Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Page 12
O
fbeldi brýtur niður sjálfsmyndina og allt sjálfs-
traust og raunar allt traust. Ég á mjög erfitt
með að treysta fólki og ég treysti nánast engum
fullkomlega,“ segir Björg Arndal sem var þol-
andi ofbeldis og nauðgunar. ,,Ég á mjög erfitt með að mynda
tengsl við fólk. Ég hleypi engum nálægt mér, ég hleypi engum
inn. Ómeðvitað er ég að koma í veg fyrir að fólk særi mig.“
Hún er hæglát og talar lágt en ákveðið þar sem við sitjum við
fallegt viðarborð í litlu stofunni hennar í miðbænum. Brosið er
feimnislegt.
Björg var 18 ára þegar henni var nauðgað. „Ég leitaði mér
ekki hjálpar heldur reyndi að telja mér trú um að ofbeldið
hefði ekki átt sér stað, að þetta hefði ekki verið nauðgun. Ég
sagði engum frá. Ég var hrædd um að ef fólk vissi af þessu þá
liti það öðruvísi á mig. Ég er núna að takast á við þetta áfall
og fleiri. Í fyrstu gat ég ekki einu sinni sagt orðið ,,nauðgun“.
Vorið 2008 bognaði Björg undan álagi. ,,Þetta hafði verið
mikill feluleikur. Ég vildi ekki að neinn vissi. Mér leið auðvit-
að illa meðan á ofbeldinu stóð en var heilaþvegin til að trúa
því að það væri mér að kenna. Ég reyndi því að láta ekkert
bera á því út á við. Það er bara á síðustu tveimur árum sem
ég hef áttað mig á að skömmin og sökin á ekki heima hjá mér
heldur ofbeldismanninum. En ég var brotin og einn daginn,
þegar enn eitt áfallið dundi yfir, gat ég bara ekki meira og
brotnaði algjörlega saman, grét og öskraði og missti allt raun-
veruleikaskyn. Þetta átti sér samt aðdraganda og var ferli en
þennan dag fannst mér ég ekki ná andanum og það var kallað
á sjúkrabíl, þar sem ég fékk súrefni.“ Í kjölfarið var ég lögð
inn á geðdeild Landspítalans í fyrsta skipti.
Greind með áfallakvíðaröskun
Hún segir þetta hafa verið skrítinn tíma. ,,Ég var fyrst þrjá
mánuði inni á geðdeild, sem er óvenjulega langur tími á
bráðamóttökudeild, þar sem fólk liggur yfirleitt ekki nema
stuttan tíma. Fyrstu vikurnar þagði ég bara. Magnea, systir
mín, kom og heimsótti mig daglega. Mig minnir hins vegar að
hún hafi komið í mesta lagi einu sinni í viku. Hún segir að ég
hafi setið og starað út í loftið og hún haldið einræðu.“ Björg
var greind með þunglyndi og kvíðaröskun en fyrir tveimur ár-
um fékk hún greininguna áfallakvíðaröskun. ,,Þá fékk ég við-
eigandi meðferð og fór að líða betur og loks að geta unnið mig
í gegnum þau áföll sem ég hafði orðið fyrir og ekki tekist á
við.“
Fannst allir stara á sig, bilaða manneskjuna
Björgu gekk vel í skóla og var á öðru ári í viðskiptafræði við
Háskóla Íslands ásamt því að vera í hlutastarfi þegar hún
brotnaði saman. „Smám saman fór þó að ganga verr í náminu.
Kvíðaköstin ágerðust og ég varð sífellt félagsfælnari. Þegar ég
fæ ofsakvíðaköst næ ég ekki andanum og er viss um að ég sé
að deyja. Ég finn fyrir náladofa og kulda í höndum og fótum
svo eitthvað sé nefnt. Ég fann yfirleitt þegar kvíðaköstin voru
að koma og reyndi þá að fara afsíðis eins og á salernið á með-
an þau gengu yfir. En dag nokkurn fékk ég kvíðakast fyrir
framan bekkinn og þá gafst ég upp. Mér fannst allir stara á
mig, bilaða manneskjuna.“
Fannst þér þú vera biluð? „Já,“ svarar Björg hreinskiln-
islega. ,,En mér finnst það ekki eins núna, ég er dálítið brotin
en alls ekki eins og ég var.“
Hún þakkar fyrir aðstoðina sem hún hefur fengið frá starfs-
fólki geðdeilda Landspítalans, en þangað hefur hún þurft
leggjast inn nokkrum sinnum síðan vorið örlagaríka, sem og
iðjuþjálfuninni. ,,Ég reyndi að fara aftur í skólann en það
gekk ekki upp. Ég hef fengið aðstoð geðlækna og sálfræðinga
til þess að takast á við áföllin og ég var lengi í iðjuþjálfun
Landspítalans sem hjálpaði mér mjög mikið. Þar lærði ég að
sauma, sem núna er eitt af áhugamálunum,“ segir hún og
brosir og til vitnis um það liggja í sófanum tveir fallegir út-
saumaðir púðar með myndum eftir málarann Gustav Klimt.
Stórt skref að fara í viðtal
Björg er í raun að læra að lifa upp á nýtt en fortíðin bankar
enn á dyrnar. ,,Mér leið mjög vel í sumar og fannst meðferðin
vera farin að skila árangri. Ég var að vinna. Það var rosalega
gaman. Þá fannst mér ég nokkuð eðlileg,“ segir hún og hlær.
Notarðu mikið skilgreiningarnar biluð/eðlileg? „Ég veit það
ekki, ég hef aldrei spáð í það. Já, ætli það ekki. Ég hef alltaf
reynt að hegða mér eins og „eðlilega“ fólkið, mér finnst ég
minna virði en aðrir því ég er svo biluð.
En svo kom niðursveifla, atvik í nútíðinni urðu kveikjur að
gömlum minningum. ,,Ég endurupplifi stundum öll áföllin, ná-
kvæmlega eins og þau gerðust með öllum tilheyrandi tilfinn-
ingum. Ég er ekki enn búin að vinna mig út úr þeim. Ég er
að reyna að opna mig meira og það er stórt skref að fara í
viðtal eins og þetta.“ En Björg hefur markmið. ,,Ég vil bæði
leggja til umræðunnar um ofbeldi og afleiðingar þess og eins
vekja athygli á góðu starfi geðdeilda Landspítalans. Ég er af-
skaplega þakklát fyrir alla þá aðstoð sem starfsfólk geðdeilda
Landspítalans hefur veitt mér. Hún er ómetanleg og ólýs-
anlegt hvað starfsfólkið er yndislegt og gott en ég hef áreið-
anlega stundum reynt á þolrifin því ég á svo erfitt með að
treysta fólki. En ég veit ekki hvar ég væri í dag ef ekki fyrir
það.“
Og til þess að sýna þakklæti sitt í verki settist Björg síðast-
liðið vor í stjórn Brospinnanna – áhugahóps um bættan að-
búnað á geðdeildum Landspítalans og ætlar nú um helgina að
selja Brospinna til styrktar málefninu.
Hún á sér líka framtíðarsýn. ,,Ég vonast til að geta aftur
farið að vinna en ég er óvinnufær sem stendur. Ég reyni eins
og ég get að vera bjartsýn, að ég eigi eftir að ná nægilega
miklum bata til að geta aftur tekið virkan þátt í þjóðfélaginu.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skömmin á ekki heima hjá mér
OFBELDI HEFUR ÁHRIF Á MANNESKJU OG BREYTIR HENNI AÐ EILÍFU. ÞAÐ VEIT BJÖRG ARNDAL SEM GLÍMIR VIÐ ÁFALLASTREITURÖSKUN Í KJÖLFAR
NAUÐGUNAR. BJÖRG SITUR Í STJÓRN BROSPINNANNA OG VINNUR NÚ AÐ ÞVÍ AÐ NÁ FULLUM BATA OG GETA TEKIÐ VIRKAN ÞÁTT Í ÞJÓÐFÉLAGINU
Unnur Hrefna Jóhannsdóttir uhj@simnet.is
Björg Arndal segist vilja segja
sögu sína af áfallastreituröskun
með það að markmiði að leggja
til umræðunnar um afleiðingar
ofbeldis. Hún er þakklát starfs-
fólki geðdeilda LSH og segir
starf þess ómetanlegt.
Brospinnarnir eru tákn
um gleði, bata og bætt
kjör. Þá er hægt að kaupa
á www.brospinnar.is.
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.10. 2012
Viðtal