Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.2012, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.09.2012, Blaðsíða 20
20 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Almenningsíþróttaverkefni UMFÍ Margir tóku þátt í sumar „Það var gaman að sjá hve margir tóku þátt í almenningsíþróttaverkefninu í sum- ar og nýttu sér skráningarkerfið inn á ganga.is til að halda utan um hreyfingu sína í Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga. Það kemur endanlega í ljós síðar í haust hve fjöldinn var mikill þegar við tökum gestabækurnar saman,“ sagði Sigurður Guðmundsson, landsfull- trúi UMFÍ, í samtali við Skinfaxa um verk- efnin sem standa almenningi til boða. Sigurður sagði greinilegt að fjallgöngur séu mjög vinsælar nú um stundir. Dæmi eru um einstakling sem hefur skráð að hann hafi gengið á yfir 100 fjöll. Margir hafi gengið á 30–40 fjöll sem sé líka frá- bær árangur. Sigurður sagði æ fleiri nýta sér efnið á ganga.is en þar væri að finna fjölmargar gönguleiðir um allt land. Einnig má finna þar fróðleik um ýmislegt sem þarf að hafa í huga áður en lagt er af stað í gönguferð. Verkefnið Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga var haldið í annað sinn í sumar og sagði Sigurður að það yrði með óbreyttu sniði á næsta ári. Verkefnið stóð formlega yfir til 15. september en áfram er hægt að skrá hreyfingu inn á ganga.is. Göngum um Ísland Í byrjun sumars kom út bókin Göngum um Ísland. Bókin er alls 128 blaðsíður og þar var að finna útlistun á 300 stuttum gönguleiðum víðs vegar um landið og á þeim 24 fjöllum sem sambandsaðilar UMFÍ tilnefndu í verkefninu Fjölskyldan á fjallið. Í bókinni er einnig að finna ýmsan fróð- leik, t.d. um hvað þurfi að hafa í huga þeg- ar lagt er af stað í gönguferð. Bókinni var dreift á allar N1-stöðvar sem og á sund- staði, upplýsingamiðstöðvar og víðar. Ganga.is Vefsíðan www.ganga.is hefur frá upp- hafi fallið vel í kramið hjá landsmönnum en síðan er aldrei vinsælli en yfir sumar- tímann. Vefsíðan hefur að geyma fjöldann allan af gönguleiðum um allt land sem og fréttir og ýmsa fróðleiksmola sem tengjast hreyfingu. Á vefsíðunni er þátttakendum gert kleift að halda utan um og fylgjast grannt með þeirri hreyfingu sem þeir hafa stundað og margir nýta sér þetta allan ársins hring. Fjölskyldan á fjallið Fjölskyldan á fjallið er verkefni sem sleg- ið hefur í gegn hjá UMFÍ. Gríðarlegur fjöldi fólks hefur tekið þátt í verkefninu frá vori og fram á haust. Tuttugu sambandsaðilar hafa tilnefnt fjöll í verkefnið og skipulagt göngur á þau fjöll. Árlega skrá um 12.000 manns nöfn sín í gestabækur sem komið hefur verið fyrir á tindum fjallanna. Flest eru þau auðveld viðureignar og því kjörin fyrir fjölskylduna að ganga á. Markmiðið með verkefninu er að fá fjölskyldur í létta fjallgönguferð og stuðla þannig að auk- inni samveru, útivist og um leið líkams- rækt innan fjölskyldunnar.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.