Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Page 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Page 37
14.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 Notendur snjallsíma og spjaldtölva hafa ótal leiðir til að nálgast upplýs- ingar og deila. Smáforritið Flipbo- ard er enn ein leiðin, en með því er hægt að safna samfélagsmiðlum á borð við Facebook og Twitter og fréttamiðlum að eigin vali og fletta þægilega í gegn. Svolítið eins og að stilla upp sínum eigin fjölmiðli. FLIPBOARD Þinn eigin fjölmiðill Fólk verður að fá iPhone 5- snjallsímann og það verður að fá hann strax. Þetta þýðir að mikill erill hefur verið í fraktflugi vítt og breitt um heiminn að undanförnu, svo mikill að flugfélög hafa leigt fjöl- margar aukavélar til að koma gripnum sem fyrst til skila og jafn- vel þurft að aflýsa áætlunarflugi. NÝI IPHONE-SÍMINN Stuðlar að auknu fraktflugi Tölvur og nettengingar eru á 99% íslenskra fyrirtækja með 10 eða fleiri starfsmenn, að því er kemur fram í Hagtíðindum Hagstofu Ís- lands. Þar segir að fyrirtækjum með eigin vefsíður eða vefsetur hafi fjölgað frá árinu 2010 og nú séu 86% fyrirtækja með 10 eða fleiri starfsmenn. Hjá 99% fyrirtækja TÖLVUR OG NET Tölvur eru þarfaþing. prófaði í roki og rigningu var frá hollenska fyrirtæk- inu Qwic og gerðin heitir Trend. Fyrstu Qwic-hjólin komu á götuna árið 2006 og eru víst með mest seldu rafmagnshjólum í Hollandi. Mótorinn er í framhjól- inu og ekki virkur nema maður sé að hjóla, þ.e. um leið og petalarnir hætta að snúast hættir mótorinn að hjálpa til og eins þegar hraðinn er kominn yfir 25 km. á klst., enda ætti maður ekki að þurfa aðstoð þegar svo hratt er komið. Stjórnborð mótorsins er á stýrinu, LCD-skjár með hnöppum til að kveikja og slökkva og eins til að kveikja á ljósunum á hjólinu, með fylgir fram- og afturljós, og síðan til að velja hversu mikinn meðvind maður vill, alls sex þrep. Þegar maður er að hjóla á jafnsléttu þarf ekki mikla hjálp, en það getur komið sér vel ef erfiða á upp langar brekkur, glíma við mikinn mótvind eða berjast í gegnum þæfingsfærð. Að því leyti er þetta bráðsniðug lausn og skipti miklu að hjólamaðurinn er alltaf að hjóla og fær fyrir vikið góða hreyfingu og heldur á sér hita, sem er lykilatriði. Áhugi á hjólreiðum hefur aukist til muna hér álandi á síðustu árum og reyndar víða umheim Hér á landi er algengast að fólk hjóli á sumrin, en leggi síðan hjólinu þegar hausta tekur og veður verður vott og vindasamt. Það er þó óþarfi að setja hjólið inn í skúr, því hægt er að klæða sig bet- ur og setja grófari dekk undir stálfákinn, jafnvel nagladekk. Ef það dugir ekki má ganga enn lengra og bæta við hjálparmótor, nú eða kaupa sér hjól með mótor og öllu tilheyrandi. Fyrir hjólreiðamann- inum er brekkan skemmti- leg áskorun og mótvindur eykur bara ánægjuna, eða svo segja menn gjarnan þegar vel liggur á þeim. Smám saman fer það þó að vera minna og minna spennandi að leggja af stað í náttmyrkri, roki og rigningu, nú eða í þæfingsfærð og blindu. Nokkur fyrirtæki setja mótor í hjól fyrir þá sem vilja. Það er líka hægt að kaupa sér hjól með mótor, en mis- jafnt hvort um ræðir hreinan hjálparmótor, eða hægt sé að nota hann einan. Í vikunni próf- aði ég hjól með rafmagnsmótor og kannski best að lýsa því svo að ég gat kallað á meðvind eftir þörfum. Hjólið sem ég MEÐ VINDINN Í BAKIÐ RAFMAGNSHJÓLUM FJÖLGAR Á GÖTUNNI ENDA GOTT AÐ GETA KALLAÐ Á MEÐVIND ÞEGAR MAÐUR ER GEFAST UPP Í MIÐRI BREKKUNNI, DAUÐÞREYTTUR Á MÓTVINDINUM EÐA SITUR FASTUR Í ÞÆFINGSFÆRÐ Á LEIÐ Í VINNUNA. Græja vikunnar ÁRNI MATTHÍASSON * Mótorinn er sex þrepa250 W og rafhlaðan, sem er 360 Wh litíum rafhlaða, á að duga í 60 til 110 kílómetra, en fer vit- anlega mjög eftir hve leiðin er mishæðótt og rafhlaðan þá mikið notuð. Það tekur hálfan fjórða tíma að ná hleðslu upp í 95%. * Qwic Trend er með 28"dekkjum fánalegt í karla- og kvennaútgáfu og stellið til í þrem- ur stærðum. Mótorinn er í fram- dekkinu en að aftan er sjö gíra Shimano Nexus-skipting í nöfina á afturhjólinu. Bremsurnar eru skálabremsur að fram og aftan. * Með fylgja bretti ogbögglaberi og LED-ljós að framan og aftan sem sækja straum í raf- hlöðuna. Hún er undir bögglaber- anum og hægt að kippa hennir með sér inn, en hún er læst við hjólið með lykli. Hjólið er eðlilega dálítið þungt, rúm 23 kíló. KORTIÐ GILDIRTIL 31. janúar 2013 – MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR MOGGAKLÚBBURINN FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT EÐA Í SÍMA 569 1100 Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn. Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér. 2 FYRIR 1 AF AÐALRÉTTUM ÁMATSEÐLI Tilboðið býðst frá mánudegi til laugardags eftir kl. 17:00 frá 11. október til 9. nóvember 2012. Framvísið Moggaklúbbskortinu áður en pantað er. Greitt er fyrir dýrari réttinn. Tilboðið gildir ekki með öðrum tilboðum. MOGGAKLÚBBUR Nauthóll Nauthólsvegi 106 | 101 Reykjavík 599 6660 www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.