Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.10. 2012
Ferðalög og flakk
Skógarhlí› 18 • 105 R
Kanarí
Sértilboð frá kr.99.900
30. október
– 23 nætur
21. nóvember
– 13 nætur
Frá kr. 99.900 í 13 nætur / frá kr. 109.900 í 23 nætur
Netverð á mann, m.v. 2-3 í íbúð með einu svefnherbergi á Green Park *** .
Aukagjald fyrir einbýli kr. 24.700. Sértilboð 22. nóvember í 13 nætur.
Sértilboð 30. október í 23 nætur kr. 109.900. M.v. 2-3 í íbúð með einu svefnherbergi.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 59.800.
E
inn mildan laugardag í september reikaði ég milli galleríanna í
Chelsea-hverfinu á Manhattan, eins og venjulega þegar ég heim-
sæki þessa gömlu heimaborg mína. Á síðustu árum hafa flestöll
stóru galleríin komið sér fyrir þar vestast á eyjunni, þar sem áð-
ur voru bílaverkstæði og litlar verksmiðjur, heildsölur og vöruskemmur,
og þar er alltaf eitthvað forvitnilegt að sjá; nýjustu hræringar í myndlist-
inni og inn á milli sýningar á forvitnilegum eldri verkum. Flest galleríin
eru í götunum kringum 23. stræti og á milli 10. og 11. breiðgötu, oft mörg
í hverju húsi, og þarna streymdi fólk um götur greinilega sömu er-
indagerða og ég, að skoða mynd-
list. En á síðustu misserum hef-
ur orðið breyting í gestaflóru
hverfisins; sífellt fleiri ganga upp
og niður stiga sem liggja upp á
upphækkaðan stálveg sem liggur
samhliða breiðgötunum en inn á
milli mishárra húsanna. Þetta er
High Line – nýjasti og einn vin-
sælasti almenningsgarður borg-
arinnar.
Þegar gengið er upp ein-
hverjar af þeim níu tröppum sem
opnar eru gestum upp á High
Line, opnast útsýni eftir breiðri
stálbrú sem nær í dag einar
nítján húsaraðir norður og suður
eftir Manhattan. Gangvegur er
eftir miðri brúnni, þar sem áður
lágu lestarteinar, en til beggja
handa er ilmandi gróður. Hér og
þar eru útskot með bekkjum eða stærri hvíldarstöðum, þar sem útsýni
opnast yfir nálægar götur og torg.
High Line nær allar götur frá West Village í suðri, gegnum „Kjötpökk-
unar“-hverfið, Chelsea-hverfið og upp að 30. stræti. Þar kemur lykkja á
brúna og hefur sá endi enn ekki verið opnaður gestum.
Fyrri hluti þessa óvenjulega afdreps frá skarkala borgarinnar var opn-
aður árið 2009 og seinni hlutinn fyrir ári. Nú þegar nýtur garðurinn mik-
illa vinsælda. Þessi upphækkaða lestarbrú var reist fyrir vörulestir upp úr
1930, eftir að ótal slys höfðu átt sér stað á 10. breiðgötu meðan teinarnir
lágu þar. Hætt var að nota teinana árið 1980 og eftir langvinn málaferli
tókst áhugafólki um verndun High Line að koma í veg fyrir að upphækk-
unin yrði rifin og henni þess í stað breytt í þennan vel lukkaða garð.
SJÓNRÆN OG NÁTTÚRULEG UPPLIFUN Í NEW YORK
Garður og
gallerí
CHELSEA-HVERFIÐ Á MANHATTAN HEFUR VERIÐ EINN
VINSÆLASTI ÁFANGASTAÐUR NEW YORK-BÚA SÍÐUSTU
ÁRIN. ÞAR ERU GALLERÍIN OG HIGH LINE-GARÐURINN.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
High line - garðurinn
WestVillage
Meatpacking
District
Chelsea
High line
Lokað almenningi
14.stræti
23.stræti
32.stræti
Þar sem áður voru drungalegar
skemmur og verkstæði umhverf-
is High Line-garðinn, hafa metn-
aðarfull gallerí og kaffihús nú
tekið yfir Chelsea-hverfið á
Manhattan. Af útsýnisstöðum,
eins og þessum, þar sem grósku-
miklum gróðri hefur verið plant-
að, getur nú að líta litrík úti-
listaverk og tignarlega
borgarmyndina. Um göturnar
ganga áhugamenn um listir sem
skoða það nýjasta í galleríunum.
LITRÍKT UMHVERFI