Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Síða 27
living withstyle
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík s: 522 4500
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 www.ILVA.is
NÝTT - VESTA einingasófi.
Hornsófi með legubekk og
endaeiningu. L 370 x D 270 cm.
Sessur eru bólstraðar með svamp
og dúnlagi fyrir extra þægindi.
Einstakt Cabana grábrúnt áklæði.
Heildarverð á uppsetningu
464.500,- Vesta er einingasófi
sem hægt er að raða saman eftir
eigin höfði og einnig hægt að velja
úr mörgum mismunandi áklæðum.
NÝTT - DETROIT sófaborð með
stálgrind og slitsterk borðplata
með steináferð. H 40 x D 90 cm
89.900,- Hornborð H 55 x D 50 cm
69.900,-
DETROIT
SÓFABORÐ
89.900
Nýtt
14.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Heimili og hönnun
H
alla Bára Gestsdóttir er ritstjóri veftímaritsins og bloggsíðu Home & Deli-
cious sem fjallar um hönnun og heimili og hefur lengi verið viðloðandi slíka
útgáfu. Hún og eiginmaður hennar, Gunnar Sverrisson, stóðu að fylgiblaði
Morgunblaðsins; Lifun, um langt skeið, gáfu út Veggfóður, tímaritið, og þá
hafa komið út bækur eftir þau hjónin. Sunnudagsblaði Morgunblaðsins þótti því for-
vitnilegt að vita hvernig þau sjálf græjuðu borðstofuborðið fyrir eigin matarboð.
„Ég er mjög afslöppuð þegar kemur að slíkum boðum og hreint út sagt samanstendur
slík skreyting af samtíningi. Grái dúkurinn er til að mynda gamalt rúmteppi úr IKEA
sem ég litaði og finnst hann mjög góður í að leggja ofan á annan ljósari. Þá er stellið
mitt líka hálfgerð blanda því ég varð fyrir því óhappi á leið heim frá Ítalíu, þar sem ég
var í námi, að kassinn með leirtauinu mínu brotnaði.“
Halla Bára segir gráan og bláan grunn leyfa öllum öðrum litum að njóta sín. Bleik
blóm og skærir litir njóta sín til dæmis vel. „Ég er alls ekki mínímalísk og er til dæmis
með dót út um allt. Heimili verður að vera þannig að fólk geti haft sína hentisemi. En
svo á ég til alls kyns sérvisku og til dæmis er mikið grín gert að mér fyrir að vera alltaf með litlar glerflöskur í öllu
sem ég kem nálægt. Ég sting blómum í þær og þær eru mitt uppáhaldsskraut.Morgunblaðið/Árni Sæberg
FLÖSKUSÖFNUN
Minni og stærri flöskur úr gleri eru mikið not-
aðar á heimilinu, undir blóm og ýmis konar
vökva. Frá útlöndum hefur Halla Bára meira að
segja rogast með stærðarinnar flöskur og segir
góðlátlegt grín gert að henni fyrir þessa söfnun.
AUÐVELDUR ASPASRÉTTUR
Aspasrétt úr smiðju Höllu Báru er að finna í Home & Delicious.
Takið eftir hnífapörunum úr ekta fílabeini sem húsfrúin fékk í arf.
Lagt á borð fyrir
væntanlega gesti
HALLA BÁRA GESTSDÓTTIR, RITSTJÓRI HOME & DELICIOUS, ER MJÖG RÓLEG FYRIR
MATARBOÐ OG FINNST BEST AÐ VERA MEÐ ÝMISS KONAR SAMTÍNING Á BORÐUM.
HÚN ER HRIFIN AF ÞVÍ AÐ NOTA BLÁA OG GRÁA LITATÓNA SEM GRUNNLITI
Á MATARBORÐIÐ OG SEGIR ALLT ANNAÐ PASSA VEL VIÐ ÞÁ SAMSETNINGU.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
AFSLÖPPUÐ FYRIR MATARBOÐ
STEINAR Í EFTIRLÆTI
Halla Bára kippir með sér einum og einum steini hvert sem hún fer og notar í ýmsar
skreytingar.
Halla Bára Gestsdóttir