SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Blaðsíða 44

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Blaðsíða 44
44 12. ágúst 2012 Mark Feldstein – Poisoning the Press bbbbn Áhugamenn um bandarísk stjórnmál, blaða- mennsku og bækur eiga Richard Milhouse Nixon margt að þakka. Ég hef að minnsta kosti eytt mörgum ánægjulegum klukkustundum í að lesa bækur um króka og kima Watergatemálsins svo- nefnda, sem leiddi til þess að Nixon hrökklaðist úr embætti Bandaríkjaforseta árið 1974. Bókin Poisoning the Press er alger skyldulesning fyrir þá sem vilja reyna að öðlast einhvern skilning á Watergate þótt hún fjalli ekki um það mál beint heldur um samskipti Nixons og dálkahöfund- arins og ólíkindatólsins Jacks Andersons. Anderson var, þrátt fyrir marga galla, einn af brautryðjendum rannsóknarblaðamennskunnar sem átti sitt blómaskeið á ofanverðri síðustu öld. Raunar má einnig finna hliðstæður með Anderson og Julian Assange, stofnanda Wiki- Leaks. Í höndum Feldsteins verða þeir Anderson og Nixon tragí- kómískar persónur, fórnarlömb eigin dómgreindarbrests og for- dóma. Steven Levy – In the Plex bbbnn Google er merkilegt fyrirtæki sem á örskömmum tíma breyttist úr sniðugri hugmynd og hugsjón tveggja háskólanema í einhverja mestu pen- ingamaskínu heims og sem teygir orðið anga sína í flesta kima netheima. Bandaríski blaðamaðurinn Steven Levy hefur nú skráð einskonar opinbera ævisögu Google en allir helstu stjórnendur fyrirtækisins, þar á meðal stofnendurnir Sergey Brin og Larry Page, veittu Levy viðtöl og upplýsingar. Bókin varpar góðu ljósi á uppbyggingu Google og hvernig þeir Brin og Page reyna að viðhalda frum- byggjaandanum í fyrirtækinu, þótt árangurinn sé misgóður. Val McDermid – The Retribution bbbnn Margir muna sjálfsagt eftir sjónvarpsþátt- unum Wire in the Blood um sálfræðinginn Tony Hill og lögreglukonuna Carol Jordan, sem RÚV sýndi fyrir nokkrum árum. Þessir þættir byggðust á bókum eftir skoska rithöf- undinn Val McDermid, sem fjalla flestar um baráttu þeirra Hills og Jordan við siðblinda raðmorðingja og eigin sálarkvalir. Nýjasta bókin í þessum bókaflokki nefnist The Retribution. Bókin er býsna spennandi en það er mikið lagt bæði á aðalpersónurnar í bókinni og lesandann: sumar morðlýsingarnar eru afar blóðugar og óhugnanlegar og morðinginn er sérstaklega ógeðfelldur. Guðm. Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Erlendar bækur Eymundsson 1. Fifty Shades Darker – E.L. James 2. Mockingjay – Suzanne Coll- ins 3. Fifty Shades Freed – E.L. James 4. Fifty Shades of Grey – E.L. James 5. Hunger Games – Suzanne Collins 6. 1Q84 – Haruki Murakami 7. Song of Ice and Fire– George R.R. Martin 8. Now You See Her – James Patterson 9. 11.22.63 – Stephen King 10. Pure – Julianna Baggott New York Times 1. Fifty Shades of Grey – E.L. James 2. Fifty Shades Darker – E.L. James 3. Fifty Shades Freed – E.L. James 4. Gone Girl – Gillian Flynn 5. Where We Belong – Emily Giffin 6. Friends Forever – Danielle Steel 7. Black List – Brad Thor 8. Bared to You – Sylvia Day 9. Deep Down – Lee Child 10. Broken Harbor – Tana French Waterstones 1. Fifty Shades of Grey – E.L. James 2. Fifty Shades Darker – E.L. James 3. Fifty Shades Freed – E.L. James 4. Bared to You – Sylvia Day 5. The Litigators – John Gris- ham 6. Death Comes to Pember- ley – P.D. James 7. The Silent Girl – Tess Ger- ritsen 8. Private Games – James Patterson 9. The Thread – Victoria Hi- slop 10. The Hunger Games – Suz- anne Collins Bóksölulisti Lesbókbækur Nú þegar augu heimsins hvíla á plán-etunni Mars, eða réttara sagt sérhæfðarmyndavélarnar um borð í fjarstýrðamarsbílnum Curiosity eða Forvitni upp á íslensku, er ekki úr vegi að velta því fyrir sér hvenær mannkyninu auðnist að senda menn til þessarar plánetu sólkerfisins sem er líkust jörð- inni. Í bók sinni The Case For Mars, sem fyrst var gefin út 1996 en svo uppfærð og endurútgefin í fyrra, færa höfundarnir, geimverkfræðingurinn Robert Zubrin og ritstjórinn Richard Wagner, fyr- ir því rök að Bandaríkjamönnum væri það kleift innan 10 ára og hefði verið það lengi miðað við núverandi tækniþekkingu. Það eina sem standi í vegi fyrir því sé skortur á vilja og ómarkviss stefnumótun Bandarísku geimferðastofnunar- innar NASA sem sé föst í viðjum skriffinnsku og stórkallalegra áætlana sem miði helst að því að halda hinum ýmsu sérhagsmunum í geimiðn- aðinum góðum. Fram og aftur til Mars Bókin er vel uppsett og læsileg jafnvel þótt hún fjalli töluvert sérhæft um ýmis tæknileg atriði í áætlun höfundarins um hvernig hægt væri að senda mannaða ferð til Mars og aftur til baka fyrir um 30 milljarða bandaríkjadollara á þessu 10 ára tímabili. Setur hann upp nokkra möguleika en fjallar að mestu nokkuð nákvæmlega um áætlun sína sem hann byrjaði að þróa árið 1990 sem bygg- ist á því að nota þá tækniþekkingu sem Banda- ríkjamenn hafa búið við síðan tunglferðirnar voru farnar ásamt því að vinna eldsneyti til heimferð- arinnar úr lofthjúpnum á Mars. Þannig sé hægt að spara gífurlegan kostnað með því að nota þær auðlindir sem eru til staðar á Mars í miklu ríkara mæli og auðveldar en væri hægt á tunglinu. Sýnir hann svo fram á í allítarlegu, en stórskemmtilegu máli hvernig hægt sé að lifa af landinu á Mars við frekari uppbyggingu bækistöðva á þessari fjórðu plánetu frá sólu. Er það helsta röksemd hans fyrir því að við ættum að einbeita okkur að könnun Mars en ekki t.a.m. endurkomu til tunglsins líkt og áætlanir NASA hafa löngum byggst á sem næsta skrefi í geimkönnun mannkyns. Þar sé lofthjúpur sem veiti ákveðna vörn gegn geislun, þar sé nokk- urn veginn 24 stunda sólarhringur, þar sé hægt að rækta fæðu, vinna auðlindir og nýta á annan hátt landgæðin til uppihalds íbúa og þar sé hægt að fá svar við stóru spurningunni um hvort líf sé eða hafi verið að finna utan jarðarinnar. Sé svarið já- kvætt ætti líf að vera algengt í hinum stóra al- heimi. Í lok bókarinnar telur hann upp röksemdir sínar um af hverju það sé nauðsynlegt fyrir mannkynið að hefja landkönnun og loks landnám og skapa sér þannig ný heimkynni á Mars. Talar hann um möguleikann á að breyta plánetunni þannig að hún verði á ný vænleg fyrir líf og hægt sé að gera hana heitari með því að koma af stað gróðurhúsa- áhrifum þar. En síðan kemur hann með áhuga- verðar vangaveltur um hvers vegna það sé nauð- synlegt fyrir frelsi og framþróun hins vestræna heims að hafa ónumin jaðarsvæði sem gefa tæki- færi til og ýta undir nýjar lausnir í hvort heldur tæknilegum eða samfélagslegum málum. Hann heldur því í raun fram að það sé forsenda fyrir því að samfélög okkar verði ekki sífellt niðurnjörvaðri og þannig hnignun að bráð að við horfum út á við til frekari vaxtar og útbreiðslu um óravíddir al- heimsins. En byrja skuli á Mars og ættum við að feta í fótspor geimjeppans knáa sem allra fyrst að mati höfundarins. Geimvagninn Curiosity varpar skugga á eyðilegt landslag á Mars. Hluti úr fyrstu breiðmyndinni í lit frá Curiosity. Ljósmynd/NASA/JPLCaltech/MSSS Byrjum á Mars Í byrjun vikunnar lenti geimvagninn Curiosity á Mars og mun safna þar upplýsingum og senda til jarðar næstu mán- uði og jafnvel ár. Ýmsir hafa velt því upp að tímabært sé að menn komi sér fyrir á plánetunni rauðu. Höskuldur Marselíusarson höskuldurm@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.