Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Síða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Síða 34
*Með því að setja rafmótor á reiðhjól er hægt að panta sér meðvind í miðri brekku »36Græjur og tækni Þ ar til nýverið fólst starfsemi YouTube í því að bjóða upp á tæknilausn sem gerði notendum kleift að deila myndböndum á netinu með einföld- um hætti og selja auglýsingar. Fyrir tæpu ári tilkynntu stjórnendur You- Tube að fyrirtækið hygðist færa út kvíarnar og leggja 100 milljónir doll- ara í að greiða einstaklingum og framleiðslufyrirtækjum í Bandaríkj- unum fyrir að framleiða efni fyrir vefinn. Komið var á fót eitt hundrað sérhæfðum „rásum“ sem sýndu nær eingöngu efni sem framleitt var sér- staklega fyrir YouTube. Á meðal samstarfsaðila YouTube í þessu verkefni hafa verið risafyrir- tæki á borð við Nike, NBA-deildin og skemmtikraftar eins og Sarah Silverman og Michael Cera, að ógleymdum Barack Obama Banda- ríkjaforseta. Síðastliðinn sunnudag tilkynnti YouTube að nú myndu bætast í hópinn 60 rásir frá Bret- landi, Frakklandi og Þýskalandi, þeirra á meðal BBC Worldwide, þýski fjölmiðlarisinn Bertelsmann, sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver og Heimsmetabók Guinness, svo ein- hverjir séu nefndir. Þessi tilraun hefur gengið vonum framar, en Robert Kyncl, „dagskrár- stjóri“ YouTube, upplýsti við þetta tækifæri að 25 vinsælustu rásirnar hefðu allar meira en milljónar manna áhorf á viku að meðaltali. Fyrirtækið hefur þegar lagt á ráðin um enn frekari fjölgun rása í náinni framtíð, bæði í Evrópu og Suður- Ameríku. Þá hyggst fyrirtækið verja um 200 milljónum dollara í frekari markaðssetningu á YouTube- rásunum í þeirri von að sá kostnaður skili sér til baka í formi aukinna auglýsingatekna. Faglega unnið efni, framleitt í samvinnu við þekkt fyr- irtæki og einstaklinga, laðar að sér auglýsendur sem eru tilbúnir að greiða meira fyrir birtinguna. Með þessari áherslubreytingu í starfsemi fyrirtækisins virðist sem YouTube ætli að endurskilgreina sig sem eiginlegan fjölmiðill í stað tæknifyrirtækis. Sjónvarp er ennþá sá miðill sem auglýsendur horfa helst til og þeir eyða miklum fjár- hæðum í birtingar þar. Sérfræð- ingar áætla að auglýsendur í Banda- ríkjunum muni verja 65 milljörðum dollara í sjónvarpsauglýsingar á þessu ári. Sjónvarpsáhorf fer í sí- auknum mæli fram á netinu og allt bendir til að YouTube ætli að koma sér í lykilstöðu sem dreifingaraðili sjónvarpsefnis í framtíðinni. Sjónvarpsveldið YouTube Ekkert myndskeið hefur verið oftar skoðað er tónlistarmyndband með ungstirninu Justin Bieber. Alls hefur myndbandið verið skoðað yfir 787 milljón sinnum um heim allan. AFP YOUTUBE ÆTLAR SÉR AÐ KEPPA VIÐ SJÓNVARP UM ÁHORFENDUR FRAMTÍÐARINNAR OG FJÁRMAGNAR NÚ FRAMLEIÐSLU HÁGÆÐAEFNIS FYRIR SÍÐUNA. Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com Justin Bieber - Baby ft Ludacris Jennifer Lopez - on the floor Eminem - Love the way you lie Shakira -WakaWaka Lady Gaga - Bad romance LMFAO - Party Rock Anthem Charlie bit my finger - again! MichelTeló - Ai Se EuTe Pego Psy - Gangnam Style Don Omar - Danza kuduro 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Topp10 allra tíma Stofnað: 2005 Eigendur: Google Staða: 3. mest sótti vefur heims Tekjur: $3,6 milljarðar (áætlað 2012) 800 milljónir einstakar heimsóknir í hverjum mánuði milljarðar klukkustunda af myndböndum sem horft er á mánaðarlega4 klukkustundir af myndböndum sem er hlaðið upp áYouTube á hverri mínútu72 ár afYouTube myndböndum sem horft er á daglega á Facebook500 myndbönd afYouTube sem deilt er á Twitter á hverri mínútu700 YOUTUBE BÆTIR VIÐ RÁSUM OG KEPPIR VIÐ SJÓNVARPSSTÖÐVAR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.