Skinfaxi - 01.03.2012, Blaðsíða 40
40 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags Íslands:
Reykjavík
Danica sjávarafurðir ehf., Suðurgötu 10
Arkþing ehf., Bolholti 8
Árni Reynisson ehf., Skipholti 50d
Ásbjörn Ólafsson ehf., Skútuvogi 11a
Blaðamannafélag Íslands, Síðumúla 23
BSRB, Grettisgötu 89
Efling stéttarfélag, Sætúni 1
Eignamiðlun, Síðumúla 21
Eyrir fjárfestingafélag ehf.,
Skólavörðustíg 13
Fiskbúð Hólmgeirs í Mjódd,
Þönglabakka 6
Forum lögmenn ehf., Aðalstræti 6
Gáski sjúkraþjálfun ehf - Bolholti og
Mjódd, Bolholti 8 og Þönglabakka 1
Gjögur hf., Grenivík, Kringlunni 7
Gullsmiðurinn í Mjódd, Álfabakka 14b
Heilsubrunnurinn ehf., nuddstofa,
Kirkjuteigi 21
Henson, Brautarholti 24
Hjálpræðisherinn á Íslandi, Kirkjustræti 2
Höfðakaffi ehf., Vagnhöfða 11
Iceland Seafood ehf.,
Köllunarklettsvegi 2
Íslandspóstur hf., Stórhöfða 29
Kjaran ehf., Síðumúla 12–14
Knattspyrnusamband Íslands, Laugardal
Landsnet hf., Gylfaflöt 9
Lífland, Korngörðum
Pixel prentþjónusta, www.pixel.is,
Brautarholti 10–14
Plúsmarkaðurinn, Hátúni 18b
Rafstilling ehf., Dugguvogi 23
Raftíðni ehf., Grandagarði 16
Rolf Johansen & Co. ehf., Skútuvogi 10a
Seljakirkja, Hagaseli 40
Sjómannadagsráð, Laugarási Hrafnistu
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs,
Skógarhlíð 14
Stólpi ehf., Klettagörðum 5
T. ark Teiknistofa ehf., Brautarholti 6
Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf.,
Vesturhlíð 2
Verslunartækni ehf., Draghálsi 4
Vilhjálmsson sf., Sundaborg 1
Kópavogur
Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar ehf.,
Smiðjuvegi 22
Kjöthúsið ehf.,Smiðjuvegi 24d
Kríunes ehf., Kríunesi við Vatnsenda
Léttfeti ehf. - Sendibílar, Engihjalla 1
Norm X ehf., Auðbrekku 6
Rafmiðlun hf., Ögurhvarfi 8
Söluturninn Smári, Dalsvegi 16c
Vídd ehf., flísaverslun, Bæjarlind 4
Hafnarfjörður
Hagtak hf., Fjarðargötu 13–15
Geislatækni ehf., Laser-þjónustan,
Suðurhrauni 12c
J.B.G. fiskverkun ehf., Grandatröð 10
J.K. Lagnir ehf., Skipalóni 25
Raftækniþjónusta Trausta ehf., Lyngási 14
Samhentir – umbúðalausnir ehf.,
Suðurhrauni 4
Umbúðamiðlun ehf., Pósthólf 470
Varma & vélaverk, Dalshrauni 5
Verkalýðsfélagið Hlíf, Reykjavíkurvegi 64
HVAR
ERU ÞAU
Í DAG?
Guðrún
Ingólfsdóttir
Guðrún Ingólfsdóttir, kringlu- og kúlu-
varpari, var til langs tíma ein fremsta
frjálsíþróttakona landsins. Hún á enn í
dag Íslandsmetið í kringlukasti og í kúlu-
varpi innanhúss en bæði þessi met eru
komin til ára sinna. Eftir að ferli Guðrúnar
lauk hefur hún fylgst náið með frjálsum
íþróttum og þjálfað og stutt dóttur sína,
Sigurbjörgu, sem í dag er ein fremsta
frjálsíþróttakona landsins.
Á enn tvö Íslandsmet
,,Jú, það er rétt, Íslandsmet mitt í kringlukasti
stendur enn óhaggað en það setti ég í Reykja-
vík 1983 þegar ég kastaði 53,86 metra. Ein-
hvern daginn verður þetta met slegið, en
hvenær veit enginn. Það hljóta samt að
koma stelpur fram í sviðsljósið sem eiga eftir
að kasta lengra en þetta. Svo á ég Íslandsmet-
ið í kúluvarpi innanhúss, 15,64 metra, en það
setti ég í Reykjavík 1982,“ sagði Guðrún í
spjalli við Skinfaxa.
Ferillinn hófst 1971
Frjálsíþróttaferill Guðrúnar hófst þegar hún
var 12 ára gömul, árið 1971. Þá sigraði hún í
kringlukasti á Landsmóti UMFÍ á Sauðárkróki.
Guðrún hóf ferilinn undir merki Ungmenna-
sambandsins Úlfljóts og keppti með sam-
bandinu í tíu ár. Svo var hún eitt ár hjá
Ármanni. Síðan lá leiðin í KR sem hún keppti
með allt þar til ferlinum lauk. Guðrún keppti
með A-landsliði Íslands allt til ársins 1991 en
frjálsíþróttaferill hennar spannaði yfir 20 ár.
Fyrstu árin eftir að ferlinum lauk tók hún að
sér þjálfun á Hornafirði þar sem hún er fædd.
Hún opnaði líkamsræktarstöð á Hornafirði
og rak hana í tæpa tvo áratugi. Guðrún
segist hafa orðið að loka stöðinni 1994.
Það var ekki rekstrargrundvöllur fyrir henni
lengur en á þeim tíma voru allir að flytja
suður eins og hún komst að orði.
„Ég ákvað þá að fara í skóla, lauk stúdents-
„Hafi einhvern
tíma verið vor í
frjálsum þá
er það nú“
prófi, og fór síðan í listaskólann og nú er ég
starfandi listamaður á Hornafirði.“
Hef fylgt dóttur minni
– Hefur þú ekki eitthvað verið að starfa sem
þjálfari?
„Ég hef aðallega verið með dóttur mína,
Sigurbjörgu Zophaníasdóttur. Ég hef fylgt
henni alla tíð eða allar götur frá því að hún
hóf æfingar í frjálsum íþróttum 13 ára. Ég hef
eiginlega eingöngu verið með hana, reyndar
tók ég einu sinni hóp að mér sem var á sama
aldri og Sigurbjörg fyrstu árin. Hún var síðan
farin að taka það mikið pláss að ég hafði bara
ekki tíma fyrir fleiri með fullri vinnu á öðrum
stöðum. Nú er samstarfi okkar sem þjálfara
og íþróttamanns lokið í bili en ég fæ að vera
á hliðarlínunni sem foreldri. Ég er bara kát
með það en hún er í mjög góðum höndum
þar sem hún er í dag. Hún er núna með fjóra
þjálfara fyrir sunnan og það gengur ofsalega
vel hjá henni,“ sagði Guðrún.
Guðrún segist alltaf fylgjast vel með því
sem er að gerast í frjálsum íþróttum. Hún fór
í margar keppnisferðir með dóttur sinni, bæði
hér innanlands og erlendis. Hún segir bjart
fram undan í frjálsum og margt bráðefnilegt
fólk að koma fram.
Ótrúlega flottir krakkar
„Ef einhvern tíma hefur verið vor í frjálsum
íþróttum þá er það nú. Við erum að eignast
alveg ótrúlega flotta krakka og okkur ber
skylda til að hlúa vel að þessum efniviði og
gera umgjörðina góða. Að 3–4 krakkar skuli
komast á Heimsmeistaramót unglinga er
ekkert lítið í einstaklingsgreinum fyrir litla
þjóð eins og okkar. Framtíðin er björt í frjáls-
um íþróttum. Það er verið að vinna fagmann-
lega í flestöllum málum. Þjálfararnir eru orðnir
meira menntaðir en áður og þeir vita hvað
þeir eru að gera. Frjálsíþróttahöllin í Laugar-
dal fyllist af keppendum og áhorfendum á
öllum mótum og þetta allt er til marks um
mikinn uppgang. Aðstaðan og umgjörðin er
orðin allt önnur og betri en áður og allt sam-
an hjálpar það okkur að ná lengra í íþrótt-
inni,“ sagði Guðrún Ingólfsdóttir í spjallinu
við Skinfaxa.