Skinfaxi - 01.09.2012, Blaðsíða 37
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 37
Metþátttaka
í skólahlaupi
UMSK
Um 800 nemendur tóku þátt í skóla-
hlaupi UMSK sem fram fór á Kópavogs-
velli og var þetta fjölmennasta hlaupið
sem haldið hefur verið. Öllum krökkum í
4.–7. bekk í grunnskólum á UMSK-svæðinu
var heimil þátttaka. Veittar voru viðurkenn-
ingar fyrir fyrstu þrjú sætin í hverjum ald-
ursflokki hjá stelpum og strákum. Bræðra-
bikarinn féll Flataskóla í skaut. Bikarinn er
veittur þeim skóla sem hlutfallslega er
með flesta þátttakendur í Skólahlaupi
UMSK.
Við upphaf hlaupsins á Kópavogsvelli.
Glæsilegur árangur náðist á Evrópumót-
inu í hópfimleikum sem fram fór í Árósum í
Danmörku dagana 19.–21. október sl. Lands-
lið kvenna og landslið stúlkna tryggðu sér
bæði titil Evrópumeistara með sannfærandi
hætti. Íslenska kvennalandsliðið varði þar
með titilinn sem Gerpla vann fyrst fyrir
tveimur árum.
Íslenska kvennaliðið framkvæmdi æfingar
sínar nánast óaðfinnanlega í úrslitakeppn-
inni og uppskar gullverðlaunin þegar upp
var staðið. Svíþjóð fékk silfrið og Finnland
bronsið. Noregur hafnaði í fjórða sæti, Dan-
mörk í fimmta og Þýskaland í sjötta sæti. Tíu
lið tóku þátt í mótinu og þessi sex komust
áfram úr undankeppninni.
Íslenska stúlknaliðið lék sama leikinn eftir
jafna og spennandi keppni. Íslenska liðið átti
frábæran seinni dag, skaut heimamönnum
ref fyrir rass og Danir urðu að sætta sig við
annað sætið. Svíar urðu þriðju, Norðmenn
fjórðu, Finnar fimmtu og Bretar sjöttu, en sjö
þjóðir tóku þátt í mótinu í þessum flokki.
Þessi árangur er hreint út sagt frábær og
er árangur af mikilli vinnu okkar fólks. Á það
jafnt við um keppendur, þjálfara og aðra sem
að liðinu koma.
Landslið kvenna í unglingaflokki var
þannig skipað: Agnes Þóra Sigþórsdóttir,
Andrea Sif Pétursdóttir, Dóra Sóldís Ás-
mundsdóttir, Eva Grímsdóttir, Harpa Guðrún
Hreinsdóttir, Herdís Athena Þorsteinsdóttir,
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Inga Aðal-
heiður Pétursdóttir, Inga Valdís Tómasdóttir,
Kolbrún Þöll Þorradóttir, Margrét Lúðvigs-
dóttir, Sara Margrét Jóhannesdóttir, Sóley
Ólafsdóttir, Þórey Ásgeirsdóttir. Þjálfarar
liðsins eru Niclaes Jerkeholt, Hrafnhildur
María Gunnarsdóttir og Stella Rósenkranz.
Landslið kvenna í fullorðinsflokki var
þannig skipað: Ásdís Guðmundsdóttir,
Ásta Þyrí Emilsdóttir, Birta Sól Guðbrands-
dóttir, Fríða Rún Einarsdóttir, Glódís
Guðgeirsdóttir, Harpa Snædís Hauksdótt-
ir, Ingunn Jónasdóttir Hlíðberg, Íris Mist
Magnúsdóttir, Kristjana Sæunn Ólafsdótt-
ir, Rakel Tómasdóttir, Salvör Rafnsdóttir,
Sif Pálsdóttir, Sólveig Ásta Bergsdóttir,
Valgerður Sigfinnsdóttir. Þjálfarar liðsins
eru Björn Björnsson, Bjarni Gíslason og
Ása Inga Þorsteinsdóttir.
Tveir Evrópumeistaratitlar í hópfimleikum
Íslenska kvenna-
landsliðið varði
Evrópumeistara-
titil sinn sem það
vann fyrst fyrir
tveimur árum.