Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.2012, Blaðsíða 38

Skinfaxi - 01.09.2012, Blaðsíða 38
38 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Holl næring er öllum nauðsynleg, ekki síst börnum sem eru að vaxa og þroskast. En hvað á að gefa börnunum að borða þannig að þeim líði vel og gangi sem best í leik og starfi? Morgunverðurinn er oft sagður mikil- vægasta máltíð dagsins. Hann þarf þó ekki að vera flókin máltíð, t.d. er kornmatur og mjólkurmatur ásamt ávöxtum eða hráu grænmeti góður morgunmatur og getur samsetningin verið á ýmsa vegu. Sem dæmi má nefna hafragraut eða morgun- korn með léttmjólk og ávöxt, brauð með áleggi og grænmeti ásamt léttmjólk eða súrmjólk með múslí ásamt ávaxtabita. Þeir sem hafa meiri lyst á morgnana geta bætt við brauðsneið með áleggi. Velja ætti sýrðar mjólkurvörur og morgunkorn með sem minnstum viðbættum sykri. Ein te- skeið (5 ml) af þorskalýsi eða annar D-víta- míngjafi er svo ómissandi með morgun- matnum. Nesti Fyrir þá sem borða vel á morgnana hent- ar vel að fá sér ávöxt og eitthvað að drekka, t.d. vatn í nestistíma á morgnana. Hinir sem hafa borðað minna þurfa meira að borða, t.d. samloku með góðu áleggi til viðbótar við ávöxtinn. Æskilegast væri ef börnin gætu fengið ávextina í áskrift líkt og tíðkast hefur með drykkina í skólanum, því þeir vilja oft velkjast í skólatöskunni og eru þá ekki lystugir. Hádegi Í hádeginu ætti svo öllum börnum að standa til boða holl máltíð í skólanum. Til að stuðla að því hefur Embætti landlæknis (áður Lýðheilsustöð) gefið út Handbók fyrir skólamötuneyti. Í henni er mælt með að börnin fái heita máltíð í hádeginu sem flesta daga vikunnar. Fjölbreytnin skal höfð í fyrirrúmi, m.a. er mælt með að fiskur sé á borðum tvisvar í viku en saltur og reyktur matur sem sjaldnast. Ávallt sé grænmeti og/eða ávöxtur með hádegismatnum og einnig kalt vatn að drekka og léttmjólk með orkuminni máltíðum. Ávaxta- og grænmetisneysla íslenskra barna er mjög lítil. Sex ára börn borða t.d. einungis sem svarar ¼ úr gulrót og ½ ávexti á dag að meðaltali. Skólinn er kjörinn vettvangur til þess að stuðla að bættum neysluvenjum barnanna. Með því að bjóða upp á ávexti á morgnana og grænmeti og/eða ávöxt með hádegismat leggur skólinn sitt að mörkum til að auka ávaxta- og grænmetis- neyslu barna. Matartíminn ætti að vera hluti af námi barnanna í skólanum en í honum gefst kjörið tækifæri til að ræða við börnin á jákvæðan hátt um hollustu og gæði matarins. Síðdegishressing Um miðjan dag ættu svo börnin að fá hressingu, annaðhvort í skólanum, þau sem eru í lengdri viðveru, eða heima. Gjarn- Næring skólabarna an gróft brauð, hrökkbrauð eða bruðu með viðbiti og áleggi, léttmjólk að drekka og ávöxt eða glas af hreinum ávaxtasafa í stað mjólkur öðru hverju. Kökur, kex og annað sætmeti ættu ekki að vera á borðum dags daglega en sjálfsagt er að gera sér dagamun. Mikilvægt er að foreldrar hugi að því að hafa til hollan og aðgengilegan mat á heimilunum þegar börnin koma heim, þannig að það sé auðvelt fyrir börn- in að velja holla hressingu. Kvöldmatur Foreldrar þurfa svo að fá góðar upplýs- ingar um matinn sem börnin fá í skólan- um. Þannig geta þeir samræmt matinn á heimilinu við matinn í skólanum svo að fæða barnsins verði ekki einhæf. Matseðla má t.d. birta á heimasíðu skólans. Næg hreyfing er svo börnunum mikil- væg ekki síður en hollur matur og ættu þau að hreyfa sig minnst klukkustund á degi hverjum. Einnig er sjálfsagt að minna á að vatn er besti svaladrykkurinn. • Vatn er best svaladrykkurinn • Grænmeti og ávextir – 5 á dag • Kökur, kex og annað sætmeti ætti ekki að vera á borðum dags daglega en sjálfsagt er að gera sér dagamun öðru hverju • Börn ættu að hreyfa sig minnst eina klukkustund á hverjum degi Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar, Embætti landlæknis Hólmfríður Þor- geirsdóttir, verk- efnisstjóri næring- ar, Embætti land- læknis. Um eitt hundrað manns mættu í 80 ára afmælisboð Ungmennasambandsins Úlf- ljóts sem haldið var í Mánagarði í Nesjum um síðustu mánaðamót. Sambandið var stofnað 28. maí árið 1932. Aðstæður í Hornafirði voru aðrar þá en nú, tvær óbrú- aðar ár og samgöngur og samskipti því takmörkuð. Menn létu það samt ekki stöðva sig í að stofna sambandið. „Þó að aðstæður til æfinga og keppni hafi ekki verið góðar á þessum tíma létu félagsmenn það ekki stöðva sig heldur keyrðu starfið áfram af áhuga, bjartsýni og með stuðningi góðra manna,“ sagði í kveðju Helgu Guðjónsdóttur, formanns UMFÍ. Gunnar Gunnarsson, formaður UÍA, var fulltrúi UMFÍ á afmælishófinu. Hann færði USÚ gjöf og flutti kveðju formannsins. Stærstu verkefnin, sem USÚ hefur ráðist í, eru Unglingalandsmót UMFÍ. Mótið verð- ur haldið á Höfn í annað sinn á næsta ári en það var áður haldið þar árið 2007. Undir- búningur fyrir mótið 2014 er kominn á fullt og undirbúningsnefnd tekin til starfa. Af öðrum verkefnum USÚ má nefna merk- ingu gönguleiða, m.a. yfir Almannaskarð, í samstarfi við ferðafélagið á svæðinu. Vel mætt í 80 ára afmælisboð USÚ Gunnar Gunnars- son færir Matt- hildi Ásmundar- dóttur, formanni USÚ, gjöf frá UMFÍ.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.