Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Side 8
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds semur tónlist fyrir
bandarísku kvikmyndina Gimme Shelter. Myndin er
byggð á sannsögulegum atburðum um harða lífsbaráttu
unglings í Bandaríkjunum.
Með aðalhlutverk fara Brendan Fraser og Vanessa
Hudgens sem íslenskir unglingar þekkja margir hverjir
úr myndunum High School Musical. Hudgens leik-
ur í myndinni ólétta heimilislausa unglings-
stelpu.
Fréttasíðan Film Music Reporter greindi
frá þessu fyrir nokkrum dögum og er þess
getið í fréttinni að Ólafur hafi áður komið að
myndinni Another Happy Day með Ellen
Barkin og Ezra Miller. Ekki er ljóst hvenær
myndin verður tekin til sýninga. AFP
Bætir á sig blómum
Í myndinni sem
Ólafur semur
tónlist við leika
Brendan Fraser
og Vanessa
Hudgens.
Vettvangur
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.10. 2012
Fyrir tveimur árum, nánast upp á dag, efndiþáverandi dómsmála- og mannréttinda-ráðuneyti til samráðsfundar um meðferð
nauðgunarmála í réttarkerfinu. Til fundarins var
boðið fulltrúum allra stofnana réttarkerfisins,
þingflokka, fagfélaga, frjálsra félaga og stofnana
og samtaka sem koma með öðrum hætti að mála-
flokknum. Um fjörutíu manns tóku þátt í fund-
inum en á honum var reynt að varpa ljósi á feril
nauðgunarmála í gegnum réttarkerfið og ástæð-
ur þess að fjölmargir brotaþolar virðast ekki
leita til réttarkerfisins.
Á þessum tíma þótti einstaka aðilum umræðan
ekki vera til góðs – jafnvel ámælisverð – og létu
sumir þá skoðun í ljósi opinberlega, aðrir bréf-
lega eða augliti til auglitis. Á milli réttarkerfisins
annars vegar og stjórnmálanna hins vegar ætti
að vera eldveggur og helst þannig að ekki heyrð-
ist á milli. Við sem að þessu fundahaldi stóðum
töldum á hinn bóginn eðlilegt að umræður ættu
sér stað milli stjórnamálanna og réttarkerfisins
um málaflokka sem varða almannaheill. Við slíku
væri ekki hægt að fyrtast. Í málefnalegri um-
ræðu væru ekki fólgin óeðlileg afskipti stjórn-
málamanna nema síður væri. Réttarkefið yrði að
virða rétt stjórnmálanna til umræðu á sama hátt
og stjórnmálamönnum bæri að virða sjálfstæði
réttarkerfisins. Annað væri ávísun á stöðnun.
Frá þessum tíma hefur mikið vatn runnið til
sjávar og má nú merkja mikinn vilja allra hlut-
aðeigenda til samstarfs og opinnar umræðu með
það að markmiði að betrumbæta réttarkerfið þar
sem þess er kostur – og kannski líka stjórnmála-
hefðina; gera stjórnmálaumræðu hnitmiðaðri og
lausnamiðaðri.
Í framhaldi af fyrrgreindum samráðsfundi voru
haldnir smærri fundir. Þar komu fram fjölmargar
ábendingar um betrumbætur á réttarkerfinu en
jafnframt ríkt ákall um frekari fræðslu, rann-
sóknir og umræðu. Ráðuneytið tók þetta alvarlega
og hefur í samstarfi við lagadeild Háskóla Íslands
stuðlað að umræðu um þessi málefni. Þar ber hæst
alþjóðlega ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota, í
samvinnu við Evrópuráðið, sem fram fór í janúar
sl. Á þeirri ráðstefnu talaði Liz Kelly, sem er einn
virtasti fræðimaður Evrópu þegar kemur að upp-
lifun brotaþola kynferðisofbeldis af að leita réttar
síns. Erindi hennar er ásamt öðrum aðgengilegt á
heimasíðu innanríkisráðuneytisins.
Alþingismenn almennt sýndu lengi vel ekki mik-
inn áhuga á þessu samráði þótt á því væru undan-
tekningar. Þannig sóttu afar fáir stjórnmálamenn
samráðsfundina og ráðstefnuna í janúar. Var það
miður, enda mikilvægt að samstaðan um að taka á
kynferðisofbeldi sé sem víðtækust. Ofbeldið varð-
ar samfélagið allt og þarf að taka á því sem slíku.
Aðkomufólk erlendis frá á ráðstefnunni sagði á
hinn bóginn það vera til fyrirmyndar og eftir-
breytni að saman væri komið til uppbyggilegrar
umræðu um brotalamir í kerfinu og mögulegar úr-
bætur, eins margt fólk og þarna var frá grasrótar-
samtökum, dómstólum, lögreglu og fræða-
samfélagi. Enda varð umræðan eftir því.
Nú virðist Alþingi hins vegar vera að vakna til
lífsins því í vikunni efndi þingnefnd til samtals um
meðferð kynferðisbrota í réttarkerfinu. Þetta er
fagnaðarefni því ekki megum við sofna á verð-
inum. Þótt umræðunni hafi verið hreyft þá er
langt í land að björninn sé unninn. Við erum rétt
að byrja. Við höfum fundið fyrir vaxtarverkjum
umræðunnar og sjáum breytta tíma framundan.
Þessi mál mega ekki liggja í þagnargildi, enda
varða þau líf og heilsu einstaklinga og velferð sam-
félagsins í heild.
Vaxtarverkir umræðunnar
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur
Jónasson
ogmundur@althingi.is
Æla í Hörpu
Dr. Gunni sagði á blogginu sínu
drgunni.wordpress.com frá
skrautlegum
Stuðmanna-
tónleikum.
„Nokkrar
sögur heyrði
ég af upp-
köstum gesta;
bæði áttu þeir fyllstu að hafa
gubbað á bak annarra gesta og
líka var ælt fram af svölum á
óheppna hátíðargesti fyrir neð-
an.“
Páll Ragnar Pálsson tónlistar-
maður brást við þessu á Fa-
cebook: „Það eru bara allir að
æla þessa
dagana, Justin
Bíber og Leidí
Gaga, svo
bara astral-
tertan sjálf á
flugi fram af svölunum í Hörpu á
Stuðmannatónleikunum um dag-
inn. Það eru sumir að tala um að
þetta verði stærra en plankið í
fyrra!“
Lady Gaga
Unnur Ösp Stefánsdóttir
leikkona skrifaði á Facebook:
„Hitti þrjá öfga-töffara, sem
allar hafa
hrist upp í
innblæstrinum
á síðustu ár-
um, mega-
fyrirmyndir
og algjörir
brautryðj-
endur, almennilegar drottningar:
Yoko Ono, Susanne Bier og Lady
Gaga … ussssss, gaman að vera í
fæðingarorlofi! Áfram stelpur!“
Fjölmargir
aðdáendur
biðu Lady
Gaga í ofvæni
við Hótel
Borg. Popp-
stjarnan tók
vel á móti aðdáendunum. Óttar
M. Norðfjörð rithöfundur
sagði um málið á Facebook:
„Söguleg stund. Að stjörn-
urnar séu „látnar í friði“ á Íslandi
heyrir greinilega sögunni til.“
AF NETINU
Gunnar Lárus
Hjálmarsson
Páll Ragnar Pálsson
Unnur Ösp
Stefánsdóttir
Óttar Martin
Norðfjörð
Úti um allt land tók fólk þátt í Bleika
deginum með því að mæta í einhverju
bleiku í vinnuna. Bleiki dagurinn er ár-
vekni- og fjáröflunarátak Krabbameins-
félags Íslands gegn krabbameinum hjá
konum. Meðal þeirra sem klæddust
bleiku voru starfsmenn Lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu og mátti meðal
annars sjá bleikum bindum bregða fyrir
og þá var Sigríður J. Hjaltested,
aðstoðarsaksóknari mætt í glæsilegu
bleiku pilsi til vinnu.
Jón Arnar Guðmundsson
rannsóknarlögreglumaður
og Sigríður J. Hjaltested
aðstoðarsaksóknari.
Bleik
lögreglu-
bindi