupi þegar hann hljóp þá á 9,72 sekúndum í New York. Hann bætti síðan heims- og ólympíumetið á Ólympíu- leikunum í Peking seinna um árið, bæði í 100 og 200 metra hlaupi. Aðeins 21 ára að aldri hafði hann því sett tvö heimsmet. Afmælissöngurinn var spilaður í hátölurum leikvangsins er hann kom í mark í 200 metra hlaupinu þar sem Bolt var 22 ára á miðnætti. Bolt hefur verið mikið í sviðsljósinu síðan þá og drepið niður fæti víða. Eins og flestir vel gefnir menn er hann áhangandi Manchester United og heimsótti meðal annars æfingasvæði félagsins þar sem hann spjallaði við Cristiano Ronaldo og Ruud Van Nistelrooy og gaf þeim góð ráð. Á Ólympíu- leikunum sem nú standa yfir varði Bolt báða titl- ana og varð sá fyrsti í sögunni til þess. Hann hefur verið titlaður sem þjóðhetja í heimalandi sínu sem fagnar 50 ára sjálfstæðisafmæli sínu undan Bretum um þessar mundir. Spretthlauparinn er þekktur fyrir kímni sína en hér kemur hann með hið víðfræga sigurfagn sem hann er þekktur fyrir. AFP ’ Eins og flestir vel gefnir menn er hann áhangandi Manchester United og heim- sótti meðal annars æfingasvæði félagsins þar sem hann spjallaði við Cristiano Ronaldo og Ruud Van Nistelrooy og gaf þeim góð ráð. Polarolje Meiri virkni Hátt hlutfall Omega 3 fitusýrur Minn læknir mælir með Polarolíunni, en þinn ? Selolía, einstök olía Gott fyrir: Maga- og þarmastarfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Kolesterol Liðina Polarolían fæst í: apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð Nú líka í hylkjum Nýtt!

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.