SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Side 40

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Side 40
40 12. ágúst 2012 Lífsstíll Ég las á dögunum afar áhugaverða grein í Gay Pride blaðinu. Hún fjallaði um líf og störf glímukóngsins Guðmundar Stef- ánssonar. Hafði kappinn sá margt til brunns að bera og þótti bera af í hinni karlmannlegu íþrótt (sem þá þótti). Guð- mundur hafði þó einn „veikleika“. Hann hreifst nefnilega af einstaklingum af sama kyni. Nokkuð sem þótti fremur undarlegt á þessum tíma í okkar litlu Reykjavík. Var þá „kynvillan“ oftast tal- inn „kvilli“ sem mætti laga. Guðmundur var dæmdur til fangelsisvistar fyrir að „fullnægja hvötum sínum“ en það þótti til marks um „bata“ hans þegar Guð- mundur sást snúa ungri stúlku fimlega um dansgólfið í samkomuhúsi úti á landi. Gæsalappirnar í upphafi þessarar greinar eru til marks um breytt viðhorf. Í dag vitum við vel að enginn „læknast“ af samkynhneigð. Sama hvað ýmsir öfga- prestar úti í heima reyna. Eftir því sem einstaklingsfrelsið hefur aukist erum við hætt að þurfa að láta alla falla í sama formið. Við megum elska þann sem við viljum, giftast þeim sem við viljum og eignast börn. Það á að vera grundvallar- réttur hvers einstaklings en leiðin hefur sannarlega verið þyrnum stráð. Ég er ekki nógu vel að mér í réttindabaráttu samkynhneigðra til að fara yfir hana hér. Eins hef ég aldrei þurft að berjast fyrir því að mega kyssa kærastann úti á götu eða velkjast í vafa um að við gætum gift okkur. Sú er þó enn raunin víða í heim- inum. Baráttan hefur (að manni virðist úr fjölmiðlum) víða náð langt en í mörgum löndum eru víggirðingar enn til staðar. Nýverið var Gay Pride haldið í fyrsta sinn í Víetnam en þar er stutt síðan að litið var á samkynhneigð sem eins konar „samfélagslegt mein“. Þar féll einn staurinn til í víggirðingunni og vonandi halda þeir bara áfram að falla. Um helgina gefst tækifæri til að sýna virðingu okkar og stuðning og fagna því að við þurfum ekki að haldast í hendur yfir víggirðinguna. Kærustupar kyssist rómantískum kossi í miðborg Stokkhólms á Gay Pride þar í borg 4. ágúst síðastliðinn. AFP’ Við megum elska þann sem við viljum, giftast þeim sem við viljum og eignast börn. Það á að vera grundvallarréttur hvers einstaklings. Rétturinn til að elska Lífið og tilveran María Ólafsdóttir maria@mbl.is Hörð barátta hefur verið háð fyrir mann- réttindum samkyn- hneigðra í heiminum. Um helgina gefst tæki- færi til að gleðjast, virða og styðja. Alltaf er jafn gaman að hlusta á nýja tónlist. Mér þyk- ir sérstaklega gaman að tónlist sem er dálítið öðru- vísi og tekur eyrun jafnvel smátíma að venjast. Síð- astliðnar vikur hefur nýjasta plata hinnar bandarísku Fionu Apple, The Idler Wheel, fengið að snúast nokkra hringi í eyrunum á mér yfir vinnudaginn. Ég hef hlustað lítillega á söngkonuna áður en ekki jafn vandlega og nú. Tónlistin á plötunni er með dálítið tregafullum tóni en þó alls ekki þunglyndisleg. Svo er nú eitt og eitt hressandi lag inn á milli. Textarnir eru flottir og röddin hennar Fionu liðast og hringar sig utan um lögin á notalegan hátt. Tónlistin sjálf er suðupottur af forvitnilegri súpu úr ýmsum öngum tónlistarsenunnar. Ég mæli með að prófa þessa plötu og skella henni í spilarann á dálítið letilegum rigningardegi þegar þú liggur á sófanum og ætlar að hreyfa hvorki legg né lið. Ekta plata til að melta svo- lítið vel í slíka stemningu. Fiona Apple virðist hér nýstigin upp úr hafinu sem eins konar vatnavera. Forvitnileg tónlistarsúpa Fionu Apple Litagleðin er allsráðandi þegar horft er á indverskar Bollywood- kvikmyndir. Allt frá fatnaði til skreytinga og krydds er í sterk- um litum og fara augun á fullt við að meðtaka alla þá lita- dýrð sem fyrir augu ber. Þetta átti einnig við á Lakme-tískuvikunni sem nú er nýaf- staðin í Mumbai í Indlandi. Þar var þar mikið um dýrðir þegar rúm- lega 85 hönnuðir sýndu nýjasta nýtt úr sinni smiðju og bar margt fyrir augu. Innblásturinn var sóttur í indverska arf- leifð og klæddust fyr- irsætur meðal annars samfestingum sem inn- blásnir voru af sarí. Þá voru kjólar í áberandi litum með ýmiss konar mynstrum í indverskum stíl. Aug- ljóst þykir eftir tískusýningar vik- unnar að ungir indverskir hönnuðir eru nú farnir að taka opnum örmum því sem hefðbundið er. En gefa þó klæðnaðinum um leið eigin svip og einkenni. Falleg litagleði

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.