Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Side 39
14.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Þ að er dálítið undarlegt aðupplifa það að tískan sé aðverða nánast eins og hún
var þegar ég var 13 ára. Það var
einmitt þá sem þótti töff að klæðast
gegnsæjum bolum, lituðum galla-
buxum og blómajökkum. Berar axl-
ir voru líka í tísku þá ásamt gegn-
sæjum kjólum og skyrtum úr
gerviefnum. Það verður að segjast
eins og er að það er mun notalegra
að klæðast þessum fötum þegar
maður getur ferðast um í einkabíl.
Hin ofurköldu gerviefni voru
ekki að vinna til neinna verð-
launa þegar maður beið í
strætóskýlum eftir leið 10. Á
meðan við vinkonurnar vorum
í blómajökkum klæddust
óþekku krakkarnir í hverfinu
leðurjökkum og leðurbuxum,
nú eða svokölluðum „skelfis-
jökkum“ sem voru svartir að
utan en appelsínugulir að
innan og fengust í Vinnufata-
búðinni. „Skelfisjakkarnir“
voru með sama sniði og blóma-
jakkarnir.
Í tísku dagsins í dag er rykið
dustað af þessum tískutrend-
um en útkoman er miklu
kvenlegri en þá. Mótorhjólaleð-
urjakkar eru alveg aðsniðnir úr
þynnra og vandaðra leðri. Tísku-
pæjur eins og Victoria Beckham
klæðast ofurþunnum og lekkerum
leðurbuxum og gæta þess vel að
vera bara í einni leðurflík í einu.
Það er vel hægt að vera leð-
urklæddur án þess að vera bendl-
aður við einhvern ógæfuklúbb.
Vinkonur mínar eru margar ákaflega hrifnar af
leðri og hafa verið duglegar að klæðast því upp á síð-
kastið. Og það bregst ekki, þegar þær eru komnar í
leðurföt þá gerist eitthvað. Þær verða ósjálfrátt
pínulítið kjaftforari og með meiri dólgslæti en
venjulega. Auðvitað finnst mér þær miklu skemmti-
legri í leðri en án þess. Leður við leður er svona álíka
eins og að klæðast gallabuxum við gallajakka – það
verður of mikið. Man einhver eftir Gallafata-Barbie?
Leðurleggings
úr TopShop á
3.550 kr.
Leðurklæddir
villikettir
Victoria
Beckham
Leðurjakki
úr Topshop
31.990 kr.
Gegnsær
bolur úr
Vero Moda
4.500 kr.
Nýjasti liturinn
frá Chanel heitir
563. Hann smell-
passar við leð-
urbuxur. 4.100 kr.
Skyrta úr Vero
Moda 4.500 kr.
Act Heildverslun - Dalvegi 16b - 201 kópavogur
577 2150 - avon@avon.is
Tæki til hársnyrtingar fyrir alla
REMINGTON
merkið sem fólkið treystir
Kastanía Höfðatorgi, Höfðatúni 2, 105 Reykjavík, sími 577 5570
Arna Verslun Grímsbæ, Efstalandi 27, 108 Reykjavík, sími 527 1999
Junik Smáralind, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, sími 571 7700
Sirka Skipagötu 6, 600 Akureyri, sími 461 3606
Paloma Víkurbraut 62, 240 Grindarvík, sími 426 8711
Gallerí Keflavík, Hafnargötu 32, 230 Keflavík, S: 421 7300
Cleopatra Austurvegi 4, 800 Selfossi, sími 482 2144
Heildsöludreifing:
Óm Snyrtivörur ehf, Tunguvegi 19, 108 Rvík. sími 568 0829, om@om.is
Útsölustaðir
Stöndum saman
gegn einelti
og sýnum stuðning með
GOOD WORK(s)
leðurarmböndunum
Falleg áminning
um trú, ást og
kærleika