Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.2012, Blaðsíða 25

Skinfaxi - 01.09.2012, Blaðsíða 25
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 25 Jón Ragnar Hjaltason, Ytra-Garðshorni í Svarfaðardal: „Ég sleppi ekki úr degi. Að vísu datt einn dagur út eigi alls fyrir löngu þegar ég flaug heim til Íslands að að loknu tveggja vikna fríi á Spáni. Hreyfingin á hug minn allan og það er skýring á því. Árið 2009 greind- ist ég með kransæðastíflu, gekkst undir aðgerð og í framhaldinu fór ég á Reykja- lund um haustið. Þar fékk ég frábæra með- höndlun en þar er maður látinn ganga eitt- hvað á hverjum degi. Þessu hélt ég áfram þegar ég kom heim og gekk daglega um fjóra km. Ég var orðinn rúmlega 100 kg en dag einn gáfu eiginkonan og dætur mínar mér hlaupaskó sem ég hélt að ég myndi aldrei nota. Fyrst ég var kominn á alvöru- hlaupaskó fór ég að hlaupa þessa fjóra km en ég var búinn að setja mér það takmark að hreyfa mig ekki minna en 30 mínútur á dag. Ég komst að því að ég var allt of fljót- ur að hlaupa þessa fjóra km og bætti því tveimur við til þess að vera hálftímann á hreyfingu. Stundum hjóla ég líka og fer í golf,“ sagði Jón Ragnar Hjaltason, Ytra- Garðshorni, í samtali við Skinfaxa. Jón Ragnar er umsjónarmaður golfvall- arins í Svarfaðardal og var sjálfur mikið í golfi.Jón Ragnar sagði að eftir kransæðastí- fluna og eftir að hafa losað sig við ein 20 kg hefði honum fundist að hann hefði yngst um mörg ár ef eitthvað var. „Sem ungur strákur var ég ekki að neinu viti í íþróttum, var að gutla í fótbolta eins og gengur hjá ungum drengjum. Ég er 57 ára gamall og þegar sjúkdómurinn sótti að mér fannst mér ég vera orðinn gamall. Á þeim tíma hefði ég ekki treyst mér til að skokka 100 metra. Ég hafði ekkert úthald Almenningsíþróttaverkefni UMFÍ Sleppi ekki úr degi – hreyfing á hug minn allan sem rekja má til þess að ég var orðinn kol- stíflaður í kransæðum. Þetta er allt annað og betra líf í dag og í sumar lét ég mig hafa það að taka þátt í 10 km hlaupi og hljóp það á 50 mínútum. Mín hreyfing dags dag- lega felst að stórum hluta í að hlaupa en stundum hjóla ég líka. Þetta fer allt saman eftir veðri,“ sagði Jón Ragnar. Jón Ragnar sagði að allir verði að gefa sér tíma til að hugsa um sjálfa sig og heils- una og þar skipti hreyfingin sköpum. „Mér er minnisstætt þegar ég beið á Landspítalanum í þrjár vikur eftir að kom- ast í aðgerð. Ég horfði út um gluggann og úti var suðvestan strekkingsvindur í borg- inni og mígandi rigning. Þar úti var mann- eskja að berjast á móti vindinum og rign- ingunni og ég hugsaði hvað ég öfundaði þessa manneskju óskaplega mikið. Þessi minning hefur greypst í mig og maður hugsar: Ég vil frekar vera þessi úti sem berst í rokinu heldur en hinn sem getur ekki hreyft sig af einhverjum sökum. Ég ætla að hreyfa mig áfram og lifa heilbrigðu lífi enda ekkert annað í boði. Ég fékk gula spjaldið ef svo má segja, sumir eru ekki einu sinni svo heppnir. Ég ætla að hreyfa mig áfram hálftíma á dag og hvet fólk til að huga að heilsunni og hreyfa sig,“ sagði Jón Ragnar Hjaltason í spjallinu við Skin- faxa. Jón Margeir Sverrisson, sundmaður úr Fjölni/Ösp, náði frábærum árangri á Ólympíumóti fatlaðra sem fram fór í London dagana 29. ágúst til 9. septem- ber sl. Jón Margeir vann til gullverð- launa í 200 metra skriðsundi karla í flokki S14. Kom hann fyrstur að bakkan- um í úrslitasundinu á tímanum 1.59,62 mínútur sem er nýtt heimsmet og tryggði sér ólympíugullið í greininni. Jón Margeir átti annan besta tímann inn í úrslitin 2.00,32 mínútur. Daniel Fox frá Ástralíu hreppti silfrið en hann átti besta tímann í undanrásunum. Jón Margeir varð í London tólfti íslenski íþróttamaðurinn úr röðum fatl- aðra til að vinna til gullverðlauna á Ólympíumóti. Á 32 árum eða frá árinu 1980 hefur Ísland unnið alls 37 gullverð- laun á Ólympíumóti fatlaðra og flest þeirra eða níu talsins vann Sigrún Huld Hrafnsdóttir á Ólympíumóti þroska- hamlaðra í Madríd á Spáni árið 1992. Eftirtaldir íþróttamenn hafa unnið til gullverðlauna á Ólympíumótum fatlaðra: Sigurrós Karlsdóttir – 1980 Haukur Gunnarsson – 1988 Lilja M. Snorradóttir – 1988 Geir Sverrisson – 1992 Ólafur Eiríksson – 1992/1996 Sigrún H. Hrafnsdóttir – 1992 Guðrún Ólafsdóttir – 1992 Bára B. Erlingsdóttir – 1992 Katrín Sigurðardóttir – 1992 Kristín Rós Hákonardóttir – 1996/2000/2004 Pálmar Guðmundsson – 1996 Jón Margeir Sverrisson – 2012 Ísland hefur unnið til samtals 98 verðlauna á Ólympíumótum fatlaðra frá árinu 1980. Alls eru gullverðlaunin orðin 37 talsins, 19 silfurverðlaun og 42 bronsverðlaun. Jón Margeir fékk höfðinglegar móttökur við komuna til Íslands eftir frækilegan árangur í London. Að lok- inni móttökuathöfn í Leifsstöð og mót- töku á vegum Íþróttasambands fatl- aðra fór Jón til móttökuathafnar sem Sunddeild Fjölnis hélt honum til heiðurs. Mikill fögnuður varð þegar Jón hitti æfingafélagana á ný. Krakkarnir voru stoltir yfir að hafa slíkan afreks- mann í hópnum og ríkti mikil gleði. Jón fékk blóm og heillaóskir frá stjórn deildarinnar auk þess sem aðalstjórn Fjölnis sendi honum heillaóskir Jón Margeir vann gull og setti heimsmet á Ólympíumóti fatlaðra Jón Margeir Sverrisson, sund- maður úr Fjölni/ Ösp vann gull- verðlaun á Ólympíumóti fatlaðra í London.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.