Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Side 16
High Line-garðurinn á Manhattan-eyju í New York nýtur mikilla vinsælda »16
„Hjólaði 20 km, lítið mál ekki
satt? Það er erfitt að gera í
Reykjavík, lítil og yndisfögur…
eins og eiginkona mín.“
„Ég reikna með að það sé
morgunn, það er enginn munur
á nóttu eða degi. Held að það
dimmi bara alls ekki. Ný reynsla
fyrir mig – 24 klukkutíma sól-
skin.“
Russell Crowe,
Reykjavík
„Magnaðasta veðurkerfi
fyrr og síðar.“ Ben Stiller,
Seyðisfjörður
„Gæti hugsað mér
að flytja fjölskylduna
hingað.“ Ben Stiller
tístar úr þyrlu þegar
hann lendir í Reykjavík.
„Íslenskir klúbbar eru eins
og slammholur - ég fer aftur
heim með dansher.“ Emma
Watson eftir reynslu sína af
næturlífinu, Reykjavík
„Kafa í Silfru,
tærasta vatn í heimi,
ég finn ekki fyrir
vörunum mínum.“
Ben Stiller.
„Aumingja lundinn.“
Darren Aronofsky,
Vestmannaeyjar
„Verk álfa?“ leikstjóri
Noah um grjóthrúgu
sem líktist skúlptúr.
Darren Aronofsky,
Kleifarvatn
„Mjög sérstakur staður, krefjandi,
vandaður, ólgandi, notalegur og
hrífandi.“ Russell Crowe um
Ísland stuttu fyrir brottför.
„Hugsanlegur tökustaður
fyrir myndina mína, verðum
þó að passa að hrapa ekki
fram af.“ Ben Stiller,
Skálafellsjökull
„Fór í sjóinn síðasta mánu-
dag, ég get ekki lýst áfallinu
út af kuldanum. Frétti það í
morgun að þetta væri
hættulegasta strönd
Íslands,“ Russell Crowe,
Reynisfjara
„Ísland er nýja heimili mitt.
Ég elska það. Instagram-
himnaríki.“ Connor
Cruise, sonur Tom
Cruise, Þingvellir.
„Eitt það kaldasta sem
ég hef nokkurn tímann
reynt. Stórfenglegt.“
Connor Cruise,
sonur Tom Cruise eftir
flúðasiglingu. Hvítá
„Takk Ísland fyrir að
gefa okkur allt.“ Regn-
bogi birtist yfir hrauninu,
Darren Aronofsky,
Raufarhólshellir
„Ó, Ísland!“ Hjá ónefndum
íslenskum foss. Flea, bassa-
leikari Red hot Chilli Peppers
„Fylli á tankinn á Íslandi
Azerbaijan, við erum á
leiðinni!“ Jennifer Lopez,
Keflavíkurflugvöllur
Tíst um Ísland
TÍST HEIMSSTJARNA Á TWITTER VAKTI ATHYGLI Í ALLT SUMAR. SÉR Í LAGI ÞAÐ TÍST ER SNERI AÐ ÍSLANDI.
AÐ NEÐAN MÁ SJÁ HVAÐA STAÐI LANDSINS ÚTLENDUM OG FRÆGUM GESTUM OKKAR ÞÓTTI ÁSTÆÐA TIL AÐ
TÍSTA EITTHVAÐ UM Á SAMSKIPTAVEFNUM OG JAFNFRAMT HVAÐ ÞEIR SÖGÐU UM LAND OG ÞJÓÐ:
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Turnklukkan við Bakili Muluzi brúna yfir Shire ána er áber-
andi kennileiti í héraðshöfuðborginni Mangochi í Malaví.
Turninn var reistur árið 1901 til heiðurs Viktoríu Englands-
drottningu. Klukkan er hætt að telja tímann enda felast ekki í
honum sérstök verðmæti í þessu fátæka landi. Brúin yfir Shire
er bæjarprýði, tvíbreið með bogadregnum línum og hönnuð fyr-
ir mikla bílaumferð þó mest beri á gangandi og hjólandi vegfar-
endum. Borgin nefndist Ford Johnston á nýlendutímum þegar
Englendingar réðu ríkjum í Nýasalandi einsog þeir nefndu
Malaví. Apaflói í þessu héraði var samvinnuvettvangur Íslend-
inga og Malava í þróunarmálum um árabil.
Gunnar Salvarsson upplýsingafulltrúi
Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Með vonargleði í augum horfir fólkið af brúnni í átt til bjartari framtíðar.
Gunnar Salvarsson er víðförull.
Tímalaus turn í fjarlægu landi.
Klukkan telur ekki tímann
PÓSTKORT F
RÁ MALAVÍ
*Ferðalög og flakk