Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Qupperneq 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Qupperneq 51
14.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 S éra Guðrún Karlsdóttir sækir Hallgrím Ólafsson leikara í Borgarleikhúsið þar sem hann er á æfingu. Fyrsti áfangastaður er gamla Landspítalahúsið við Hringbraut. Hallgrímur: „Hér fæddust börnin mín tvö. Landspítalasvæðið væri flott ef það væri allt í þessum stíl.“ Guðrún: „Algjörlega. Ég bjó lengi í miðbænum og hélt ég myndi alltaf vera þar en er nú í Grafarvogi.“ Hallgrímur: „Þú gætir allt eins búið uppi á Esju!“ Guðrún: „Ha, ha, nákvæmlega. En Grafarvogur er yndislegur.“ Hallgrímur: „Ég er uppalinn á Akranesi en hef búið í miðbænum frá því ég flutti til Reykjavíkur. Ég er samt að vaxa upp úr að þurfa að búa hér.“ Guðrún: Sko, ef þér dettur til dæmis í hug að flytja í Grafarvoginn þá mæli ég með mínu Staðarhverfi. Fyrir neðan húsið er ein af fáum fjörum í Reykjavík sem ekkert hefur verið átt við. Þangað fer ég oft og bý við lúxus að hafa þessa náttúru. Ég hleyp líka oft þarna.“ Hallgrímur: „Góð hugmynd, þarna er veiði og golfvöllur.“ Guðrún: Ég bý næstum á miðjum golfvellinum Hallgrímur, þú yrðir mjög ánægður þarna.“ Ferðu í leikhús Guðrún og þú í kirkju Hallgrímur? Hallgrímur: „Ég fór í kirkju í gær! Það er sem sagt verið að fara að ferma dóttur mína. Messur eru mjög notalegar.“ Guðrún: „Ég fer mikið í leikhús og missi helst ekki af neinni barnasýningu.“ Hallgrímur: „Störf okkar eru ekki svo ólík. Altarið er auðvitað hálfgert svið og má segja leiklistin, eins og við þekkjum hana í dag hafi byrjað með að kirkjan setti upp helgileiki til þess að boða fagnaðarerindið.“ Guðrún: „Prestar leita stundum aðstoðar leikara með framsögn og það er mikill kostur fyrir prest að geta sungið. Syng ég á rúntinum? Já, æfi til dæmis gjarnan tónið í bílnum og það er þægilegt að semja ræður í bílnum og æfa þær.“ Guðrún gefur tóndæmi: „Dro-o-tinn miskunna þú oss. Líka mjög gott að semja ræður í bílnum.“ Kirkjuklukkur hringja skyndilega en það er hringitónn Guðrúnar fyrir erindi sem tengjast kirkjunni. Guðrún svarar og talið berst á meðan að eftirminnilegum holgóma karakter sem Hallgrímur lék kostulega í Fló á skinni. Hallgrímur: „Já, ég hef sem sagt leikið töluvert af fólki með ýmsa kvilla, ég var holgóma í Fló á skinni og nánast óskiljanlegur, þroskaheftur í Fólkinu í blokkinni, ofvirkur með athyglisbrest í Gauragangi, með asperger í Fjölskyldunni. Nú leik ég loksins heilbrigðan einstakling í Gullregni en honum hefur þó verið talin trú um að hann sé mikill sjúklingur svo þetta vill einhvern veginn loða við mann. Nú vil ég gjarnan að við komum við í Tjarnargötu. Ég skoða oft hús með konunni minni á rúntinum sem ég myndi vilja eiga heima í. Þau eru nokkur afar falleg í Tjarn- argötu. Ég ætla einn daginn að eiga nógan pening til að búa hérna. Eitt hlutverk í Hollywood og þá er þetta komið.“ Guðrún: „Mér líst mjög vel á Tjarnargötuna því þaðan sjáum við þrjár kirkjur.“ Sérann og leikarinn staldra dágóða stund við í Tjarnargötu en þá vill Guðrún keyra upp í Grafarvog. Guðrún: „Ég held að þú sjáir heim á Skagann þaðan og Esjuna.“ Hallgrímur: „Nei, nei, við horfum frekar á Akrafjallið, miklu betra fjall en Esjan.“ Leiðin liggur meðfram Sæbrautinni og að lokum er áð í fjörunni fyrir neðan heimili Guð- rúnar. Hallgrímur: „Vá, þetta er geggjaður staður. En ég verð nú samt að viðurkenna að ég gæti ekki farið í göngutúra eins og þú. Það verður að vera eitthvað sérstakt að gera á meðan ég hreyfi mig; golf til dæmis. Býrðu hérna rétt fyrir ofan segirðu? Er það sérstakur prestsbústaður?“ Guðrún: „Nei, alls ekki. Bara mitt hús. Sá háttur er ekki hafður á lengur nema á landsbyggðinni.“ Eftir ljúfan göngutúr í fjörunni er haldið í Spöngina, í World Class. Guðrún: „Hér æfi ég mikið og finnst gott að hreinsa hugann þannig, gleyma öllum erfiðleikum og kannski fá hugmyndir að næstu prédikun. Við þurfum ekkert að stoppa lengi. Brunum frekar á lokaáfangastað, mig langar að sýna ykkur inn í Grafarvogskirkju.“ Hallgrímur gengur að altarinu, opnar biblíuna sem er þar á standi og hefur lesturinn: Hallgrímur: „Óttastu ekki land, heldur fagna og gleðst því að Drottinn hefur unnið mikil stórvirki. Óttist ekki, dýr merkurinnar. Beitilönd öræfanna gróa, trén bera ávöxt, fíkjutrén og vínviðurinn veita þrótt sinn.“ Guðrún: „Þetta er úr Jóelsbók.“ Hallgrímur: „Þetta er falleg kirkja Guðrún. Takk fyrir daginn.“ SUNNUDAGSBÍLTÚR MEÐ SÉRA OG LEIKARA Á rúntinum SÉRA GUÐRÚN KARLSDÓTTIR OG HALLGRÍMUR ÓLAFSSON FÓRU SAMAN Í BÍLTÚR OG SÝNDU HVORT ÖÐRU STAÐI Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SEM ÞAU HEIMSÆKJA SJÁLF. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is „Störf okkar eru ekki svo ólík. Altarið er auðvitað hálfgert svið og upphafið að leiklistinni er kirkjan að boða fagnaðarerindið,“ segir Hallgrímur. Presturinn leyfði leikaranum að gægjast inn í kirkjuna sína. Á bílastæðinu við Spöngina í Grafarvogi en eftir messur fer séra Guðrún í ræktina í World Class til að slaka á og hreinsa hugann. Hallgrímur varð mjög hrif- inn af fjörunni hennar Guðrúnar sem er rétt fyrir neðan húsið hjá henni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.