Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Page 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Page 40
Miðlar samkennd LADY GAGA ER ÞEKKTUST FYRIR GRÍPANDI TÓNLIST OG GLÆSILEGA SVIÐSBÚNINGA. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is 40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.10. 2012 Föt og fylgihlutir Lindsay Lohan „frum- sýndi“ nýja rauða lokka í veislu sem haldin var til kynningar á nýjum gosdrykk í Hollywood í vikulokin. Lohan er ekki lengur sama tískufyr- irmyndin og hún var en rauðu lokkarnir fara henni engu að síður vel og þykir hún unglegri en með aflitaða hárið. Síð- ar um kvöldið fór hún á fræga Hollywood- staðinn Chateau Marmont. Svo virðist sem hún sé búin að leysa úr deilu sinni við eigendur hótelsins en hún skuldaði þeim hvorki meira né minna en 5,6 milljónir króna í maí. LINDSAY LOHAN MEÐ NÝJA HÁRGREIÐSLU Rauðir lokkar Lohan er breytt með rauða lokka. AFP Frægt fólk úr heimi tísku, kvikmynda og hárgreiðslu flykktist á minningarathöfn sem haldin var á föstudag um hinn áhrifamikla hárgreiðslumeistara Vidal Sassoon. Sassoon fann upp stuttu klippinguna sem varð svo áber- andi á sjöunda áratugnum í London. Hann lést 84 ára gamall úr hvítblæði á heimili sínu í Los Angeles í maí. Hárgreiðslumaðurinn var heiðraður af samlöndum sín- um í minningarathöfninni sem fram fór í St. Paul- dómkirkjunni í bersku höfuðborginni. Á meðal stjarna sem mættu á staðinn voru leikararnir sir Michael Caine og Jeremy Irons og fatahönnuðurinn Zandra Rhodes, sem setti eins og Sassoon mark sitt á sjöunda áratuginn. Ennfremur komu hárgreiðslumeist- ararnir John Frieda og Nicky Clarke sem báðir sögðu Sassoon hafa haft mikil áhrif á sig. MINNINGARATHÖFN UM HÁRGREIÐSLUMEISTARANN VIDAL SASSOON Stjörnurnar mættu á staðinn Hér má sjá breska fatahönnuðinn Zöndru Rhodes mæta í St. Paul- dómkirkjuna í London, þar sem athöfnin fór fram. AFP É g hét sjálfri mér því að ef ég myndi einhvern tímann njóta athygli fjöldans, þá myndi ég nota tækifærið til að miðla samkennd til þeirra sem heyrðu.“ Þetta mælti Lady Gaga þegar hún tók við LennonOno-friðarverðlaununum Í Hörpu í vikunni. Poppstjarnan, sem er 26 ára, bandarísk af ítölskum ætt- um, heitir réttu nafni Stefani Joanne Angelina Germanotta. Við þetta tækifæri sagði Yoko Ono að listakonan notaði frægð- ina til að vekja athygli á mikilsverðum málefnum. Þannig væri hún fyrirmynd öðrum frægum einstaklingum sem þyrðu ekki að segja hug sinn af ótta við að missa sæti sitt á frægðartind- inum. Eitt er víst, Lady Gaga, er ekki hrædd við að vera umdeild, hvorki fyrir það sem hún gerir né fötin sem hún klæðist eins og meðfylgjandi myndir sanna. Hún er undir áhrifum frá David Bowie, Michael Jackson, Madonnu og Queen og er þekkt fyrir grípandi tónlist, glæsilega búninga og íburðarmikla tónleika. Hún hefur selt í kringum 23 milljónir platna og 64 milljónir smáskífna á heimsvísu. Hún hefur jafnframt hreppt fimm Grammy-verðlaun og 13 MTV-tónlistarverðlaun. Hún er númer 14 á lista Forbes yfir áhrifamestu konur í heimi og númer fimm á lista sama tímarits yfir mestu stjörnur heimsins. AFP LADY GAGA FÉKK LENNONONO-VERÐLAUNIN AFP Lady Gaga á Grammy- verðlaunahá- tíðinni 2010. Dökkhærð og öllu hófstillt- ari en oft áður. Í Harrods- stórversluninni í London fyrr í október þar sem hún var að kynna nýjan ilm sinn, Lady Gaga Fame. Sérstakur hárkjóll sem söngkonan klæddist í Hong Kong í apríl á þessu ári. Þessi kjötkjóll er frægasti kjóll sem stjarnan hefur verið í. Honum klæddist hún á verðlaunahátíð MTV árið 2010. Á mótorhjóli á tónleikum í Taívan í mars á þessu ári.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.