Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.2012, Blaðsíða 42

Skinfaxi - 01.09.2012, Blaðsíða 42
42 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Eftirtaldir aðilar styðja starfsemi Ungmennafélags Íslands: Akrahreppur, Miklabæ, Skagafirði Arkþing ehf., Bolholti 8, 2. hæð Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Grettisgötu 89 Bifreiðastöð Þórðar Þ. Þórðarsonar, Dalbraut 6 Bílamálun Egilsstöðum ehf., Fagradalsbraut 21–23 Bílasmiðurinn hf., Bíldshöfða 16 Blaðamannafélag Íslands, Síðumúla 23, 3. hæð Blanda ehf., Melabraut 21 Bókhalds- og tölvuþjónustan sf., Böðvarsgötu 11 Bókráð, bókhald og ráðgjöf ehf., Miðvangi 2–4 Brattás sf., Ægissíðu 11 Bu.is ehf., Pósthólf 37 Búnaðarsamband Suðurlands, Austurvegi 1 Efling stéttarfélag, Sætúni 1 Eldhestar ehf., Völlum Ernst & Young ehf., Borgartúni 30, 4. hæð Eskja hf., Strandgötu 39 Fannberg, viðskiptafræðingar ehf., Þrúðvangi 18 Ferðaþjónustan Bjarnargili ehf., Bjarnargili Ferðaþjónustan Efri-Vík ehf., Efri-Vík Fiskmark ehf., Hafnarskeiði 21 Fjarðaþrif ehf., Strandgötu 46 Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu, Nýheimum Gáski ehf., Bolholti 8 Geislatækni ehf., Laser-þjónustan, Suðurhrauni 12c Gissur og Pálmi ehf., Álfabakka 14a Gistiheimili Stokkseyri ehf., Stjörnusteinum 9 Gistiheimilið Bjarmalandi ehf., Bugatúni 8 Gjögur hf., Kringlunni 7 Glaðheimar – Hótel Blönduós, Blöndubyggð 10 Grunnskólinn í Þorlákshöfn, Egilsbraut 35 Gull- og silfursmiðjan ehf., Álfabakka 14b Heilsubrunnurinn ehf., Kirkjuteigi 21 Héraðsbókasafn Rangæinga, Vallarbraut 16 Héraðsprent ehf., Miðvangi 1 Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf., Einhleypingi 1 Hjálpræðisherinn, Kirkjustræti 2 Hnjúkar ehf., Kaupvangi, Mýrarvegi Hótel Djúpavík ehf., Djúpuvík Húnavatnshreppur, Húnavöllum Húnaþing vestra, Hvammstangabraut 5 Iceland Seafood ehf., Köllunarklettsvegi 2 Ísfélag Vestmannaeyja hf., Strandvegi 28 Íslenska félagið ehf. – Ice Group, Iðavöllum 7a Íþróttabandalag Akraness, Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum Jarðverk ehf., Þingeyjarsveit, Birkimel Járnkarlinn ehf., Unubakka 25 Kaupfélag Skagfirðinga, Ártorgi 1 Sagnagarður Landgræðslunnar Saga landgræðslu í máli og myndum. Fróðleg og lifandi fræðsla um gróðursögu, landeyðingu og endurheimt landgæða á Íslandi. Upplýsingar um opnunartíma í síma 488-3000 og á land.is Landgræðsla ríkisins Munntóbak er afurð unnin úr tóbaks- plöntunni Nicotina tabacum. Á undan- förnum árum hefur það færst í aukana að nota íslenskt neftóbak í vör, sérstaklega meðal ungra karlmanna. Þegar skoðuð er íþróttaiðkun og munntóbaksnotkun kem- ur í ljós að íþróttamenn nota ekkert minna munntóbak heldur en þeir sem eru ekki í neinum íþróttum. Hins vegar nota íþrótta- menn mun minna áfengi og reykja í mun minna mæli. Forvarnir hafa því náð árangri í reykinga- og áfengisvörnum, en ekki munntóbaksvörnum. Munntóbak flokkast undir reyklaust tóbak. Það inniheldur um 2500 efni og eru 28 þeirra krabbameinsvaldandi. Margir telja reyklausa tóbakið hættuminna en reyk- tóbakið, þrátt fyrir að það er unnið úr sömu plöntunni og inniheldur mörg eiturefni og hefur margvísleg áhrif á heilsu manna. Reyklausa tóbakið inniheldur einnig salt sem brennir göt á slímhúð í nefi og munni en þannig kemst nikótínið mun hraðar inn í blóðrásina. Jafnframt eru sætuefni í reyklausa tóbakinu sem hækka sýrustig í munni sem aftur leiðir til aukinna tann- skemmda. Reyklausa tóbakið getur því valdið tannholdsbólgu, tannholdsrýrnun og tannmissi. Í tóbakinu eru einnig N-nítrósamín sem eru krabbameinsvald- andi og finnast eingöngu í tóbaki. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á skaðsemi munntóbaks, en það getur leitt til ýmissa sjúkdóma eins og krabbameins í munni, vélinda og brisi, auk sykursýki, ýmissa efnaskiptasjúkdóma og hjarta- og æða- sjúkdóma. Einnig hefur reyklausa tóbakið mikil áhrif á fóstur í móðurkviði og getur leitt til fyrirmálsfæðingar og fæðingar- krampa. Nikótín er ávanabindandi efnið í tóbak- inu. Það sest í nikótínviðtæki í heilanum, bæði í úttauga- og miðtaugakerfinu og leiðir til losunar á ýmsum hormónum og boðefnum, m.a. dópamíns. Nikótín veldur einnig samdrætti í æðum, hækkun á blóð- þrýstingi og hraðari hjartslætti. Það leiðir líka til aukinnar mjólkursýrumyndunar í vöðvum við æfingar. Þeir íþróttamenn sem nota tóbak eru í mun meiri hættu að meiðast og eru einnig mun lengur að ná sér af meiðslum. Meiðsl í vöðvum, liðum, hnjám, liðböndum og sinum og bak- eymsli ýmiss konar eru algengari meðal munntóbaksneytenda miðað við þá sem ekki nota munntóbak eða reyktóbak sam- kvæmt sænskum rannsóknum. Því er ljóst að þeir sem ætla að ná hámarksárangri í íþróttum ættu að láta allt tóbak vera. Mikilvægt er að þeir sem vinna með börnum og ungmennum séu þeim fyrir- myndir með því að nota ekki tóbak. Börn og ungmenni líta mjög upp til þjálfara sinna sem og leikmanna í meistaraflokk- um. Því er mikilvægt að uppfræða ung- mennin um tóbakið og áhrif þess og einnig að þeir sem starfa í íþróttahreyfing- unni séu sér meðvitaðir um áhrif tóbaks á íþróttaiðkun. Ungmennafélögin vinna hvarvetna að góðum forvörnum og því er mikilvægt að bæta munntóbaksforvörn- um við á þessum árum. Jafnframt þarf að halda áfram með það góða starf sem unnið er í áfengis- og reykingavörnum hjá félögunum. UMFÍ hefur látið útbúa skilti sem sett eru upp í íþróttamannvirkjum sem sýnir að tóbaksnotkun er bönnuð og þar með talið munn- og neftóbakið. Forvarna- nefnd UMFÍ hvetur aðildarfélögin til að koma upp svona skiltum í samstarfi við sveitarfélögin í íþróttamannvirkjum á sínum svæðum. F.h. forvarnanefndar UMFÍ Jóhanna S. Kristjánsdóttir MUNNTÓBAK – REYKLAUST TÓBAK Jóhanna S. Kristjánsdóttir

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.