SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Qupperneq 47

SunnudagsMogginn - 12.08.2012, Qupperneq 47
12. ágúst 2012 47 Nýverið hélt Vigdís Finn-bogadóttir til Þrándheims,gamla Niðaróss, í Noregi þarsem hún var heiðursgestur á Olavsfestdagene sem fór fram dagana 28. júlí til 5. ágúst en þar minnast Norðmenn árlega Ólafs helga. Á setningarathöfn Olavsfestdagene flutti Vigdís meðal ann- ars kveðju frá Íslandi en segja má að til- efnið hafi verið einkar hátíðlegt þar sem Olavsfestdagene voru nú haldnir í fimm- tugasta sinn. Einnig flutti Vigdís tvo fyr- irlestra ásamt Knut Ødegård, skáldi og rithöfundi, og Lars Roar Langslet, fyrr- um menntamálaráðherra Noregs og rit- höfundi, í tilefni af útgáfu nýrrar bókar sem Knut Ødegegård og Lars Roar Lang- slet hafa skrifað um Ólaf helga en Vigdís ritaði innganginn að þeirri bók. „Í heila viku er stöðugt eitthvað um að vera. Það er haldin mikil opnunar- hátíð þar sem fjöldi manna safnast saman við merku miðaldadómkirkjuna sem er sú næststærsta í Norður-Evrópu, og allt- af dettur manni í hug á þessum slóðum: Skyldi ekki Snorri Sturluson hafa séð hana í byggingu? Þar er stórt svið framan við erkibiskupsgarðinn þar sem flutt var tónlist, haldnar ræður og fluttar kveðjur en þar bar ég fram kveðju okkar frá Ís- landi,“ segir Vigdís. „Það er skemmtilegt að dagskrárliðir voru fyrir alla aldurs- hópa. Á opnunarhátíðinni var til dæmis flutt flott trommutónlist, og glæsileg nú- tímahljómsveit steig á sviðið sem popp- aði allt upp, svo að við vorum öll á staðnum komin á ið. En svo var einnig að sjálfsögðu mjög fín klassísk tónlist,“ seg- ir Vigdís. Helgisaga Ólafs dýrlings Ólafur helgi Haraldsson Noregskóngur var tekinn í dýrlingatölu þann 3. ágúst árið 1031 og var saga Ólafs helga skrifuð af Snorra Sturlusyni. „Í kveðju minni minntist ég auðvitað Snorra en vináttan mjög fallegt að sjá á þeim upplausn- artímum sem við lifum, þar sem styrj- aldir, friðleysi í heiminum, fjármálahrun og kreppur einkenna samtímann,“ segir Vigdís. Pílagrímsgangan hafi einnig verið áhugaverð í ljósi áherslu á fjölmenningu sem er ríkjandi í þjóðarumræðu í Noregi. „Við erum af svo mismunandi þjóð- ernum á jörðinni og margt fólk sem hef- ur leitað skjóls í Noregi og sótt um at- hvarf þar.“ Aðspurð hvort umræður um árásirnar í Noregi hafi átt sér stað á hátíðinni segir Vigdís lítið sem ekkert hafa verið um þær. En engu að síður bætir hún við að fortíðin eigi sér mikið erindi við nú- tímann. „Þeir eru mjög sérstakir Norð- menn af því er snertir varðveislu,“ segir Vigdís og nefnir ýmis dæmi. „Þeir hafa varðveitt miðaldadómkirkjuna á glæsi- legan hátt og einnig tengslin við okkur á Íslandi. Þau eru alls staðar mjög sterk á þessu svæði. Þeir gera sér grein fyrir því að þeir ættu ekki þessa miðaldasögu ef Íslendingar hefðu ekki ritað hana. Á þessum slóðum verður maður fulltrúi handritanna.“ Enn eitt dæmið um virðingu fyrir for- tíðinni er úr jarðgangaframkvæmdum Norðmanna. „Það stóðu þrjú hús ofan á þeim stað þar sem þeir ætluðu að byggja jarðgöng. Þeir fluttu húsin í rólegheitum og komu þeim fyrir annars staðar, bora nú jarðgöngin, og hafa svo gert áætlanir um að húsin eigi að fara aftur á sinn stað þegar framkvæmdunum er lokið. Þeir gæta þess mjög vel að gleyma ekki minningunum.“ „Þetta er nákvæmlega það sem mér liggur nú sem fyrr mjög á hjarta. Það má aldrei gleyma fortíðinni. Ég á setningu um þetta sem ég er ekki alveg viss um hvaðan ég hef: „Þjóð sem gleymir fortíð sinni getur ekki átt sér sterka framtíðar- mynd. Við verðum alltaf að byggja á því sem á undan er gengið.“ roða í kinnunum og hár og neglur vaxið eins og hann hafi aldrei dáið. „Mér finnst þetta hrífandi helgisaga,“ segir Vigdís. „Trúin á dýrlinginn heilagan Ólaf varð mikil í Noregi og hún breiddist út til Sví- þjóðar og Danmerkur og það eru einnig margar kirkjur á Íslandi helgaðar heil- ögum Ólafi. En við Íslendingar eign- uðumst brátt okkar eigin dýrling, Þorlák helga, og þar af leiðandi varð dýrkun á Ólafi helga ekki eins mikil hérlendis og hún er í Noregi eða Færeyjum.“ Sérstakir af því er snertir varðveislu Til minningar um Ólaf helga eru enn farnar pílagrímsgöngur eftir endilöngum Noregi. Hún segir merkilegt að pílagrímum fari fjölgandi með hverju ári og í ár hafi verið óvenjumargir pílagrímar. „Píla- grímarnir þegja sem mest á göngunni þar sem hún er helguð hugleiðslu. Þetta er milli Íslands og Noregs á þessum slóðum er alveg einstök. Norðmenn gera sér að sjálfsögðu grein fyrir því að lítið mundum við vita ef Snorri hefði ekki skrifað Ólafs sögu helga,“ segir Vigdís. Ólafur Haralds- son varð helgur maður fyrir þær sakir að hann kristnaði Noreg og í kjölfarið af því er talið að Noregur hafi orðið eitt ríki. Nú er liðið 981 ár frá því að Ólafur Haraldsson féll í Stiklastaðarorrustu og enn er helgi hans mikil í Noregi en hann verður ekki aðeins dýrlingur fyrir það að hafa kristnað Noreg heldur fyrst og fremst vegna þess að menn telja að hann hafi verið píslarvottur og í kjölfar þess er farið að heita á Ólaf helga. Í Ólafssögu helga segir Snorri frá því að rúmu ári eftir að lík hans hafi verið grafið upp hafi yndislegur ferskur ilmur stigið upp úr kistunni þegar hún var opnuð. Þá segir sagan að andlit Ólafs hafi verið eins og það var daginn sem hann féll, með „Mér finnst þetta hrífandi helgisaga,“ segir Vigdís Finnbogadóttir um Ólaf helga en hún var nýverið stödd sem heiðursgestur á Olavsfestdagene í Þrándheimi gamla Niðarósi í Noregi. Morgunblaðið/Árni Sæberg „Fortíðinni má ekki gleyma“ Vigdís Finnbogadóttir var heiðursgestur á Olavsfesdagene í Noregi. Hún segir Íslendinga geta lært fjölmargt af nágrannaþjóð sinni. Lára Hilmarsdóttir larah@mbl.is Vigdís Finnbogadóttir heiðursgestur Olavsfestdagene ásamt Randi Wenche Haugen, fram- kvæmdastjóra hátíðarinnar, og Per Ivar Maudal formanni stjórnar hátíðarinnar og fleirum. Ljósmynd/Kjetil Strand

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.