Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Side 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.10. 2012 E kki hefur því verið flett upp hverjir sitja í norsku nefndinni sem veitir friðar- verðlaun Nóbels. En það fer ekki á milli mála að nokkrir góðir grínistar hafi smyglað sér í örugg sæti í nefnd- inni og er auðvitað fagnaðarefni. Það kemur hins vegar í hlut formannsins Jaglands, þraut- reyndrar spíru úr norska krataflokknum, að kynna ákvörðunina í hvert sinn. Og það gerir hann jafnan al- vörugefinn, eins og hann væri að kynna óvænt dauðs- fall í fjölskyldunni, hversu spaugileg sem niðurstaðan er. Slíkt er aðeins á færi skemmtikrafta í úrvalsdeild. Friðarverðlaun fyrir kosningasigur og nú þetta Fyrir fáeinum árum var friðarverðlaunanefndin svo barnslega glöð yfir því að demókratinn Obama hefði sigrað repúblikanann McCain í forsetakosningum að hún veitti Obama umsvifalaust friðarverðlaunin fyrir sigurinn. Meira að segja Obama þótti þessi barnalega uppákoma óþægileg og óttaðist að hann sjálfur myndi breytast í brandarann, en það slapp. Og Jagland formaður brást ekki vonum aðdáenda sinna núna þegar hann tilkynnti, grafalvarlegur í bragði, að nefndin hefði í ár veitt Evrópusambandinu friðarverðlaun Nóbels. Það var þá árið til þess. Besti smellurinn fólst þó auðvitað í fullyrðingu um að ESB hefði séð um frið í álfunni í rúma hálfa öld. Blaða- fulltrúar ESB í sumarafleysingum gætu hugsanlega misst þvílíkt út úr sér á fyrsta degi starfsþjálfunar, en fáir aðrir, þótt ekki skuli íslenskir „Evrópufræðingar“ útilokaðir án athugunar. Eftir heimsstyrjöldina síðari var járntjald reist um Evrópu þvera. Austan megin voru Sovétríkin og lepp- ríki þeirra í Varsjárbandalaginu og hinum megin Nató undir forystu Bandaríkjanna og í krafti herstyrks þeirra. Bandaríkin ein voru með um og yfir 100 þús- und hermenn á meginlandi Evrópu allan þennan tíma, svo ekki er alveg ljóst hvaða ríki hefðu hleypt af stað styrjöld hefðu þau staðið utan Evrópusambandsins. Hefði Portúgal ráðist á Spán? Hefði Danmörk farið í Svíþjóð? Í hvern hefði Þýskaland farið með 100 þús- und bandaríska hermenn heima hjá sér og 15 þúsund breska og franska í sumarhúsinu sínu og gestaíbúð- inni? Voru ekki næstum öll þessi lönd saman í varnar- bandalaginu Nató? Og hvað hafði ESB með það að gera hvernig kalda stríðið þróaðist? Það virðist kjarn- inn í kómedíu Jaglands og norsku nóbelsnefndarinnar að Sovétmenn hafi ekki þorað að ráðast á fylkingu Bandaríkjamanna og öfugt vegna þess að þeir í Hvíta húsinu og Kreml hafi verið svo hræddir um að ráða- menn í Brussel, jafnvel undir forystu Lúxemborgar, myndu grípa fast í taumana, létu þeir á sér kræla. Það hafi því verið óttinn við skrifstofumenn ESB sem hafi komið í veg fyrir að stríðsherrarnir létu sverfa til stáls. Friðurinn í Júgóslavíu Frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari virtist ríkja friður í Júgóslavíu og flestir voru búnir að gleyma því að Júgóslavía var aðeins teikniborðsríki og varla nokkur maður mundi gerla hvaða þjóðir hefðu verið til staðar í héruðum Júgóslavíu áður en hinn farsæli frið- ur lagðist yfir landið. Kannski heldur Jagland og hallaladdarnir í nóbelsnefndinni að ESB hafi eitthvað haft að gera með hinn júgóslavneska „frið“. En það var stálhrammur Króatíumannsins Títós, sem í krafti sérútgáfu sinnar af kommúnisma, persónulegra af- reka sem skæruliði gegn Hitler og leppum hans og með þeim meðulum sem kúgunartæki alræðisríkisins ráða yfir, sem stóð fyrir þessum friði. Þetta var áður en norskir spaugstofumenn lögðu nóbelsnefndina undir sig, svo Tító fór á mis við friðarverðlaunin, sem hann átti ekki síður skilið en Arafat, kollegi hans í skipulögðum árásum og skæruhernaði. En þegar Tító var allur og málmþreyta og ryð breiddust óðum út um gaddavír járntjaldsins kom í ljós að kúgun í áratugi hafði ekki gert út af við þá sam- kennd og samhengi sem „þjóð“ brennir fastar á og í fólk en tattú nútískunnar gerir nokkru sinni. En þeg- ar losnaði um fjötrana fór brátt að glitta í gamlan merg. Þá tóku menn ekki aðeins að halda fram hlut sinnar þjóðar og lýsa frati á platríkið Júgóslavíu. Þeir hófu að gera upp sakir hver við annan. Og það var af nógu að taka. Serbar og Króatar eru ekki í hópi fjöl- mennra þjóða, en sagan sýnir að þar er að finna ein- hverja eitruðustu hermenn sem völ er á. Því kynntust kónar Hitlers, sem áttu samskipti við hópa þaðan, bæði sem andstæðinga og þjónkunarmenn, eftir því Naumast hvað þeir eru gamansamir í nefndinni *Hvað gerði handhafi friðar-verðlauna Nóbels, Evrópusam-bandið? Það gerði það sem það gerir best. Það hélt endalausa fundi, jafn- vel neyðarfundi. Reykjavíkurbréf 12.10.12

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.