Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.03.2012, Qupperneq 28

Skinfaxi - 01.03.2012, Qupperneq 28
28 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Kvennalið Njarð- víkur bikarmeist- ari í fyrsta sinn Kvennalið Ungmenna- félags Njarðvíkur varð í fyrsta skipti í sögu félags- ins bikarmeistari í körfu- knattleik þegar liðið lagði Snæfell að velli, 84:77, í úrslitaleik sem fram fór í Laugardalshöllinni 18. febrúar sl. Hvorugt þessara liða hafði orðið bikar- meistari áður og því var ljóst að nýtt nafn yrði letrað á bikarinn eftirsótta. Viðureign liðanna var bráðfjörug og jöfn en Suður- nesjaliðið reyndist sterkara og fagnaði glæstum sigri innilega í leikslok. KARFA: Keflvíkingar bikarmeistarar í sjötta sinn Karlalið Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags varð bikarmeistari í körfuknatt- leik í sjötta sinn þegar lið- ið sigraði Tindastól í hörku- skemmtilegum úrslitaleik, 97:95, í úrslita- leik í Laugardalshöllinni 18. febrúar sl. Kefl- víkingar höfðu frumkvæðið allan leikinn en Tindastólsmenn voru samt aldrei langt undan, gáfust aldrei upp, og undir lokin hljóp spenna í leikinn þegar norðanmenn minnkuðu forskot Keflvíkinga jafnt og þétt. Tindastólsmenn voru þarna að leika fyrsta úrslitaleik sinn og var því leikurinn mikil reynsla fyrir þá sem þeir eiga eftir að búa að. Keflvíkingar hafa á að skipa geysi- lega öflugu liði og voru vel að þessum sigri komnir. Þetta var í sjötta sinn sem þeir hampa bikarnum en síðast urðu þeir bikar- meistarar 2004. Þrátt fyrir ósigurinn geta Tindastólsmenn borið höfuðið hátt, þeir gáfust aldrei upp og voru ansi nálægt því að hafa sigur í lokin. Á fimmta hundrað sjálfboðaliða lagði á sig samtals yfir sjö þúsund stunda vinnu til að Unglingalandsmót UMFÍ yrði að veruleika. Nítján félög lögðu til sjálfboða- liða. Frá þessu var greint á uppgjörsfundi unglingalandsmótsnefndar á Egilsstöð- um þann 16. febrúar sl. Sjálfboðaliðarnir voru alls 431 og vinnustundir þeirra 7176. Flestir sjálfboðaliðanna, 56%, skráðu sig til vinnu fyrir Hött á Egilsstöðum. Flestir sjálfboðaliðar voru að störfum við frjálsar íþróttir eða 100 og næstflestir við knattspyrnu, 57. Flestar vinnustundir voru einnig skráðar á frjálsíþróttirnar, Á fimmta hundrað sjálfboðaliðar komu að Unglingalandsmótinu á Egilsstöðum 2026 eða 28%, en næstflestar á undir- búningsnefndina, 23%. Nefndin var að störfum í um tvö ár. Yfir 60% vinnustund- anna voru skráðar á sjálfboðaliða Hattar en næstflestar á Akstursíþróttafélagið START (6,4%) og á Þrist (4,8%). Engin launuð störf eru inni í þessum tölum. Uppgjör mótsins verður kynnt nánar fyrir aðildarfélögum UÍA á þingi í vor. Tölurnar sýna, svo að ekki verður um villst, þau miklu verðmæti sem ungmenna- og íþróttahreyfingin skapar með sjálfboðaliðavinnu.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.